Fleiri fréttir Bónusgreiðslur hífðu upp forstjóralaun Bónusgreiðslur vegna afkomu ársins 2016 útskýra hækkun launa Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips. Árslaunin námu tæpum 103 milljónum í fyrra. Forstjóralaunin hækkað um 40 prósent frá 2014. Sex framkvæmdastjórar hækkuðu um alls 53,5 milljónir milli ára. 23.3.2018 07:00 Leiguverð hækkar svipað mikið og fasteignaverð Árshækkun leiguverðs samkvæmt þinglýstum leigusamningum nemur nú um 10,4 prósentum og er hækkunin áþekk hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem mælist nú 10,6 prósent. 22.3.2018 20:28 Hreyfill býr sig undir breyttar aðstæður og sækir um vörumerkið Suber Taxi Ekki stendur þó til að hefja rekstur farveitu eins og Uber alveg á næstunni. 22.3.2018 19:49 Fjarskipti verða Sýn Aðalástæðan fyrir nafnabreytingunni, úr Fjarskipti hf., er sú að starfsemi félagsins hefur breikkað og því er gamla nafnið ekki nógu lýsandi fyrir sameinað félag. 22.3.2018 16:42 Hrefna Sætran opnar veitingastað við Hjartagarðinn Hrefna Rósa Sætran og félagar opna veitingastað þar sem leynihráefni spilar stórt hlutverk. 22.3.2018 11:08 Lækkuðu laun framkvæmdastjórans um 9 prósent Formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna sagði lækkunina nema um 20 prósentum miðað við launaþróun. 22.3.2018 10:09 Valgerður ráðin framkvæmdastjóri Framtíðarinnar Valgerður Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Framtíðarinnar. 22.3.2018 09:40 Gylfi Þór í sérstöðu hjá Pepsi Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir auglýsingasamning við gosdrykkjaframleiðann Pepsi. 22.3.2018 06:44 Aukið flug og lagerhald kemur niður á íslensku Costco-verði Viðskiptastjóri Costco segir dýrari flutningsleiðir en gert hafði verið ráð fyrir, gengissviptingar og aukið lagerhald á vinsælum vörum hafa leitt til verðhækkana hjá versluninni á Íslandi. Verðkannanir Fréttablaðsins hafa sýnt fram á töluverðar hækkanir og margir viðskiptavinir fengið sig fullsadda á síhækkandi verði. 22.3.2018 05:46 Bjóða ferðamönnum að ganga inn í sýndarheim Örlygsstaðabardaga Gestir bregða sér inn í Örlygsstaðabardaga á Sturlungaöld í sýndarveruleikasetri sem áformað er að opna á Sauðárkróki í haust. 21.3.2018 20:30 Landsbankinn greiðir út tæpa 25 milljarða í arð Ríkið fær nær allan arðinn í sinn hluti sem langstærsti eigandi bankans. 21.3.2018 19:30 Íslendingar fá 25 milljarða til jarðvarmaverkefna í Kína Arctic Green Energy og kínverska fyrirtækið Sinopec Green Energy Geothermal hafa undirritað samning um fjármögnun er nemur 250 milljónum Bandaríkjadala, eða um 25 milljörðum íslenskra króna. 21.3.2018 16:38 Bein útsending: Ferðaþjónustudagurinn í Hörpu Hefst klukkan 14 með ávarpi ferðamálaráðherra. 21.3.2018 13:56 Vilja opna hagfræðideildina Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildarinnar, segir hagfræði vera mjög vaxandi grein hér á landi. „Hún hefur enda svör á reiðum höndum við öllum vandamálum samtímans.“ 21.3.2018 13:15 DV ehf. gjaldþrota Hélt utan um rekstur DV og DV.is frá árinu 2010.
