Icesave

Fréttamynd

Gallup: Flestir segja já við Icesave-samningi

Af þeim sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Gallup segjast 63 prósent ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn við Breta og Hollendinga. 34 prósent segjast ætla að segja nei og 3 prósent hyggjast skila auðu.

Innlent
Fréttamynd

Siðferðið í Icesavemálinu

Hvernig stendur á því að sumir menn halda því fram að íslensku þjóðinni beri siðferðileg skylda til að borga Icesavekröfurnar?

Skoðun
Fréttamynd

Æsingalaust Icesave?

Það eru í það minnsta tvær hliðar á þessu flókna máli og það reyndi ég á eigin skinni þegar ég sat sjálfur í samninganefnd Íslands. Þegar ég hef verið beðinn um að útskýra samninginn sjálfan - og

Skoðun
Fréttamynd

Þeir myndu tapa fyrir dómi

Af hverju hafa Bretar og Hollendingar ekki stefnt íslenska ríkinu fyrir dóm til greiðslu á Icesave-kröfunum fyrst þeir telja okkur eiga að borga?

Skoðun
Fréttamynd

Þróun á gengi krónunnar ræðst af Icesave

Gengi krónunnar hefur veikst um 3,8% frá áramótum. Framhaldið veltur nokkuð á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Verði niðurstaðan sú að þjóðin hafni samningnum er viðbúið að Seðlabankinn vilji auka á gjaldeyrissöfnun landsins. Hann mun þá líklega bregðast við með því að selja krónur og kaupa gjaldeyri á millibankamarkaði og þannig veikja krónuna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Auglýsa þjóðaratkvæðagreiðsluna

Innanríkisráðuneytið hefur birt auglýsingu um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram þann 9. apríl um Icesave-lögin, sem Alþingi samþykkti 16. febrúar síðastliðinn en forseti Íslands vísaði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þann 16. mars.

Innlent
Fréttamynd

Dómstóla- eða samningaleiðin

Miðað við endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans stefnir allt í það að kostnaður ríkisins vegna Icesave verði vel undir 50 milljörðum verði nýjasti samningur samþykktur. Verði samningurinn þó felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu gæti haft einhver skaðleg áhrif á

Skoðun
Fréttamynd

Málinu lýkur ekki hjá dómstóli EFTA

Ekki er ólíklegt að ár líði frá þjóðaratkvæðagreiðslu til dóms hjá EFTA-dómstólnum, hafni þjóðin nýjum Icesave-samningi. Þá tæki að öllum líkindum við málarekstur fyrir íslenskum dómstólum. Þeir þyrftu svo að leita álits EFTA-dómstólsins um vafaatriði í túlkun á EES-samningnum.

Innlent
Fréttamynd

Vill að óháðir aðilar verðmeti eignasafn gamla Landsbankans

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að fjármálaráðherra fái heimild til að ráða tvö óháð ráðgjafarfyrirtæki til að meta skilaverð eignasafns Landsbanka Íslands hf. Þetta verði gert í samráði við formenn stjórnmálaflokkanna á Alþingi. Gunnar Bragi hefur lagt fram þingsályktunartillögu um þetta á Alþingi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Traustvekjandi að horfur batna

„Ég er mjög ánægður með þessar fréttir og þessa þróun,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat á Icesave kostnaði ríkisins. „Það er traustvekjandi að horfurnar batna við hvert endurmat skilanefndarinnar, vonandi virkar það róandi á marga.“

Innlent
Fréttamynd

Telur núll krónur lenda á ríkinu ef dómsmál verða hagstæð

Icesave-samninganefndin telur varlega áætlað að 32 milljarðar króna gætu lent á ríkissjóði vegna nýrra samninga samkvæmt nýju mati, en áður var þessi fjárhæð talin 47 milljarðar. Þá telur nefndin að ekkert lendi á ríkinu ef tvö mál sem nú eru rekin fyrir dómstólum verði ríkissjóði í hag.

Innlent
Fréttamynd

Húsfyllir á Icesave fundi

Húsfyllir var á fundi VÍB - eignastýringar Íslandsbanka sem haldinn var í dag undir yfirskriftinni „Icesave á mannamáli". Á fundinum fjölluðu Jón Bjarki Bentsson frá Greiningu Íslandsbanka og Lárus Blöndal hrl., fulltrúi í Icesave samninganefnd Íslands, um samninginn sem verður lagður undir þjóðaratkvæði í apríl næstkomandi. Lögðu þeir áherslu á að útskýra helstu atriði samningsins á einfaldan og hlutlausan hátt og svara spurningum gesta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Endurheimtur komnar í 89% af Icesaveskuldinni

Skilanefnd Landsbankans fundaði í dag með kröfuhöfum í búi bankans í Lundúnum og kynnti nýtt mat á virði eigna búsins. Í ljósi nýja matsins hefur samninganefnd Íslands vegna Icesave-samninganna endurnýjað útreikninga sína á kostnaði ríkissjóðs vegna samninganna í ljósi nýs mats skilanefndar Landsbanka Íslands á heimtum eigna bús bankans. Jafnframt hefur verið tekið tillit til nokkurra annarra staðreynda sem hafa áhrif á tölulega framsetningu á kostnaði ríkissjóðs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Frumvarpið í pósti á öll heimili

