Innlent

Þetta var fjöldamorðinginn að hugsa

Anders Behring. Mynd af facebook síður hans.
Anders Behring. Mynd af facebook síður hans.
Skrif Anders Behring á norska öfgavefinn document.no hafa verið þýdd á ensku. Þar kemur fram djúpstætt hatur hans á fjölmenningarstefnu og Íslam sem hann segir vera að taka yfir Evrópu.

Komið hefur fram víða í fjölmiðlum að Anders Behring var öfgamaður í skoðunum, þjóðernissinnaður og hataði fjölmenningu. Kanadíski blaðamaðurinn Doug Saunders hefur safnað saman og látið þýða skrif Anders, sem birtust á vefnum document.no. Sú vefsíða liggur nú niðri.

Skrif Anders Behring má lesa hér.

Í athugasemdunum skrifar Anders um muninn á nasisma, íslam og kommúnisma og segir að allar stefnur byggðar á hatri eigi að vera meðhöndlaðar á sama hátt. Hann bendir á að Íslamistar hafi valdið dauða 300 milljóna en nasistar 6- 20 milljóna.

Hann gagnrýnir innflytjendastefnu og Gro Harlem Brundtland og segir það fyrru að allir þeir sem séu með norskt vegabréfu geti talist norðmenn.

„... Which means that even Somali coach (with a Norwegian passport) who chew qat all day, banks send the wife and half the benefit of al-Shabaab should be viewed as a full Doe."

Og segir eitt stærsta vandamálið að eftir kalda stríðið hafi and-þjóðernissinnar og frjálslynt fólk komist í valdastöður í samfélaginu.

Skrif Anders gefa innsýn inn í huga hans þó skrifin varpi kannski ekki beinu ljósi á af hverju hann ákvað að skipta pennanum út fyrir hálfsjálvirk vopn og fremja fjöldamorð í Útey í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×