Erlent

Rannsóknin beinist gegn aðskilnaðarsinnum

Samúel Karl Ólason skrifar
298 létu lífið þegar vélin var skotin niður.
298 létu lífið þegar vélin var skotin niður. Vísir/EPA
Alþjóðlegir rannsóknaraðilar kanna nú möguleikann á því að MH17 flugið hafi verið skotið niður af aðskilnaðarsinnum á flugi yfir átakasvæðinu í Úkraínu. Flugvélin brotlenti þann 17. júlí í fyrra og létust allir um borð, alls 298 manns. Tveir þriðju þeirra voru frá Hollandi.

Í yfirlýsingu frá rannsakendum segir að þeir leiti nú vitna sem geti gefið þeim upplýsingar um svokallað „Buk“ loftvarnakerfi í Donbass héraði. Einnig leita þeir upplýsinga um hverjir stýrðu kerfinu, hvaðan það kom og hvort að skotið var úr því á umræddum tíma.

Hér má sjá upplýsingar um Buk loftvarnakerfið.Vísir/Graphic News
Yfirvöld í Kænugarði halda því fram að aðskilnaðarsinnar hafi skotið flugvélina niður með eldflaugum sem þeir fengu frá Rússlandi. Rússar og aðskilnaðarsinnar halda því hins vegar fram að vélin hafi verið skotin niður af flugher Úkraínu, til að koma óorði á aðskilnaðarsinna.

AP fréttaveitan segir frá því að atvikið hafi komið af stað miklum pólitískum deilum þegar slysið varð þann 17. júlí í fyrra. Rannsakendur sögðu í fyrra að á skrokki vélarinnar hefði mátt sjá för eftir sprengjuflísar og að flugvélin hefði sundrast á lofti.

Íbúar bentu á aðskilnaðarsinna

Reuters sagði frá því fyrr í mánuðinum að íbúar á svæðinu hafi séð flugskeyti skotið á loft skömmu áður en flugvélin brotlenti. Þannig væri ljóst að henni hefði verið skotið á loft frá yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna.

Myndbönd, myndir og frásagnir íbúa hafa gefið í skyn að Buk loftvarnakerfi hafi verið flutt til aðskilnaðarsinna í bænum Snizhne þann 17. júlí. Sá bær er nærri staðnum þar sem flugvélin var skotin niður.

Íbúar sögðu Reuters að slíkum loftskeytum hefði verið komið fyrir á akri, nærri þorpinu Chervonyi Zhovten, sama dag og flugvélin var skotin niður. Fyrrverandi aðskilnaðarsinni veitti Reuters sömu upplýsingar.

Á vef Business Insider birtist grein, nokkrum dögum eftir atvikið, sem fjallaði um að einn af leiðtogum aðskilnaðarsinna á svæðinu hefði stært sig af því að hans menn hefðu skotið niður flugvél úkraínska hersins. Það var um morguninn skömmu eftir að MH17 var skotin niður, sem hann sagði á samfélagsmiðlum, að aðskilnaðarsinnar „hefðu varað þá við því að fljúga í þeirra himni.“

Frá flugsýningu í Moskvu árið 2011. Hér má sjá BUK flugskeyti.Vísir/AFP
Rússar ósáttir

Rússneski fréttamiðillinn RT birti í dag grein þar sem því er haldið fram að Reuters hafi logið í umfjöllun sinni fyrr í mánuðinum. Þeir segja að blaðamenn Reuters hafi breytt sögum þorpsbúa og að skeytinu hafi í raun verið skotið af yfirráðasvæði hersins.

Eftir að Reuters birti umfjöllun sína fordæmdi Sergey Lavrov hana, en hann er utanríkisráðherra Rússlands. Hann sagði að umfjöllunin liti út fyrir að vera uppspuni og sagði að enn væri fjölmörgum spurningum, sem yfirvöld í Moskvu hefðu setta fram, ósvarað.

Sem dæmi nefndi hann að Bandaríkin hefðu ekki birt gervihnattamyndir sem hafi átt að sanna ásakanirnar og að flugumferðarstjórn Úkraínu hefði heldur ekki birt samskipti flugvélarinnar við umheiminn.


Tengdar fréttir

Flytja MH17 af slysstað

Vinna er hafin við að fjarlægja brak flugvélar Malaysian Airlines af slysstað í Úkraínu.

Sammæltust um að þrýsta á Rússa

Leiðtogar Bandaríkjanna, Japans og Ástralíu voru sammála um að standa saman í kröfu sinni um að Rússar hættu afskiptum á Krímskaga.

Fjarlægja brak MH17

Vinna er hafin við að fjarlægja flugvélarflak MH17 sem var skotin niður á flugi yfir Úkraínu í júlí síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×