Innanríkisráðuneytið hefur ekki ákveðið hvernig staðið verður að kynningarmálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin 9. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Að standa í lappirnar

Lögmaður hlynntur því að þjóðin hafni Icesave-lögunum sagði í Kastljósi að siðaðar þjóðir færu með mál sín fyrir dómstóla. Flestir lögmenn telja þó betra að semja um mál, og siðaðar þjóðir standa við yfirlýsingar sínar. Allt frá hruni hafa ríkisstjórnir Íslands (og reyndar forsetinn) sagt að Ísland vilji semja um Icesave. Þeir sem ætla að hafna samningnum nú vilja ekki semja. Þeir tala um áhættu af að semja en þegja um áhættuna af að semja ekki. Lögmaðurinn sagði einnig að Íslendingar ættu ekki að beygja sig fyrir hótunum um ofbeldi. Er það ofbeldi að nenna ekki að tala við þá sem ekki er hægt að semja við, að vilja ekki lána þeim sem ekki standa við orð sín? Icesave-skuldin er annars eðlis en þær skuldir óreiðumanna sem útlend fyrirtæki og stofnanir verða að taka á sig og

Skoðun
Fréttamynd

Samsærið gegn Íslendingum

Við tölum af áfergju um bílalán og eignarhaldsfélög. Bensínverðið er hrífandi umræðuefni og stjórnlagaþingsklúðrið býður upp á þrotlausar vangaveltur – við höfum yfirleitt unun af því að tala um allt sem viðkemur peningum og lögfræði. Skemmtilegast af öllu finnst oVið tölum af áfergju um bílalán og eignarhaldsfélög. Bensínverðið er hrífandi umræðuefni og stjórnlagaþingsklúðrið býður upp á þrotlausar vangaveltur – við höfum yfirleitt unun af því að tala um allt sem viðkemur peningum og lögfræði. Skemmtilegast af öllu finnst okkur þó kkur þó að tala um Icesave því þar

Fastir pennar
Fréttamynd

Skuldin gæti hækkað um 665 milljarða

Mögulegur vaxtakostnaður vegna Icesave gæti orðið rúmir 713 milljarðar, tapist málið fyrir dómstólum árið 2014. Þessar niðurstöður miða við að Íslendingum verði gert að greiða sömu vexti og Portúgal greiðir af sínum neyðarlánum. Fái Íslendingar sömu vexti og Írar, endar málið í 513 milljörðum. Sé núverandi samningur látinn gilda, eftir að þrotabú gamla Landsbankans hefur verið gert upp, endar skuldin í 48 milljörðum króna. Þar er miðað við þá 20 milljarða sem nú þegar eru til staðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Siv ætlar að segja já við Icesave samningnum

"Ég hef gert það upp við mig að ég mun greiða atkvæði með samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslunni," segir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Hún, ásamt Guðmundi Steingrímssyni, sat hjá í atkvæðagreiðslu í þinginu á dögunum þegar samningurinn var samþykktur en sjö þingmenn Framsóknarflokksins greiddu atkvæði á móti samningnum.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin ekki skuldbundin til að greiða Icesave skuldina

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, segir að það sé rangt að Alþingi hafi í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde skuldbundið þjóðina til að greiða Icesave skuldina. Þóra Kristín Árnadóttir blaðakona hélt þessu fram í leiðara á vefritinu Smugunni.

Innlent
Fréttamynd

Útilokar ekki að höfða skaðabótamál

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, útilokar ekki að ríkið muni höfða skaðabótamál á hendur fyrrverandi eigendum og stjórnendum Landsbankans vegna Icesave. Ekkert bendir þó til þess að fjármunir af Icesave reikningunum hafi verið notaðir í ólögmætum tilgangi samkvæmt rannsókn Deloite í Lundúnum.

Innlent
Fréttamynd

Endurmeta þarf áætlun AGS verði Icesave fellt

Endurmeta þarf efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland ef Icesave verður fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu að mati efnahags- og viðskiptaráðherra. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin níunda apríl næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um Icesave 9. apríl

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave frumvarpið verður 9. apríl samkvæmt tillögu sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun. Eins og kunnugt er vísaði Ólafur Ragnar Grímsson Icesave í dóm þjóðarinnar á grundvelli 26. greinar stjórnarskrárinnar síðastliðinn sunnudag.

Innlent
Fréttamynd

Rúm 60% segja já við Icesave

Ríflega sex af hverjum tíu segjast ætla að samþykkja samkomulagið sem náðst hefur við Hollendinga og Breta í Icesave-deilunni í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Leita að Icesave-peningunum - Ólafur og Steingrímur tala ekki saman

"Þetta eru eins og hverjir aðrir peningar, sumir fóru til Lúxemborg á meðan aðrir enduðu uppi í Breiðholti,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá Einum í kvöld þegar hann var spurður hvert Icesave peningarnir hefðu farið.

Innlent