Nóbelsverðlaun

Fréttamynd

Krugman hlýtur Nóbelsverðlaun í hagfræði

Bandaríkjamaðurinn Paul Krugman hlýtur Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár fyrir greiningu á viðskiptamynstrum og fyrir að staðsetja virkni í efnahagslífi eins og Nóbelsnefndin orðar það.

Erlent
Fréttamynd

Fá Nóbelsverðlaun fyrir að uppgötva skæðar veirur

Tveir franskir vísindamenn sem uppgötvuðu HIV-veiruna og Þjóðverji sem uppgötvaði veiru sem veldur leghálskrabbameini deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár. Frá þessu greindi Nóbelsverðlaunaakademían í dag.

Erlent
Fréttamynd

Ljósmyndir skáldsins

„Síðbúin sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans og heimsborgarans Halldórs Laxness" er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu á þjóðhátíðardaginn næstkomandi þriðjudag kl. 13.

Menning
Fréttamynd

Lessing fer ekki til Svíþjóðar

Rithöfundurinn Doris Lessing, sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár, getur ekki ferðast til Stokkhólms til að taka við verðlaununum vegna eymsla í baki.

Menning
Fréttamynd

Þrír fá Nóbelsverðlaun í hagfræði

Bandaríkjamennirnir Leonid Hurwicz, Eric Maskin og Roger Myerson fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár. Frá þessu greindi sænska nóbelsakademían í morgun. Verðlaunin fá þremenningarnir fyrir að hafa lagt grundvöllinn að kenningu um kerfisskipulagningu markaða.

Erlent
Fréttamynd

Fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar

Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar að veita Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, og alþjóðlegri nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál friðarverðlaun Nóbels þetta árið. Verðlaunin fá Gore og nefndin fyrir framlag sitt í loftlagsmálum.

Erlent
Fréttamynd

Þjóðverji fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði

Þýski vísindamaðurinn Gerhard Ertl vann Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir rannsóknir á efnaferli í föstum flötum að því er Sænska vísindaakademían skýrði frá í morgun. Ertl fær 93 milljónir í verðlaun fyrir rannsóknirnar sem hjálpa vísindamönnum að skilja ýmsa ferla í föstum efnum, eins og til dæmis af hverju járn ryðgar.

Erlent
Fréttamynd

„Áður fyrr var eitrað fyrir fólki“

„Það skiptir ekki máli hvort maður er með mikla eða litla machiavellíska eiginleika. Það að vera machiavellískur þarf ekki að vera slæmt,“ segir Anna Gunnþórsdóttir, dósent og tilraunaleikjafræðingur við Australian Graduate Scool of Management í Ástralíu. Hún tekur það sömuleiðis skýrt fram að það að hafa litla eiginleika sem þessa sé heldur ekki slæmt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaunahafi í ráðgjafaráði Askar Capital

Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði Dr. Edmund S. Phelps mun taka sæti í hinu nýstofnaða ráðgjafaráði sem fjárfestingarbankinn Askar Capital stendur fyrir. Ráðið lýtur stjórn Karls Wernersonar, stjórnarformanns Milestones, en markmið þess er að leggja grunn aðframtíðarstefnumörkun bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ungir Danir falla á ríkisborgaraprófi -vilt þú reyna ?

Tuttugu og tvö prósent Dana á aldrinum 18-25 ára falla á prófi sem innflytjendur þurfa að standast til þess að fá ríkisborgararétt. Leitað var til meira en 7000 Dana á þessum aldri og prófspurningarnar lagðar fyrir þá. Spurningarnar eru 40 talsins og menn þurfa að svara minnst 28 rétt til þess að standasst prófið.

Erlent
Fréttamynd

Bresk líftækni á sterkum grunni

Líftæknifyrirtæki í Bretlandi byggja á sögulegum og föstum grunni. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson slóst í för með hópi blaðamanna undir lok síðasta mánaðar og kynnti sér stöðu og starfsemi líftæknifyrirtækja í nágrenni Cambridge á tveimur dögum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nokkur skúbb

Í ljósi undanfarinna skúbba um allskonar heimili útá landi þar sem miður skemmtilegir hlutir áttu sér stað langar mig að bauna hérna nokkrum nýjum skúbbum sem fjölmiðlar landsins geta smjattað á næstu vikur. Ónefndur maður klauf annan mann í herðar niður fyrir um þúsund árum síðan.

