Viðskipti innlent

For­stjóri Play í­hugar að fljúga frekar til Ís­lands en frá

Árni Sæberg skrifar
Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play og einn stærsti einstaki hlutahafi þess.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play og einn stærsti einstaki hlutahafi þess. Vísir/Einar

Forstjóri Play hefur velt upp möguleikanum á því að koma á fót heimavelli annars staðar en á Íslandi, til dæmis á Spáni. Þannig væri hægt að fljúga frá Spáni til Íslands með spænska áhöfn. 

Þetta kom fram í samtali Einars Arnar Ólafssonar forstjóra við flugmiðilinn Flightglobal. Í frétt miðilsins segir að stefna Play sé að stækka varlega, hraður vöxtur bjóði hættu á aukinni samkeppni heim. Þar nefni Einar Örn írska risann á sviði lággjaldaflugs, Ryanair.

Hagkvæmt að fljúga frekar til Íslands

Haft er eftir Einari Erni að hagkvæmt gæti verið að fljúga frekar til Íslands en frá og nota til þess spænskar áhafnir og spænskt flugrekstrarleyfi.

„Ég hugsa að það gæti verið grundvöllur fyrir okkar næsta heimavelli. Við myndum einfaldlega fljúga til Íslands í stað þess að fljúga frá Íslandi, og kannski vaxa þaðan.“

Það gæti einnig boðið upp á möguleikann að fljúga aðrar leiðir en til og frá Ísland en það gæti aukið hættu á aukinni samkeppni. „Við myndum bara gera það ef við teldum okkur hafa réttu vöruna í höndunum.“

Íslenskir flugmenn á þokkalegum launum

Þá er haft eftir Einari Erni að á meðan auðvelt hafi verið að ráða flugþjóna hafi ráðning nægs fjölda flugmanna og -stjóra reynst Play óþægur ljár í þúfu.

„Íslenskur vinnumarkaður gerir það að verkum að við erum aldrei ódýrasti markaðurinn. Íslenskir flugmenn eru á mjög þokkalegum launum.“

Play hafi siglt á Bretlandsmið þegar íslenska flugmenn skorti. Þónokkrir breskir flugmenn séu innan raða félagsins, sem ýmist búa hér á landi eða ferðast milli landanna tveggja.


Tengdar fréttir

Far­þegum fjölgaði og sæta­nýting um 85 prósent

Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×