Erlent

Segja aðskilnaðarsinna hafa stolið verðmætum af þeim látnu

Randver Kári Randversson skrifar
Eftirlitsmenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu standa við lestina sem flutti lík farþega flugvélarinnar frá bænum Torez, skammt frá staðnum sem þotan hrapaði á.
Eftirlitsmenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu standa við lestina sem flutti lík farþega flugvélarinnar frá bænum Torez, skammt frá staðnum sem þotan hrapaði á. Vísir/AFP
Sjónarvottar á svæðinu þar sem flug MH17 Malaysia Airlines hrapaði til jarðar á fimmtudag halda því fram að aðskilnaðarsinnar hafi farið í gegnum eigur hinna látnu og stolið verðmætum, svo sem peningum, skartgripum og raftækjum. Þetta er haft eftir hjálparstarfsmönnum á svæðinu á vef Telegraph, og hafa úkraínskir embættismenn einnig haldið þessu fram.

Alexander Borodai, sjálfskipaður forsætisráðherra Donetsk-héraðs og einn helsti leiðtogi aðskilnaðarsinna sagðist ekki geta útilokað að slík tilvik hafi komið upp. Hann sagði að alls staðar væri hægt að finna þjófa, og að verið væri að rannsaka málið. Hann hét því jafnframt að þeim sem væru sekir yrði refsað.

Mikil reiði er meðal aðstandenda þeirra vegna ómannúðlegrar meðferðar aðskilnaðarsinna á líkum farþeganna. Í kjölfar fregna um líkrán aðskilnaðarsinna hafa aðstandendur margra breskra fórnarlamba látið loka kreditkortum og farsímareikningum látinna ættingja sinna.

Lík þeirra sem létust voru flutt til geymslu í fimm kældum lestarvögnum í bænum Torez, skammt frá vettvangi. Lestin er nú komin til borgarinnar Kharkiv , sem er vestan við yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna og verða líkin flutt til Hollands síðar í dag.


Tengdar fréttir

Lík 196 farþega hafa fundist

Hjálparstarfsmenn á vettvangi í Úkraínu segjast hafa fundið lík 196 þeirra 298 farþega sem fórust með Boeing 777 flugvél Malaysia Airlines á fimmtudag.

Aðstandendur látnu farþeganna fá 5000 dali

Fjölskyldur farþeganna sem létust í flugi MH17 síðastliðinn fimmtudag fá fimm þúsund Bandaríkjadali, eða rúmlega hálfa milljón íslenskra króna, frá flugfélaginu Malaysian airlines.

Aðskilnaðarsinnar ganga rétt frá líkum

Aðskilnaðarsinnar í Úkraínu fylgja eftirlitsmönnum ÖSE hvert fótmál um svæðið þar sem brak úr MH17 lenti. Starfsmaður ÖSE segist þó hvergi banginn.

Þjóðarsorg í Hollandi

Hollendingar eru í áfalli vegna dauða 173 Hollendinga sem fórust þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í gær.

Harmleikurinn í Úkraínu

Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×