Kosningar 2007

Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn gerir stofnun hers að kosningamáli

Sjálfstæðisflokkurinn hefur valið að gera stofnun hers að kosningamáli segir Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, um tillögur Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um 240 manna lið varalögreglu sem kynntar voru í gær. Hann kallar tillögurnar tindátaleik fyrir fullorðna.

Innlent
Fréttamynd

Kynntu aðgerðaáætlun í málefnum barna og barnafólks

Samfylkingin kynnti í dag ítarlega aðgerðaáætlun í málefnum barna og barnafólks undir yfirskriftinni Unga Ísland. Tilgangurinn er sá að vekja athygli á mikilvægi barnastefnu og vill Samfylkingin að málefni barna verði í forgangi á verkefnalista næstu ríkisstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Seðlabankinn hvetur til varfærni

Seðlabankinn telur að ef farið verði of geyst í stóriðjuframkvæmdir á næstu árum geti það leitt til hærri verðbólgu og stýrivaxta og því brýnt að frekari uppbygging taki mið af því. Bankinn ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í morgun en varar við að áframhaldandi þensla geti þvingað bankann til vaxtahækkana. Stýrivextir eru nú 14,25 % og hafa verið það frá því í desember.

Innlent
Fréttamynd

Vísir opnar kosningavef

Sérstakur vefur vegna Alþingiskosninganna 2007 hefur verið opnaður á hér á Vísi. Vefurinn er nýstárlegur á margan hátt. Notendur geta til dæmis spáð í spilin varðandi fylgi og þingmannafjölda einstakra framboða á gagnvirkan hátt miðað við kannanir eða eigin forsendur og séð niðurstöðurnar jafnóðum birtar með grafískum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Björn vill stofna 240 manna varalið lögreglu

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ætlar sér að stofna 240 manna launað varalið lögreglu sem hægt yrði að kalla út þegar á þyrfti að halda. Þetta kom fram í erindi sem Björn hélt á fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu.

Innlent
Fréttamynd

Baráttusamtökin bjóða fram í öllum kjördæmum

Nýtt framboðsafl, Baráttusamtökin, sem berjast fyrir hagsmunum aldraðra, öryrkja og breyttu skipulagi borgarinnar, býður fram í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í vor. Ein meginkrafan er að lágmarksbætur verði 210 þúsund krónur á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Heilbrigðismálin verða aðalmálið

Umhverfismál virðast ekki eins ofarlega í huga kjósenda og ætla mætti af umræðunni. Samkvæmt vefkönnun Reykjavík síðdegis á Bylgjunni hér á vísir.is eru það heilbrigðismálin sem flestir vilja að verði aðalmál Alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Sýnir kosningafundi vikulega

Fréttastofa Stöðvar tvö og Ísland í dag efna til almennra borgarafunda í öllum kjördæmum og sýna í beinni útsendingu hvern miðvikudag fram að kosningum 12. maí. Fyrsti fundurinn verður í Stykkishólmi í kvöld fyrir Norðvesturkjördæmi og næstu vikur ferðast fréttastofan eftir kjördæmum réttsælis kringum landið.

Innlent
Fréttamynd

Ómar í hópi foringjanna

„Ómar var hrókur alls fagnaðar. En það kemur kannski engum á óvart. Hann fór með tuttugu vísur á þeim klukkutíma sem þessi taka tók. Og samdi meira að segja eina á staðnum,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri Krónikunnar.

Innlent
Fréttamynd

Grétar Mar leiðir listann

Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og varaþingmaður, mun leiða lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þetta var kynnt á fundi í Fræðasetrinu í Sandgerði í gær.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnmáflokkarnir setja þak á auglýsingar

Stjórnmálaflokkarnir sem eiga sæti á Alþingi hafa gert með sér samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda kosninganna. Samkomulagið er afrakstur viðræðna milli flokkanna undanfarnar vikur. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsinga í dagblöðum og ljósvakamiðlum má að hámarki ná 28 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Tveir stjórnarkostir langvinsælastir

Jafn margir segjast nú vilja að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur haldi áfram í ríkisstjórn og að Samfylking og vinstri grænir myndi ríkisstjórn. Rúm þrjátíu prósent nefna hvorn valmöguleika. Aðrir kostir eru mun óvinsælli.

Innlent
Fréttamynd

Óskar Bergsson kosningastjóri

Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi hefur verið ráðinn kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík. Auk þess að vera varaborgarfulltrúi hefur hann sinnt starfi formanns framkvæmdaráðs Reykjavíkur frá árinu 2006.

Innlent
Fréttamynd

Misskilningur Landssambands eldri borgara

Stjórn Landsambands eldri borgara viðurkennir nú að heilbrigðisráðherra hafi farið að lögum um úthlutun Framkvæmdasjóðs og að málin hafi verið rædd á fundi sjóðsstjórnarinnar. Ásakanir um frjálslega meðferð ráðherra á fé sjóðsins hafi verið misskilningur.

Innlent
Fréttamynd

Leynifundur D og VG er slúður segir Steingrímur J.