Bakþankar
Fréttamynd

Krefjast frjálsara samfélags

Tugir þúsunda manna gengu um götur Istanbúl í gær og kölluðu eftir frjálsara tyrknesku samfélagi þar sem fólk væri ekki myrt vegna skoðana sinna.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn féllu ekki fyrir lambinu

Nánast samfellt tap hefur verið á sölu lambakjöts til Bandaríkjanna - þrátt fyrir að stjórnvöld hafi í rúman áratug styrkt markaðssetningu á lambakjöti og íslenskum vörum um meira en 300 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Chilepistill

Hér er fjallað um dauða einræðisherrans Pinochets, Chiliemenn sem rak hingað á land eftir byltingu herforingjanna, ljóðahátíð á Kjarvalsstöðum árið 1976 og loks er vikið að sjónvarpsþætti þar sem íslenskir háskólaborgarar reyndu að reka Friedman á gat...

Fastir pennar
Fréttamynd

Nóbelsverðlaunahafi hlýtur heiðursdoktorsnafnbót

Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði er meðal þeirra sem hljóta heiðurdoktorsnafnbót við útskrift Háskóla Íslands í dag. Sá heitir Robert A. Mundell og er prófessor við Colubia-háskóla í Bandaríkjunum. Hann fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Hann hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

Innlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaunahafi heiðursdoktor frá HÍ

Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði er meðal þeirra sem hljóta heiðurdoktorsnafnbót við útskrift Háskóla Íslands á morgun. Sá heitir Robert A. Mundell og er prófessor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Hann fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Mundell hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Auk hans hljóta tveir aðrir heiðursdoktorsnafnbót. Það eru Assar Lindbeck, prófessor við alþjóðahagfræðideild Háskólans í Stokkhólmi, og Kristján Sæmundsson, vísindamaður á sviði jarðfræði Íslands, eldfjallafræði og jarðhita.

Innlent
Fréttamynd

Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels

Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku.

Erlent
Fréttamynd

Unglingafæla fær friðarverðlaun Ig Nobels

Tæki sem fælir unglinga frá hefur unnið friðarverðlaun Ig Nobels í ár en verðlaunin eru skopútgáfa hinna viðurkenndu Nobel verðlauna. Tækið er hannað af Howard Stapleton og það framleiðir hátíðnihljóð sem fullorðnir nema ekki, en hefur truflandi áhrif á unglinga.

Erlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði til Bandaríkjanna

Sænska vísindaakademían greindi frá því í morgun að Bandaríkjamennirnir John Mather og George Smoot fengju Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði þetta árið fyrir framlag þeirra til að varpa frekara ljósi á tilurð alheimsins.

Erlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaun í læknisfræði tilkynnt

Tveir Bandaríkjamenn, Andrew Z. Fire frá MIT í Massachusetts og Craig C. Mello við Harvard, fá Nóbelsverðlunin í læknisfræði í ár fyrir að uppgötva leið til að slökkva á ákveðnum áhrifum gena.

Erlent
Fréttamynd

Barist gegn því að Gunnar Gunnarsson fengi Nóbelsverðlaun

Skjöl í sænskum söfnum sanna að íslenskir áhrifamenn lögðust af hörku gegn því að rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson, hlyti Nóbelsverðlaunin ásamt Halldóri Kiljan Laxness. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor segir engin skjöl renna stoðum undir fullyrðingar um að áhrifamenn hafi reynt að hafa verðlaunin af Halldóri vegna stjórnmálaskoðana hans.

Innlent
Fréttamynd

Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir

Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kemur ekki til greina að svipta Grass Nóbelnum

Nóbelsstofnunin hefur hafnað beiðnum um að svipta rithöfundinn Gunther Grass nóbelsverðlaunum sem hann hlaut árið 1999. Háværar raddir kröfðust þess að Grass yrði sviptur heiðrinum eftir að hann játaði í blaðaviðtali á laugardag að hann hefði þjónað í stormsveitum nasista í seinni heimsstyrjöldinni.

Erlent
Fréttamynd

Oprah Winfrey fær tilnefningu

Tilnefningar til friðarverðlauna Nóbels árið 2006 eru 191 talsins. Aðeins einu sinni áður hafa fleiri verið tilnefndir, en það var í fyrra þegar 199 voru tilnefndir.

Erlent