Viðskipti innlent

Fækkun um 40 á einu ári hjá Plain Vanilla: Fyrirtækið tók meðvitað mikla áhættu

Birgir Olgeirsson skrifar
Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands, segir of mikið í lagt að líta á niðurskurð á Plain Vanilla sem einhverjar ófarir.
Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands, segir of mikið í lagt að líta á niðurskurð á Plain Vanilla sem einhverjar ófarir. Vísir
„Það er kannski eitthvað sem er rétt að hafa í huga að fólk dragi ekki of miklar ályktanir af þessari einu uppsögn,“ segir Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands, um fjöldauppsögnina hjá tölvuleikaframleiðandanum Plain Vanilla, framleiðanda QuizUp-appsins, fyrr í dag þar sem stöðugildum hjá fyrirtækinu var fækkað um rúman þriðjung, eða 27 talsins. 

Fyrirtækið byrjaði með fjóra starfsmenn árið 2012. Þegar QuizUp-appinu var hleypt af stokkunum í nóvember 2013 voru starfsmennirnir ekki nema 16. Sumarið eftir voru þeir 40 og ári síðar, í júní 2015 þegar þróunarstarfið náði hámarki, urðu þeir 86 talsins. Í dag starfa um fjörutíu hjá fyrirtækinu en stefnan er sett á að fyrirtækið skili hagnaði á árinu með því að afla meiri tekna og með samrekstri við tölvuleikjaframleiðandann Glu Mobile Inc sem fjárfesti í Plain Vanilla fyrir 7,5 milljónir Bandaríkjadala í upphafi árs, sem samsvarar tæpum einum milljarði króna. 

Stefnt að stöndugu fyrirtæki á heimsmælikvarða

Plain Vanilla hefur verið á vegferð með það að markmiði að verða stöndugt fyrirtæki, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur á heimsmælikvarða. Það ætti ekki að koma fólki á óvart að það séu miklar áskoranir við það og það sé ekki bein braut sem liggur þar fyrir. Við höfum séð það fyrir hjá öðrum fyrirtækjum,“ segir Magnús Þór og tekur íslenska tölvuleikjaframleiðandann CCP sem dæmi sem lagði niður 49 störf árið 2014. 

Magnús Þór segir Plain Vanilla hafa tekið mikla áhættu á sínum tíma þegar fyrirtækið hafnaði tólf milljarða yfirtökutilboði bandaríska tölvuleikafyrirtækisins Zynga Games árið 2013. Fyrirtækið tók þess í stað inn mikið fé í formi hlutafjár, fjölgaði starfsmönnum og reyndi að stækka vöruna. Greint var frá því á ársfundi íslenskra leikjaframleiðenda fyrir tuttugu dögum að fjárfest hafi verið fyrir um fimm milljarða króna í Plain Vanilla frá stofnun þess.




Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla.Vísir/valli
Tóku meðvitaða áhættu

Hann segir of mikið að líta á þennan niðurskurð hjá fyrirtækinu sem einhverjar ófarir. Þá sé heldur vel í lagt að líta svo á stöðuna að það séu mistök að vera í nýsköpun þó fyrirtæki taki áhættu og þurfi svo að breyta stefnu, líkt og Plain Vanilla er að einhverju leyti að gera í dag með þróun QuizUp-sjónvarpsþáttarins í samvinnu við NBC-sjónvarpsstöðina í Bandaríkjunum.

„Það var alveg skýrt að þessi áhætta var meðvituð og ég geri ekki ráð fyrir öðru en menn hafi áttað sig á því og fjárfestarnir gerðu sér klárlega grein fyrir því að þetta væri áhætta,“ segir Magnús Þór og talar þar um fjárfestana Tencent Holdings og Sequoia Capilta sem leiddu endurfjármögnun Plain Vanilla í lok árs 2013 upp á 22 milljónir dollara.

