Noregur

Fréttamynd

Passaði sig á því að skjóta alla tvisvar

Nú er talið að minnsta kosti nítíu og átta manns hafi fallið í sprengju- og skotárásunum í Noregi í gær og um tuttugu manns eru alvarlega sárir. Skýrari mynd er að fást af atburðum gærdagsins.

Erlent
Fréttamynd

Karl hvetur presta til að minnast á norsku þjóðina á morgun

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sendi í dag prestum bréf og hvatti til þess að norsku þjóðarinnar sé sérstaklega minnst í guðsþjónustum morgundagsins. Sérstök minningarathöfn verður einnig í Dómkirkjunni í Reykjavík í guðsþjónustu klukkan 11 þar sem biskup Íslands predikar og sendifulltrúi Norðmanna á Íslandi, Silje Arne Kleiv flytur ávarp.

Innlent
Fréttamynd

Jón Gnarr sendir samúðarkveðju

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, hefur sent borgarstjóra Oslóarborgar, Fabian Stang og sendiherra Noregs á Íslandi, dag Vernö Holter, samúðarkveðjur og boð um alla þá aðstoð sem gæti hugsanlega komið að gagni vegna atburðana í Noregi í gær. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að vinátta Reykjavíkur og Oslóar eigi sér langa hefð og eru stöðug og náin samskipti milli borganna tveggja.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk hjúkrunarkona á vaktinni í Osló

"Ástandið var mjög "kaótískt" til að byrja með, fyrst eftir að fréttist af sprengingunni í Osló voru allir mjög sjokkeraðir og síðan enn frekar þegar fréttist af skotárásinni," segir Anna María Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sem vinnur á spítala í Sandvika sem er skammt frá Osló.

Innlent
Fréttamynd

Skipulagði voðaverkin í litlu einbýlishúsi

Norskir fjölmiðlar hafa birt mynd af húsinu sem fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik bjó í og skipulagði voðaverkin sem hann framdi í gær. Hann sprengdi upp bifreið í miðborg Oslóar og skaut svo ungmenni á eyjunni Útey sem er skammt frá Osló. Norska lögreglan hefur staðfest að minnsta kosti 92 hafi látið lífið.

Erlent
Fréttamynd

Þetta var fjöldamorðinginn að hugsa

Skrif Anders Behring á norska öfgavefinn document.no hafa verið þýdd á ensku. Þar kemur fram djúpstætt hatur hans á fjölmenningarstefnu og Íslam sem hann segir vera að taka yfir Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Hver er Anders Breivik?

Anders Behring Breivik, norski byssumaðurinn sem handtekinn var í gær og er talinn bera ábyrgð bæði á sprengjuárásinni í Osló og skotárusunum í Útey, hlaut þjálfun í norska hernum, átti fjölda vopna og er sagður hægrisinnaður trúarofstækismaður.

Erlent
Fréttamynd

Jóhanna - Hugur okkar hjá norsku þjóðinni

"Þetta eru svo hörmulegir atbuðir að engin orð fá því lýst. Við finnum innilega til með norsku þjóðinni á þessum hræðilegu tímum. Hugur okkar er með Norðmönnum og ekki síst fórnarlömbum og aðstandendum þeirra sem eru kannski að ganga í gegnum erfiðustu tíma sem Norðmenn hafa gengið í gegnum,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Skaut á fólk sem reyndi að synda af eyjunni

Nýjustu fréttir norska ríkissjónvarpsins herma að annar maður hafi verið handtekinn í tengslum við fjöldamorðin á Útey í gær. Norska lögreglan staðfesti á blaðamannafundi í morgun að Breivik, sem handtekinn var í gær, hafi átt sér vitorðsmann.

Erlent
Fréttamynd

Fórnarlamba minnst í Eyjum

Stafkirkjan á Heimaey verður opin í dag og hægt verður að minnast þeirra sem misst hafa lífið í árásunum í Osló og Útey í gær. Kirkjan er opin frá klukkan 11 til 17, flaggað verður í hálfa stöng og hægt er að rita samúðarkveðjur í sérstaka minningarbók þar í dag og næstu daga.

Innlent
Fréttamynd

Ólafur Ragnar: Hugur Íslendinga hjá Norðmönnum

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun samúðarkveðjur til Haraldar Noregskonungs og norsku þjóðarinnar. Í kveðjunni lýsti forseti djúpri samúð allra Íslendinga vegna hinna skelfilegu atburða í Noregi. Hugur okkar væri hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hefðu og við vonuðum að þau hefðu styrk til að glíma við hina miklu sorg.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanlegt að annar byssumaður hafi verið á eyjunni

Fjölmörg vitni á eyjunni Útey segjast handviss um að byssumaðurinn á eyjunni í gær hafi ekki verið einn að verki þegar hann varð að minnsta kosti áttatíum og fjórum að bana. Þau segja að skothljóð hafi heyrst á mismunandi stöðum á eyjunni.

