Innlent

Barist gegn því að Gunnar Gunnarsson fengi Nóbelsverðlaun

Skjöl í sænskum söfnum sanna að íslenskir áhrifamenn lögðust af hörku gegn því að rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson, hlyti Nóbelsverðlaunin ásamt Halldóri Kiljan Laxness. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor segir engin skjöl renna stoðum undir fullyrðingar um að áhrifamenn hafi reynt að hafa verðlaunin af Halldóri vegna stjórnmálaskoðana hans.

Hannes Hólmsteinn hefur grúskað í skjalasöfnum í Svíþjóð meðal ananrs hjá nóbelsakademíunni. Sú rannsókn leddi í ljós að ætlunin var að Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness skiptu með sér Nóbelsverðlaununum 1995. Greinir Hannes frá niðurstöðum sínum í næsta hefti tímarisins Þjóðmál sem kemur út á næstu dögum. Kemur fram að tveir akademíufélagar stungu uppá Gunnari einum, sænska rithöfundasambandið stakk upp á að verðlaununum yrði skipt og nóbelsnefndin stakk uppá því sama við akademínuna

Hannes telur að Gunnar Gunnarsson hafi verið miklu nærri því að fá Nóbelsverðlaunin með Laxness. Sennilega hafi ráðið úrslitum að tveir íslenskir fræðimenn beittu sér gegn því. Þeir Jón Helgason, prófessor í Kaupmannahöfn, og Sigurður Nordal.

Viðhorf Jóns og andróður gegn Gunnari birtist í harðorðu bréfi til Elíasar Wessen, prófsessors og félaga í sænska lærdómslistafélaginu. Þar bendir hann á að Gunnar hafi framanaf skrifað á dönsku og hljóti bækurnar að teljast tiul danskra bókmennta og þó hann hafi snúið heim og byrjað að skrifa á íslensku sé það með raunarlegum árangri - eins og Jón segir og tekur fram að erlend búseta Gunnars hafi gert hann ókunnugan lifandi íslenskri tungu.

Hannes Hólmsteinn telur miklar líkur á því að andróðurinn gegn því að Gunnar og Halldór fengju verðlaunin saman hafi haft úrslitaáhrif. Hannes segir einnig að það finnist ekki fótur fyrir fullyrðingum Halldórs Laxnes um að íslenskir áhrifamenn hafi reynt að hindra að hann fengi Nóbelinn vegna stjórnmálaskoðanna hans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×