Innlent

Gos staðfest í Eyjafjallajökli - gufubólstrar sjást

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gos er hafið í Eyjafjallajökli. Mynd/ Anton.
Gos er hafið í Eyjafjallajökli. Mynd/ Anton.
Tvær tilkynningar hafa borist um gufubólstra fyrir ofan Eyjafjallajökul frá flugvélum. Önnur vélin var 40 mílur í suðri og sá bólstra í hánorðri. Hin var 60 mílur fyrir norðaustan jökul og sá bólstra í suðvestur átt.

Bólstrarnir fóru 1000 fet upp fyrir skýin og telst það frekar lítið. Bendir til þess að gos sé hafið og það sé af svipaðri stærð og það sem var á Fimmvörðuhálsi. Flugvél Landhelgisgæslunnar fer í loftið um átta leytið til að freista þess að sjá yfirborð jökulsins.

Nú er að létta yfir jöklinum en mikið mistur hefur verið þar yfir í alla nótt og gengið hefur á með skúrum.






Tengdar fréttir

Fimmtíu manns komnir að Heimalandi

Um fimmtíu manns eru nú staddir í fjöldahjálparmiðstöðinni að Heimalandi, miðja vegu á milli Hvolsvallar og Skóga. Fólkið er rólegt en þreytt að sögn en nokkur börn eru í hópnum, þar á meðal þriggja mánaða barn. Fjórtán útlendir ferðamenn eru einnig í hópnum.

Mikið mistur yfir Eyjafjallajökli

Enn sést ekkert til gossins í Eyjafjallajökli. Skjálftahrina hófst í jöklinum um ellefuleytið í gærkvöld og um fjögurleytið í nótt bárust þær upplýsingar frá Veðurstofunni að mælar bentu til þess að gos væri hafið.

Eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli

Mælingar benda til þess að eldgos sé hafið undir suðvesturhluta Eyjafjallajökuls. Að sögn Veðurstofunnar benda mælingar til þess að órói fari vaxandi og allar líkur á því að gos sé hafið.

Earth tremors under the Eyjafjallajökull glacier

Since it now considered to be highly likely that there is a volcanic eruption under the south western side of the summit of Eyjafjallajökull glacier, the Department of Civil Protection and Emergency Management, has decided to evacuate all areas in the immediate vicinity of the glacier.

Um 100 manns í Hvolsskóla

Um 100 manns eru komnir í fjöldahjálparstöðina í Hvolsskóla, að því er Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins telur.

Magnús Tumi: Upptökin við topp Eyjafjallajökuls

Magnús Tumi Guðmundsson, hjá Veðurstofu Íslands, segir að upptök skjálftanna sem hófust í nótt mælist undir toppi Eyjafjallajökuls. Það kunni að vera að um gosóróa sé að ræða þannig að skjálftarnir marki upphaf að nýju eldgosi.

Undirbúa fjöldahálparstöð á Hvolsvelli

Verið er að bera teppi og annan nauðsynjabúnað inn í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Þar hefur verið opnuð fjöldahjálparstöð sem tekur á móti fólki úr Fljótshlíðinni. Fólk sem býr í Heimalandi er beðið um að vera kyrrt heimafyrir.

Um 700 manns þurfa að yfirgefa heimili sín

Tekin hefur verið ákvörðun um rýmingu í Fljótshlíð og í Landeyjum þar sem eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli. Víðir Sigurðsson hjá Almannavörnum segir að verið sé að koma skilaboðum til fólks á svæðinu. Um 700 manns eru búsettir á svæðinu sem rýma skal en um sömu áætlun er að ræða og virkjuð var þegar gaus á Fimmvörðuhálsi.

Eldgosinu á Fimmvörðuhálsi lokið í bili

Gosinu á Fimmvörðuhálsi er lokið en því lauk í fyrradag. Virknin í eldstöðinni var orðin mjög lítil á sunnudag en fyrir hádegi í fyrradag var smá virkni í einum gígnum. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur fékk Jón Kjartansson þyrluflugmann til að smella af mynd klukkan ellefu á mánudagsmorgun og senda honum í kennslustund í Háskóla Íslands.

Lokað á milli Hvolsvallar og Skóga

Lögregla hefur lokað veginum frá Hvolsvelli að Skógum vegna jarðskjálftahrinunnar í Eyjafjallajökli. Ef gos hefst undir jökli má búast við hlaupi í Markarfljóti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×