Laun stjórnar Arion banka hækkuð Hækkuðu launin í samræmi við þróun vísitölu. 15.3.2018 18:18 Verkís og Arkís arkitektar hönnuðu byggingu ársins í Noregi Verkfræðistofan Verkís og arkitektastofan Arkís arkitektar hönnuðu sundhöllina Holmen í Asker í Noregi sem í gær var valið hús ársins 2017 þar í landi. 15.3.2018 11:41 Forstjóri N1 hækkaði um milljón á mánuði Laun og hlunnindi fimm helstu stjórnenda N1 hf. námu rúmum 210 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um nærri 30 milljónir milli ára. Laun og hlunnindi forstjórans hækkuð um 20,7 prósent, eða sem nemur rúmri milljón á mánuði 15.3.2018 08:00 Valitor ekki greitt út í arð fyrir útboð Arion Stjórn bankans hefur lagt áform um að ráðstafa hlutabréfum í kortafyrirtækinu í arðgreiðslu til hliðar í bili. Slík ráðstöfun myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21 prósents hlut í Valitor. 15.3.2018 06:00 Sjá næstu 50 fréttir
Bónusgreiðslur hífðu upp forstjóralaun Bónusgreiðslur vegna afkomu ársins 2016 útskýra hækkun launa Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips. Árslaunin námu tæpum 103 milljónum í fyrra. Forstjóralaunin hækkað um 40 prósent frá 2014. Sex framkvæmdastjórar hækkuðu um alls 53,5 milljónir milli ára. 23.3.2018 07:00
Leiguverð hækkar svipað mikið og fasteignaverð Árshækkun leiguverðs samkvæmt þinglýstum leigusamningum nemur nú um 10,4 prósentum og er hækkunin áþekk hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem mælist nú 10,6 prósent. 22.3.2018 20:28
Hreyfill býr sig undir breyttar aðstæður og sækir um vörumerkið Suber Taxi Ekki stendur þó til að hefja rekstur farveitu eins og Uber alveg á næstunni. 22.3.2018 19:49
Fjarskipti verða Sýn Aðalástæðan fyrir nafnabreytingunni, úr Fjarskipti hf., er sú að starfsemi félagsins hefur breikkað og því er gamla nafnið ekki nógu lýsandi fyrir sameinað félag. 22.3.2018 16:42
Hrefna Sætran opnar veitingastað við Hjartagarðinn Hrefna Rósa Sætran og félagar opna veitingastað þar sem leynihráefni spilar stórt hlutverk. 22.3.2018 11:08
Lækkuðu laun framkvæmdastjórans um 9 prósent Formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna sagði lækkunina nema um 20 prósentum miðað við launaþróun. 22.3.2018 10:09
Valgerður ráðin framkvæmdastjóri Framtíðarinnar Valgerður Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Framtíðarinnar. 22.3.2018 09:40
Gylfi Þór í sérstöðu hjá Pepsi Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir auglýsingasamning við gosdrykkjaframleiðann Pepsi. 22.3.2018 06:44
Aukið flug og lagerhald kemur niður á íslensku Costco-verði Viðskiptastjóri Costco segir dýrari flutningsleiðir en gert hafði verið ráð fyrir, gengissviptingar og aukið lagerhald á vinsælum vörum hafa leitt til verðhækkana hjá versluninni á Íslandi. Verðkannanir Fréttablaðsins hafa sýnt fram á töluverðar hækkanir og margir viðskiptavinir fengið sig fullsadda á síhækkandi verði. 22.3.2018 05:46
Bjóða ferðamönnum að ganga inn í sýndarheim Örlygsstaðabardaga Gestir bregða sér inn í Örlygsstaðabardaga á Sturlungaöld í sýndarveruleikasetri sem áformað er að opna á Sauðárkróki í haust. 21.3.2018 20:30
Landsbankinn greiðir út tæpa 25 milljarða í arð Ríkið fær nær allan arðinn í sinn hluti sem langstærsti eigandi bankans. 21.3.2018 19:30
