Viðskipti innlent

Innlendir framleiðendur með 41% af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjöt

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Innlendir kjúklinga- og svínabændur og afurðastöðvar í landbúnaði fengu samtals í sinn hlut rúmlega 41 prósent af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjötvörur, sem úthlutað var fyrir fyrri helming ársins 2019 samkvæmt tollasamningi Íslands og ESB. Bændur og afurðastöðvar flytja inn nærri 84 prósent af öllum svínakjötskvótanum.

Heimilt er að flytja inn 1.397 tonn af kjötvörum frá ríkjum ESB tollfrjálst á fyrri helmingi þessa árs. Innlendir kjötframleiðendur fengu 573,5 tonn af kvótanum eða rúmlega 41 prósent. Félag atvinnurekenda tók þetta saman og byggði á tölum frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.

Umsvifamesti innflytjandinn er Mata en fyrirtækið er í eigum sömu aðila og Matfugl, sem er einn stærsti kjúklingaræktandi landsins og Síld og fiskur sem er stór svínaræktandi og selur afurðir undir vörumerkinu Ali.

Aðrir innflytjendur úr hópi kjúklinga- og svínabænda eru Stjörnugrís og Reykjagarður sem selur afurðir undir vörumerkinu Holta.

Þegar tollfrjáls kvóti er flokkaðir eftir tegundum afurða kemur í ljós að innlendir kjötframleiðendur eða afurðastöðvar í landbúnaði flytja inn 22% nautakjötkvótans, 84% af svínakjöti, 37% af alifuglakjöti, 10% af þurrkuðum og reyktum skinkum, 24% af pylsunum og 5% af tollkvóta fyrir eldaða kjötvöru.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að þessi mikli innflutningur bænda og afurðastöðva í íslenskum landbúnaði á erlendu kjöti setji málflutning um ætlaða heilsufarsvá sem fylgi kjötinnflutningi í nýtt ljós. 

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags Atvinnurekenda.
„Þetta segir okkur að þeir hafa engar áhyggjur af þeim hræðsluáróðri, leyfi ég mér að segja, sem hefur verið hafður í frammi, um að innflutningur á kjöti geti verið hættulegur heilsu fólks. Þetta er málflutningur sem að forysta Bændasamtakanna og talsmenn sumra afurðastöðva hafa haft í frammi en þarna sýnist mér að forystan segi eitt en félagsmennirnir geri annað. Og það er þannig að það þarf ekki að hafa áhyggjur af innflutningi á kjöti hvað varðar heilsu manna og dýra. Það er búið að sýna fram á það og reynsla annarra ríkja, til dæmis frá Noregi, sýnir okkur það líka,“ segir Ólafur Stephensen. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×