Innlent

Ríkisstjórnin fellur á ný

Þungt var yfir Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra á kosningavöku Framsókn í kvöld.
Þungt var yfir Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra á kosningavöku Framsókn í kvöld. Mynd: Hrönn

Eftir að lokatölur voru birtar í Reykjavík-suður er ljóst að Jónína Bjartmarz er fallin af þingi. Ríkisstjórnin er ennþá fallin og hefur þingmannafjöldi ekki breyst síðan síðustu tölur komu. Stuttu áður birtust tölur úr Suðvesturkjördæmi og Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Siv Friðleifsdóttir eru enn úti.

Fylgi flokkanna á landsvísu er á þessari stundu sem hér segir:

Framsókn (B) - 11,5% - 7 þingmenn

Sjálfstæðisflokkur (D) - 36,2% - 24 þingmenn

Frjálslyndir(F) - 6,9% - 4 þingmenn

Íslandshreyfingin (I) - 3,4% - Engir þingmenn

Samfylkingin (S) - 27,8% - 19 þingmenn

Vinstri grænir (V) - 14,2% - 9 þingmenn

Formenn flokkanna segja enn ótímabært að ræða um stjórnarmyndanir þar sem þeir segja að enn geti allt gerst. Ingibjörg Sólrún segist ánægð með niðurstöðu kosninganna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×