Íslendingar fá 25 milljarða til jarðvarmaverkefna í Kína Arctic Green Energy og kínverska fyrirtækið Sinopec Green Energy Geothermal hafa undirritað samning um fjármögnun er nemur 250 milljónum Bandaríkjadala, eða um 25 milljörðum íslenskra króna. 21.3.2018 16:38
Bein útsending: Ferðaþjónustudagurinn í Hörpu Hefst klukkan 14 með ávarpi ferðamálaráðherra. 21.3.2018 13:56
Vilja opna hagfræðideildina Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildarinnar, segir hagfræði vera mjög vaxandi grein hér á landi. „Hún hefur enda svör á reiðum höndum við öllum vandamálum samtímans.“ 21.3.2018 13:15
Afar mjótt á munum þegar Bjarnheiður var kjörin nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Aðeins munaði 72 atkvæðum á Bjarnheiði Hallsdóttur og Þóri Garðarssyni. 21.3.2018 12:33
Eiga ekki að „rétta hlut“ fyrirtækja hér Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir eftirlitið ekki hafa hagsmuni af því að verja fyrri niðurstöður sínar. Eftirlitið verði að meta atvik í hverju og einu máli. Sérfræðingur í samkeppnisrétti segir að það verði að vera mögulegt fyrir fyrirtæki að bregðast við breytingum og nýrri samkeppni á hérlendum smásölumarkaði. 21.3.2018 07:15
Stjórnendurnir áttu næsthæsta tilboðið Tvö af þeim þremur félögum sem skiluðu inn tilboði í 18 prósenta hlut ríkisins í Klakka tengjast stjórnendum Klakka. Annað félagið vildi ekki að upplýst yrði um þátttöku þess í söluferlinu. Lindarhvoli ber að afhenda gögn um söluferlið samkvæmt nýjum úrskurði. 21.3.2018 06:00
Skipta út Kviku banka og seinka skráningu Kvika átti að leiða söluferli Heimavalla við skráningu á markað. Leigufélagið hefur sagt upp samningnum og ráðið Landsbankann í staðinn. Nú er stefnt að skráningu í Kauphöll í byrjun maí. 21.3.2018 06:00
Friðrik hættur hjá LIVE Friðrik Nikulásson, forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LIVE), hefur hætt störfum hjá sjóðnum. 21.3.2018 06:00
Braut gegn siðareglum lögmanna Úrskurðarnefnd lögmanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að lögmaður eignarhaldsfélagsins Glitnis HoldCo hafi með bréfaskriftum sínum til fyrrverandi starfsmanns sjávarútvegsfyrirtækisins Brims vanrækt skyldur sínar samkvæmt siðareglum lögmanna. 21.3.2018 06:00
Sjálft viðskiptamódel Facebook í hættu Í gær þurrkaðist út markaðsverðmæti Facebook í Nasdaq kauphöllinni vestanhafs sem nemur einni og hálfri landsframleiðslu Íslands. Sjóðstjóri sem hefur skoðað málið segir að fjárfestar hafi brugðist með kröftugum hætti við fréttum af nýtingu Cambridge Analytica á persónupplýsingum því sjálft viðskiptamódel Facebook sé í hættu. 20.3.2018 19:00
600 milljóna gjaldþrot SS húsa Sorgarsaga segir skiptastjórinn en öllum eignum í fyrirtækið hefur verið skotið undan að hans sögn. 20.3.2018 12:09
1,7 milljarða króna gjaldþrot vinnuvélafyrirtækis Um 171 milljón króna fékkst greitt upp í kröfur í 1,7 milljarða króna gjaldþroti FS 14 ehf, áður Íshluta. Fyrirtækið var stofnað árið 1998 og sérhæfði sig framan af í sölu notaðra vinnuvéla. 20.3.2018 11:18
Óttarr Proppé nýr verslunarstjóri Bóksölu stúdenta Félagsstofnun stúdenta, sem á og rekur Bóksölu stúdenta, hefur ráðið Óttarr Proppé sem verslunarstjóra Bóksölunnar. 20.3.2018 11:07
