Kosningar 2007

Fréttamynd

Hverjir eru nýju þingmennirnir?

Þó nokkrir þingmenn eru að koma nýjir á þing. Flestir þeirra koma frá Vinstri hreyfingunni grænt framboð og Sjálfstæðisflokknum. Einn þeirra kemur þó frá Framsóknarflokknum.

Innlent
Fréttamynd

Telur frjálslynda eiga mikið inni

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir stöðuna núna vera vonbrigði fyrir flokkinn. Hann gerir sér hins vegar vonir um að staðan muni breytast þegar líða tekur á nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Jónína ekki inni þegar búið er að telja í Reykjavík suður

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra er ekki inni þegar búið er að telja öll atkvæði í hennar kjördæmi, Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls voru 43.391 manns á kjörskrá í kjördæminu og kusu 35.284 sem þýðir að kjörsóknin var 81,3 prósent. Ríkisstjórnin er áfram fallin.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin fellur á ný

Eftir að lokatölur voru birtar í Reykjavík-suður er ljóst að Jónína Bjartmarz er fallin af þingi. Ríkisstjórnin er ennþá fallin og hefur þingmannafjöldi ekki breyst síðan síðustu tölur komu. Stuttu áður birtust tölur úr Suðvesturkjördæmi og Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Siv Friðleifsdóttir eru enn úti.

Innlent
Fréttamynd

Geir talar fyrst við framsókn

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir eðlilegt að Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn ræði fyrst saman fari svo að ríkisstjórnin haldi velli. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, útilokar ekki áframhaldandi stjórnarsamstarf.

Innlent
Fréttamynd

Vona að ríkisstjórnin haldi áfram að falla

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, skákfrömuður sem er í öðru sæti á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi, segist vona að ríkisstjórnin haldi áfram að falla í nótt en tvísýnt hefur verið um það. Ríkisstjórnin heldur sem stendur velli.

Innlent
Fréttamynd

3 atkvæði í að stjórnin falli

Samkvæmt nýjustu tölum úr Norðausturkjördæmi er Sjálfstæðisflokkur að bæta við sig einum manni frá síðustu kosningum og Framsókn að tapa einum manni. Enn sem komið er heldur ríkisstjórnin en ef Framsókn bætir við sig þremur atkvæðum í kjördæminu, umfram aðra flokka, þá fellur ríkisstjórnin vegna niðurröðunar jöfnunarþingmanna.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin heldur velli

Ríkistjórnin heldur velli samkvæmt nýjustu tölum sem birtar voru í Suðvesturkjördæmi. Þar færi Sjálfstæðisflokkurinn 42,6 prósent og sex þingmenn og nær þingmanni af Samfylkingunni.

Innlent
Fréttamynd

Ólíklegt að Framsókn verði áfram í ríkisstjórn

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra og oddviti framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður, telur ólíklegt að Framsóknarflokkurinn fari aftur í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum ef stjórnin heldur naumlega velli.

Innlent
Fréttamynd

Geir getur valið

Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, sagði í samtali við Vísi að Sjálfstæðisflokkurinn, miðað við núverandi tölur, standi með pálmann í höndunum og geti valið sér samstarfsflokk í ríkisstjórn ef Framsókn ætlar sér ekki að starfa áfram í ríkisstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Árni þakklátur fyrir stuðninginn

Árni Johnsen, annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sagðist þakklátur fyrir þann stuðning sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í kjördæminu, en samkvæmt nýjustu tölum fær hann 37 prósent atkvæða og fjóra þingmenn.

Innlent
Fréttamynd

Vantar 294 atkvæði til þess að ríkisstjórnin haldi velli

Samkvæmt nýjustu tölum þarf Framsóknarflokkurinn aðeins 294 atkvæði í viðbót til þess að ýta út þingmanni Samfylkingarinnar. Þá væri Framsókn með 8 menn og ríkisstjórnin myndi halda. Ljóst er að mjög mjótt er á mununum og viðbúið að staðan geti breyst um leið og nýjar tölur koma inn.

Innlent
Fréttamynd

Versta áfall sem við höfum orðið fyrir

Þetta er versta áfall sem við höfum orðið fyrir sagði Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, í myndveri Stöðvar 2 í kvöld. Flokkurinn nýtur nú fylgis 11,5 prósenta landsmanna og fær 7 þingmenn samkvæmt nýjustu tölum.