Steingrímur J. Sigfússon segir það rakalausan þvætting og slúður að hann og Geir Haarde hafi rætt mögulega stjórnarmyndun eftir kosningar á leynifundi í liðinni viku. Sagan sé runnin undan rifjum spunameistara framsóknarmanna og sé í raun alvarleg óheilindaásökun á Geir H. Haarde. Um helgina hefur verið mikið slúðrað um meintan leynifund Geirs Haarde og Steingríms J. og hafa fylgt spekúlasjónir um að þar væru menn að kanna grunn að mögulegu stjórnarsamstarfi eftir kosningar. Þetta segir Steingrímur að sé rakalausan þvætting sem runnin sé undan rifjum spunastráka Framsóknarflokksins. Þar vísar Steingrímur til bloggsíðu Péturs Gunnarssonar sem birti fyrst þessa sögu - en Pétur hefur gengt trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Segir Steingrímur að þetta feli í sér alvarlega ásökun á Geir Haarde þar sem hann sé í raun borin þeim sökum að hafa rofið trúnað við Framsóknarflokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Segir ESB-aðild handan við hornið

Ísland mun ganga í Evrópusambandið fyrr en síðar, ekki síst vegna vaxandi þrýstings atvinnulífsins. Þetta er skoðun Jóns Baldvins Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ómar telur víst að fylgið tvöfaldist að minnsta kosti

Ómar Ragnarsson telur að Íslandshreyfingin eigi að geta fengið að minnsta kosti tíu prósenta fylgi í kosningunum í vor. Hann segir að flokkurinn taki fyrst og fremst fylgi frá Sjálfstæðisflokknum og vinstri grænum, eins og sjáist á könnun Fréttablaðsins í dag, sem gefur flokknum fimm prósenta fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Guðjón Arnar ekki sáttur

Guðjón A Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins er ekki ánægður með útkomu flokksins í könnun Fréttablaðsins í dag, þar sem flokkurinn mælist með 4,4 prósent og kemur ekki manni á þing. Þegar flokkurinn mældist hvað hæst í könnunum fór hann vel yfir tíu prósent, en á þeim tíma stóð yfir hávær umræða um innflytjendamál að frumkvæði forystumanna flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Íslandshreyfingin með 5% og dregur saman með Samfylkingu og Vg

Fylgi Samfylkingar eykst aðeins, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en Framsóknarflokkur stendur í stað. Fimm prósent segjast myndu kjósa Íslandshreyfinguna. Fylgi annarra flokka dalar. Þetta er fyrsta könnunin eftir að Íslandshreyfingin boðaði framboð sitt. Hún fengi þrjá þingmenn.

Innlent
Fréttamynd

Þarf að taka til í skrám

„Þessi mikli fjöldi hlýtur að skýrast af því að skrár þeirra flokka sem eiga sér langa prófkjörshefð eru orðnar mjög bólgnar og það þarf að taka til í þeim,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingar­innar – græns framboðs, um úttekt Fréttablaðsins á flokkskrám stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru rúmlega 85 þúsund Íslendingar skráðir í stjórnmálaflokk.

Innlent
Fréttamynd

Íslandshreyfingin með fimm prósent

Fimm prósent segjast myndu kjósa Íslandshreyfinguna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins sem er fyrsta könnunin sem gerð er eftir að flokkurinn kynnti framboð sitt. Ómar Ragnarsson segir þetta ánægjulegar niðurstöður.

Innlent
Fréttamynd

40% kjósenda skráðir í stjórnmálaflokk

Áttatíu og fimm þúsund manns eru skráðir í stjórnmálaflokka samkvæmt upplýsingum úr flokksskrám stjórnmálaflokkanna. Fréttablaðið segir frá þessu í dag. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir tölurnar gefa til kynna að fleiri séu skráðir í stjórnmálaflokka hér á landi en víðast hvar annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Frambjóðendur VG á ferð um Danmörku og Svíþjóð

Þrír frambjóðendur Vinstri - grænna fyrir þingkosningarnar í vor ætla um helgina að heimsækja Suður-Svíþjóð og Danmörku til að kynna stefnumál flokksins fyrir Íslendingum þar. Þetta eru þau Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson.

Innlent
Fréttamynd

VG enn í sókn

Vinstri grænir fengju 17 þingmenn, ef kosið yrði núna, samkvæmt könnun Gallúps fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Það er fjórum þingmönnum meira en Samfylkingin fengi, en átta þingmönnum minna en Sjálfstæðisflokkurinn, sem fengi 25 menn. Framsóknarflokkurinn fengi fimm þingmenn og Frjálslyndir þrjá. Samkvæmt þessu fengju ríkisstjórnarflokkarnir ekki meirihluta á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin vill fella niður innflutningsvernd á landbúnaðarvörur

Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill ganga skrefi lengra til að lækka matarverð hér á landi með því að fella niður innflutningsvernd á landbúnaðarvörur. Allir flokkar, nema Sjálfstæðisflokkur, eru hins vegar á móti sölu léttvíns í matvöruverslunum. Skiptar skoðanir eru um málið innan Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Íslandshreyfingin - lifandi land kynnir framboð sitt í dag

Ómar Ragnarsson og Margrét Sverrisdóttir munu í dag kynna framboð sitt til Alþingis á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu. Fram kemur í fréttatilkynningu að framboðið hafi hlotið nafnið „Íslandshreyfingin - lifandi land" og hafi verið úthlutað listabókstafnum I. Áherslumál framboðsins verða kynnt á fundinum en áætlað er að bjóða fram í öllum kjördæmum. Fundurinn verður sem fyrr segir í Þjóðmenningarhúsinu og hefst klukkan tvö síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Fundum Alþingis frestað fram yfir kosningar

Samþykkt var að fresta fundum Alþingis klukkan hálfeitt í nótt fram yfir þingskosningar eftir maraþonfundi sem staðið höfðu frá því klukkan hálftíu í morgun. 45 frumvörp urðu að lögum í dag og níu þingsályktunartillögur voru samþykktar.

Innlent