Vísir

Mest lesið á Vísi

Fréttamynd

Lög­reglan lofar góðu vegaeftirliti á Suður­landi í sumar

Lögreglustjórinn á Suðurlandi lofar góðu umferðareftirliti lögreglu á vegum svæðisins í sumar en umferð um Suðurland hefur aukist mikið síðustu mánuði.Samkvæmt upplýsingum úr sextán umferðarteljurum á þjóðvegi eitt hefur umferð um Suðurlandsveg aukist langmest upp á síðkastið enda mikill fjöldi ferðamanna, sem sækir Suðurland heim og ekur þá Suðurlandsveginn á sinni ferð.Lögreglan á Suðurlandi hefur sett sér það markmið að vera með mjög gott eftirlit á vegunum í sumar. Grímur Hergeirsson er lögreglustjóri á Suðurlandi.„Já, já, við reynum að skipuleggja okkur vinnu þannig að við getum sinnt okkar hlutverki í þessu umhverfi, sem við erum í dag, bæði á Suðurlandi og víðar. Það er gríðarleg aukning á umferð og fjölgun ferðamanna og það er í mörg horn að lýta.Umferðarteljarar Vegagerðarinnar sýna mikla aukningu á umferð um Suðurlandsveg núna síðustu mánuði þannig að við þurfum að vera á tánum,“ segir Grímur.Og Grímur lofar góðu umferðareftirliti lögreglu í sumar.„Já, það verður mjög öflugt eftirlit hjá okkur á Suðurlandi í allt sumar, mjög sýnilegt og virkt umferðareftirlit, sem víðast.“Umferð hefur aukist og aukist á Suðurlandi á síðustu mánuðum.Hefur þú mannskap og pening í þetta ?„Ég hef mannskap og peninga en ég gæti alveg notað fleiri og meiri peninga, það er auðvitað alltaf þannig en við nýtum vel það sem við höfum,“ segir Grímur.„Ég hef mannskap og peninga en ég gæti alveg notað fleiri og meiri peninga, það er auðvitað alltaf þannig en við nýtum vel það sem við höfum,“ segir Grímur.

Innlent


Fréttamynd

Vonast til að koma dánar­búinu í góðar hendur

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vonast til þess að hlutir úr dánarbúi foreldra sinna komi öðrum að góðum notum. Neikvæð þróun sé í grænni orku hér á landi og fyrirtæki þurfi að notast við olíu á ný vegna skorts á raforku.

Neytendur