Innlent

Fundum Alþingis frestað fram yfir kosningar

MYND/Vilhelm

Samþykkt var að fresta fundum Alþingis klukkan hálfeitt í nótt fram yfir þingskosningar eftir maraþonfundi sem staðið höfðu frá því klukkan hálftíu í morgun. 45 frumvörp urðu að lögum í dag og níu þingsályktunartillögur voru samþykktar.

 

Meðal frumvarpa sem urðu að lögum voru vegalög, lög um sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands á næsta ári, lög um Náttúruminjasafn Íslands sem eitt þriggja höfuðsafna, lög um losun gróðurhúsalofttegunda og lög um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá voru samþykktar breytingar á samkeppnislögum sem kveðar skýrar á um ábyrgð stjórnenda fyrirtækja sem verða uppvís að brotum á samkeppnislögum og viðurlög við umferðarlagabrotum hert.

 

Enn fremur var samþykkt frumvarp til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá en markmið þeirra er að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi. Jafnframt var samþykkt að breyta lögum um vörugjald af ökutækjum á þann hátt að vörugjald af metangasbílum er fellt niður fram til ársloka 2008. Þingið samþykkti einnig heildarlög um íslensku friðargæsluna.

 

Meðal þingsályktunartillagna sem þingið samþykkti var tillaga að samgönguáætlun fyrir árin 2007-2010, tillaga um skipulagða krabbameinsleit í ristli og önnur um að þjóðfáni Íslendinga skuli vera í þingsal.

 

Til stóð að ljúka þingstörfum um kvöldmatarleytið en þau drógust fram eftir kvöldi meðal annars vegna deilna um þróun barnabóta hér á landi. Þar sem þingfundum hefur verið frestað fram yfir þingkosningar sem fram fara 12. maí má segja að kosningabarátta flokkanna hefjist nú með formlegum hætti.

 

Alls voru afgreidd 114 frumvörp sem lög á þessu þingi og 29 þingsályktunartillögur eftir því sem Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, greindi frá í kvöld. Benti hún á í ræðu sem hún hélt í þinglok að gera þyfti frekari breytingar á þingsköpum en samþykktar voru í dag og efla þekkingu nemenda á löggjafarstörfum þingsins. Þá ítrekaði hún þá skoðun sína að Alþingi ætti að hafa hús á Þingvöllum til að geta tekið á móti erlendum gestum enda væri Alþingi tengt Þingvöllum órjúfanlegum böndum.

 

Sólveig þakkaði þeim fjölmörgu þingmönnum sem ákveðið hafa að gefa ekki aftur kost á sér til þingstarfa samstarfið en hún hyggst sjálf hætta þingmennsku nú eftir 16 ára setu á Alþingi.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×