Erlent
Fréttamynd

Við erum öll Norðmenn

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lofaði í gær að Norðurlöndin myndu standa saman eftir árásirnar í gær. Bildt tjáði sig á Twitter og sendi samúðarkveðjur til Norðmanna og bauð fram aðstoð. "Við erum öll Norðmenn,“ sagði hann jafnframt.

Erlent
Fréttamynd

Svona lítur hann út

Maðurinn sem talinn er eiga sök á fjöldamorðunum í Noregi í gær heitir Anders Behring Breivik. Hann er róttækur hægrimaður, ofsatrúarmaður og jafnvel talinn tengjast nýnasistasamtökum.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur Íslendinga til að flagga í hálfa stöng

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að hugur Íslendinga sé hjá norsku þjóðinni sem hafi orðið fyrir gríðarlegu áfalli í gær. Hún hafði samband við Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í gær og bauð honum alla mögulega aðstoð og kom til hans samúðarkveðjum.

Innlent
Fréttamynd

Grafalvarlegt mál en yfirvegun mikilvæg

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun eiga fund með íslenskum lögregluyfirvöldum og fara yfir tíðindin frá Ósló. Hann segir að stjórnvöld fylgist vel með málinu fyrir milligöngu lögregluyfirvalda. Málið sé grafalvarlegt og áhyggjuefni að slíkt skuli gerast.

Innlent
Fréttamynd

Mannskæðasta árás á Noreg frá stríði

Lögregla hafði í gærkvöldi staðfest að tíu manns hefðu látist í skotárás í Útey, skammt vestan Óslóar í gær. Vitni segja að á bilinu tuttugu til þrjátíu hafi látist. Lögregla telur að árásin þar og sprengjuárás sem varð skömmu áður í Ósló tengist. Sprengiefni fannst einnig á eyjunni.

Erlent
Fréttamynd

Óslóarbúar harmi slegnir

Rögnvaldur S. Reynisson, starfsmaður RARIK, er staddur í Ósló í sumarfríi. Þegar sprengingin varð var hann í miðborg Óslóar skammt frá skrifstofu Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Rögnvaldur segir það óskemmtilega lífsreynslu að verða vitni að atburðum sem þessum.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er mikill sorgardagur“

"Þetta mun sennilega breyta þeirri sýn sem við Norðmenn höfum haft á heiminn,” segir Tor Magnus Horten, arkitektanemi í Ósló. "Maður getur kannski gert sér það í hugarlund núna hvernig Óslóarbúum leið þegar Þjóðverjar hertóku borgina 9. apríl árið 1940.“

Innlent
Fréttamynd

Herinn vaktar miðborgina

Að minnsta kosti sjö létust og tíu eru alvarlega slasaðir eftir að mikil sprenging varð í miðborg Óslóar síðdegis í gær, í miðju hverfi opinberra stjórnarbygginga þar sem nokkur ráðuneyti hafa aðsetur ásamt hæstarétti landsins og lögreglunni.

Erlent
Fréttamynd

Í það minnsta 91 fallinn í Noregi

Norska lögreglan hefur staðfest að a.m.k. 91 hafi fallið í hryðjuverkaárásunum í Noregi í gær. Þar af féllu 84 í skotárásinni í Útey. Þetta staðfesti lögreglustjórinn Øystein Mæland á blaðamannafundi um klukkan hálffjögur í nótt. Hann segir þó tölu látinna að öllum líkindum eiga eftir að hækka.

Erlent
Fréttamynd

Meintur byssumaður nafngreindur

Norska sjónvarpsstöðin TV 2 fullyrðir að Norðmaðurinn sem var handtekinn í dag fyrir skotárásina í Útey í Noregi heiti Anders Behring Breivik. Hann er sagður tilheyra hægriöfgahreyfingu á austurhluta Noregs. Hann er sagður vera skráður fyrir tveimur skotvopnum. Sjálfvirkri byssu og skammbyssu af gerðinni Glock. Maðurinn er grunaður um að hafa banað minnst 10 manns í Útey

Erlent
Fréttamynd

Sendiherrann í Noregi: Það setur að okkur óhug við tíðindin

"Það setur að okkur óhug við þessi miklu tíðindi. Þetta er í fyrsta skipti sem svo alvarlegt tilræði á sér stað í Noregi frá seinni heimsstyrjöldinni. Efst í huga okkar á þessari stundu er að ganga úr skugga um að engir Íslendingar hafi komið við sögu. Við munum hafa opið fram eftir svo lengi sem við teljum gagn að því,“ sagði Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Ósló, skömmu eftir hryðjuverkaárásina í gær.

Innlent
Fréttamynd

Staðfest að sprengja fannst í Útey

Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Húsleit hjá byssumanninum

Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni

Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk.

Erlent
Fréttamynd

Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag.

Innlent
Fréttamynd

Árásarmaðurinn er norskur

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag.

Erlent