Innlent

Vatnajökull var svartur í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hann var svartur Vatnajökullinn þegar Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður og Jónas Margeir Ingólfsson fréttamaður flugu yfir jökulinn í dag.

Norðaustanátt er yfir landinu og eru menn farnir að verða varir við öskuský við Markarfljót og á Selfossi sjá menn öskuskýin nálgast. Hjá Veðurstofunni gera menn ráð fyrir að í kvöld verði öskunnar orðið vart í Reykjavík. Það verði þó ekki mikil aska.

Smelltu á „Horfa á myndskeið með frétt" til að sjá myndir frá Vatnajökli.


Tengdar fréttir

Aska fellur víða til jarðar

Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld.

Grimsvatnagosið í heimsfréttunum

Fjölmiðlar víða um heim hafa í kvöld sagt frá eldgosinu í Grímsvötnum minnugir þess hve mikil röskun varð á flugi í fyrra þegar Eyjafjallajökull gaus.

Gosmökkurinn sést víða

Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi.

Gosmökkurinn sést frá Reykjavík

Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík.

Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta

Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi.

Um 200 íþróttamenn komast ekki til landsins

Tæplega 200 erlendir gestir áttu að koma til Reykjavíkur í dag vegna Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna. Keflavíkurflugvöllur lokaði eftir að eldgosið í Grímsvötnum hófst og því hafa gestirnir ekki komist til landsins í dag.

Öllu flugi innanlands aflýst

Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu.

Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins

"Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum.

Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum

Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi.

Gosmökkurinn er rosa sjónarspil

"Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum.

Gosið sást greinilega frá Reykjavík

Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum.

Ómar hefur aldrei farið eins varlega

Ómar Ragnarsson segist fyllast óttablandinni virðingu fyrir gosinu í Grímsvötnum. Hann sér samt enga ástæðu til þess að loka flugvöllum.

Bjarga búfénaði frá öskufallinu

Heimamenn hafa í dag verið að bjarga búfénaði í nágrenni við gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Þessi bóndi á Hörgslandi var að bjarga hestinum sínum þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara bar að garði fyrir stundu. Gríðarleg svifryksmengun er vegna öskufallsins.

Ekki búist við hlaupi

Staðfest hefur verið að gosið í Grímsvötnum er í sjálfri öskjunni nærri þeim stað þar sem gaus árið 2004. Þetta kemur fram á heimasíðu veðurstofunnar. Síðast hljóp úr Grímsvötnum árið 2010 og hefur lítið vatn safnast þar saman og þunnur ís er á öskjunni. Þegar gaus á sama stað árin 1998 og 2004 urður jökulhlaup nokkru eftir að gosið hófst en ekki er talið að samsvarandi aðstæður séu uppi nú. Því er ekki búist við jökulhlaupi að því er fram kemur á heimasíðu veðurstofunnar.

Kraftur gossins svipaður

"Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi.

Eldgos að hefjast í Grímsvötnum

Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum

Icelandair fellir niður flug á morgun

Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga í fyrramálið verður fellt niður vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum, sem hefur lokað fyrir flugumferð um Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða flug til Frankfurt, Parísar, Amsterdam, London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Osló, Bergen/Þrándheims, Stokkhólms og Helsinki. Áður hafði Icelandair aflýst öllu flugi síðdegis í dag.

Gosmökkurinn mikill og öskufall víða

Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu.

Fréttatími Stöðvar 2 í beinni á Vísi

Aukafréttatími Stöðvar 2 vegna eldgossins í Grímsvötnum á Vatnajökli er í beinni útsendingu á Vísi. Hægt er að sjá útsendinguna hér.

Búist við hlaupi í Grímsvötnum

"Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew.

Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár

Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður.

Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar

Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst.

Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús.

Eldgos í Grímsvötnum staðfest

„Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er.

Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins

Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973.

Veginum um Skeiðarársand lokað

Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Fjölmiðlamenn á Vatnajökli

Hópur fjölmiðlamanna fór með þyrlu á Vatnajökul í grennd við gosstöðvarnar í Grímsvötnum í dag. Þar á meðal var Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, sem myndaði það sem fyrir augun bar. Í myndasafninu sem fylgir þessari frétt má sjá gosstrókinn frá Grímsvötnum í bland við jökulinn.

Öskuna leggur um allt á Kirkjubæjarklaustri

Það hefur verið ótrúlegt magn af ösku á Kirkjubæjarklaustri og í sveitum þar í kring vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fólki hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra vegna öskufallsins og huga vel að búfénaði. Umhverfisstofnun greindi frá því í dag að stofnunin hefur virkjað viðbúnaðarstöðu vegna gossins. Stefnt er að því að svifryksmælir verði kominn upp á Kirkjubæjarklaustri á morgun. Smelltu á "Horfa á myndskeið með frétt“ til að skoða myndir sem Gísli Berg tók í dag frá Kirkjubæjarklaustri.

Gosmökkurinn í 10 kílómetra hæð

Gosmökkurinn frá gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um tíu kílómetra hæð, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu Íslands. Mest var hæðin um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni. Gosmökkurinn mældist í 13-15 kílómetra hæð í hádeginu.

Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö

Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar.

Íbúum bent á að halda sig innan dyra

Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×