Innlent
Fréttamynd

Sigur Vinstri grænna fellir ríkisstjórnina

Það er enginn maður glaðari en ég, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, skömmu eftir að hann lenti á Reykjavíkurflugvelli í kvöld en hann flaug þangað úr kjördæmi sínu, Norðausturkjördæmi. Steingrímur benti enn fremur á að sigur Vinstri grænna hefði fellt ríkisstjórnina.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn í erfiðleikum

Framsóknarflokkurinn er að tapa fylgi í flestum kjördæmum. Siv Friðleifsdóttir og Jónína Bjartmarz eru báðar úti samkvæmt þeim tölum sem við höfum núna. Jón Sigurðsson er enn inni í Reykjavík Suður en búast má við því að hann eigi eftir að detta inn og út í alla nótt.

Innlent
Fréttamynd

Vísbendingar, ekki niðurstöður

„Þetta eru vísbendingar en ekki niðurstöður,“ sagði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra eftir að aðrar tölur höfðu verið birtar í kjördæmi hennar, Kraganum. Samkvæmt þeim er hún á leið út af þingi fyrir Framsóknarflokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Eðlilegt að stjórnarandstaðan ræði saman

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir eðlilegt að stjórnarandstaðan ræði saman um mögulega stjórnarmyndun falli ríkisstjórnin í kosningunum. Hún segir fyrstu tölur vera betri en hún hafi þorað að vona.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnina vantar nokkuð upp á til að halda velli

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að staðan væri enn óljós eftir að fyrstu tölur höfðu verið birtar. Sjálfstæðisflokkurinn væri að bæta við sig frá síðustu kosningum en stjórnina vantaði hins vegar svolítið upp á til þess að halda velli.

Innlent
Fréttamynd

Náðum að halda umhverfisumræðunni gangandi

Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, sagði eftir að fyrstu tölur birtust að flokknum hefði tekist að halda umhverfisumræðunni gangandi í kosningabaráttunni en flokkurinn nær ekki inn manni á þing.

Innlent
Fréttamynd

Harla sátt með fyrstu tölur

„Við erum bara harla sátt,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri - grænna, eftir að fyrstu tölur voru birtar í kvöld. Katrín benti á að flokkurinn hefði bætt töluvert við sig en þingmönnum hans fjölgar úr fimm í níu og fær hann 13,7 prósenta fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Þetta er mjög mikið áfall

„Þetta er mjög mikið áfall,“ sagði Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, um fyrstu tölur í þingkosningunum en samkvæmt þeim hefur flokkurinn tapað fimm þingmönnum og mælist með 11,14 prósents fylgi. Fær hann sjö þingmenn og er Jón inni.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin fallin samkvæmt fyrstu tölum

Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt fyrstu tölum úr fimm kjördæmum en búið er að telja 82.589 atkvæði. Framsóknarflokkurinn mælist með 10 prósenta fylgi og fær sex þingmenn en Sjálfstæðisflokkurinn 24 þingmenn og mælist með 36 prósenta fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Móðurhjartað slær alltaf á réttum stað

Edda Guðmundsdóttir, eiginkona Steingríms Hermannssonar og móðir Guðmundar Steingrímssonar, sagði í viðtali í kosningasjónvarpi Stöðvar tvö að móðurhjartað slægi alltaf á réttum stað þegar hún var spurð að því hvorn hún hefði nú kosið.

Innlent
Fréttamynd

Nokkuð minni kjörsókn í Reykjavík norður en suður

Kjörsókn í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 21 var 64,94 prósent sem er tæplega níu prósentustigum minna en á sama tíma fyrir fjórum árum. Alls höfðu 28.425 kosningabærra manna í kjördæminu neytt atkvæðisréttar síns í kjördæminu klukkan 21.

Innlent
Fréttamynd

Óánægja með vinnubrögð yfirkjörstjórnar á Suðurlandi

Fyrr í dag kærðu vinstri grænir, samfylkingar- og framsóknarmenn Sjálfstæðismenn á Suðurlandi fyrir að miðla upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. Sigurður Vilhelmsson, umboðsmaður Framsóknarflokksins í Vestmannaeyjum er afar ósáttur með vinnubrögðin í málinu og átelur yfirkjörstjórn fyrir að taka ekki efnislega á kærunni.

Innlent
Fréttamynd

Kjörsókn nokkuð dræmari á höfuðborgarsvæðinu

Kjörsókn í þeim þremur kjördæmum sem ná yfir höfuðborgarsvæðið er nokkru minni en fyrir fjórum árum. Þannig höfðu 27.487 kosið í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 20 sem er 62,79 prósenta kjörsókn en á sama tíma árið 2003 höfðu 70,71 prósent kjósenda nýtt atkvæðisrétt sinn.

Innlent