75 prósent af áhættufjárfestingu tapast

Magnús Þór segir að það hafi verið gaman að fylgjast með þróun Plain Vanilla, fyrirtækið hafi staðið sig að mörgu leyti vel. Hann segist þó hafa verið hugsi vegna umfjöllunarinnar um fyrirtækið, hún hafi að mörgu leyti verið á þann veg að fyrirtækið væri búið að „meika
  það “ eins og oft er sagt.

„Það hefur verið fjallað svolítið um það í umfjöllun um Plain Vanilla að þetta væri fyrirtæki sem myndi lifa næstu hundruð árin og einmitt af þeirri ástæðu yrði það neikvætt ef það gengi ekki upp. Tölfræðin segir að fyrirtæki sem taka inn áhættufjárfestingu, af þeirri stærðargráðu sem Plain Vanilla tók inn, 75 prósent af slíkum fjárfestingum tapast að einhverju leyti. Fjárfestarnir fá ekki sína peninga til baka. Þannig að þetta eru fjárfestar sem gera sér fullkomlega grein fyrir því hvað þeir eru að gera. Það er þá spurning hvort þeir sem horfa á þetta utan frá hvort þeir átti sig á því,“ segir Magnús Þór. 

Fjárfesta buðu einkaþotur til að hafa gaman

Plain Vanilla var stofnað árið 2010 og kynnti leikinn The Moogies til sögunnar árið 2011. Leikurinn hlaut ekki góðar viðtökur og var þá leitað á ný mið. Útkoman varð QuizUp sem naut töluverðra vinsælda og er í dag með um þrjátíu milljónir notenda.

Hróður Plain Vanilla jókst hratt og lýsti Þorsteinn Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, því í samtali við Jón Ársæl í Sjálfstæðu fólki að erlendir fjárfestir hefðu sýnt mikinn áhuga og buðust jafnvel til að senda einkaþotur til Íslands til að flytja hann til Las Vegas í Bandaríkjunum til að hafa gaman.



Þá markaðssetti fyrirtækið sig sem besta vinnustað í heimi þar sem kokkur frá Argentínu steikhúsi eldaði mat fyrir starfsmenn fjóra daga vikunnar. Þar að auki voru starfsmenn sagðir allar þær Apple-vörur sem þeir þurfa, eins og tölvur og síma. Einnig ókeypis líkamsræktarkort og eins mikla kókómjólk og ávexti og þeir gátu í sig látið í vinnunni.

Sjá einnig: Töluverð fríðindi fylgja starfi hjá Plain Vanilla

Fókusinn á Bandaríkin


Í lok árs 2014 var boðuð uppfærsla á QuizUp sem átti að skila Plain Vanilla tekjum af leiknum. Leiknum var á vissan hátt breytt í samfélagsmiðil sem átti að keppa við risa á borð við Facebook og Twitter

Samkvæmt tilkynningu sem barst frá fyrirtækinu í dag vegna þeirra uppsagna sem það réðist í þá er aðaláherslan lögð á QuizUp-sjónvarpsþáttinn sem sýndur verður í Bandaríkjunum. Ætlar Plain Vanilla að auka umsvif sín í Los Angeles þar sem verið er að leggja lokahönd á spurningaþáttinn Quiz Upp í myndveri sjónvarpsrisans NBC. Stefnt er að því að fyrsti þátturinn fari í loftið í september en markmiðið með honum er að áhorfendur heima í stofu keppi við keppendur í sjónvarpssal í gegnum QuizUp-appið.


Tengdar fréttir

Fimm milljarðar króna í Plain Vanilla frá 2011

Gríðarleg gróska ríkir hjá leikjaframleiðendum á Íslandi. Forstjóri Plain Vanilla segir tíðarandabreytingu í fjárfestingaumhverfinu í Kísildal; meiri áhersla sé nú lögð á tekjur og hagnað.

Íslensku starfsmennirnir komnir heim

Skrifstofa QuizUp í New York mun koma til með að verða lokað í kjölfar fjárfestingar bandaríska tölvuleikjaframleiðandans Glu Mobile í Plain Vanilla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×