78 milljarða samdráttur lána 1.366 milljóna króna afgangur var á rekstri Íbúðalánasjóðs í fyrra. 20.3.2018 06:00
Segir hluthafa N1 senda skýr skilaboð um að almennir starfsmenn muni ekki njóta góðs af velgengni fyrirtækisins Tillaga stjórnar VR á aðalfundi N1 sem fram fór síðdegis í dag um að almennir starfsmenn fyrirtækisins myndu fá sambærilegar launahækkanir og forstjóri fyrirtækisins, Eggert Þór Kristófersson, var felld. 19.3.2018 21:00
Vlija uppfæra loftferðasamning við Rússland til að opna flugleið til Asíu Samgönguráðherra segir að íslensk stjórnvöld vinni að því að uppfæra loftferðasamning við Rússland. Skortur á almennri heimild til farþegaflutninga í samningnum kemur í veg fyrir beint farþegaflug milli Íslands og áfangastaða í Asíu sem hafa verið til skoðunar hjá íslensku flugfélögunum. 19.3.2018 19:00
Kaupaukagreiðslur ástæða milljóna launahækkunar forstjóra N1 Þetta kemur fram í skýrslu stjórnar fyrirtækisins sem lögð er fyrir aðalfund þess sem fram fer nú síðdegis í höfuðstöðvum fyrirtækisins en Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1, kynnir skýrsluna. 19.3.2018 17:17
Vill að Gildi selji allt hlutafé í N1 vegna launahækkunar forstjórans Guðmundur Ragnarsson, formaður VM - félags vélstjóra og málmtæknimanna hyggst leggja fram þá tillögu á stjórnarfundi lífeyrissjóðsins Gildis að sjóðurinn selji allt hlutafé sitt í N1. 19.3.2018 10:09
Matarkarfan hækkar í verði Meirihluti matvörunnar í verðkönnun Fréttablaðsins hjá Costco og Bónus hefur hækkað milli kannana. Viðskiptavinir kvarta á Facebook yfir verðhækkunum hjá Costco. Kílóverð á hveiti hækkað mest hjá Bónus 19.3.2018 06:00
Innflytjandi sá tækifæri í affallsvatni orkuvers Hún flutti til Íslands sextán ára gömul frá Palestínu en er nú búin að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki sem býr til fæðubótarefni úr affallsvatni virkjunar. 18.3.2018 23:00
„Það er bara verið að ræna hönnuði“ Eyjólfur Pálsson hjá EPAL furðar sig á að fólk hafi áhuga á að eiga eftirlíkingar af hönnun. Ein slík eftirlíking rataði inn á borð til hans og hann segir muninn á ekta hönnun og eftirlíkingu vera augljósan. 17.3.2018 09:45
Jarðarberjastríð milli matvöruverslana Costco skók markaðinn í fyrra en kílóverð jarðarberja hefur hækkað þar um 21,8 prósent síðan í haust. Nú er svo komið að kílóverð jarðarberja hjá Costco reyndist það næsthæsta hjá þeim fimm verslunum sem Fréttablaðið gerði verðathugun hjá. 17.3.2018 09:44
Lífeyrissjóður verslunarmanna furðar sig á launahækkun forstjóra N1 Lífeyrissjóður verslunarmanna, eigandi 13,3% hlutafjár í N1, lýsir undrun sinni á ákvörðun stjórnar N1 um launahækkun forstjóra félagsins. 16.3.2018 18:31
Eignir Jónsa við Spítalastíg metnar á 276 milljónir króna Tíu eignir Jóns Þórs Birgissonar, söngvara Sigur Rósar, við Spítalastíg í miðborg Reykjavíkur eru alls metnar á 276,2 milljónir króna samkvæmt fasteignamati í fasteignaskrá. 16.3.2018 16:45
Tækifæri í aðkomu erlendra fjárfesta „Ferðaþjónustan stendur á krossgötum, en eftir ævintýralegan vöxt undanfarinna ára er hún að verða fullvaxta undirstöðuatvinnugrein í íslenska hagkerfinu.“ 16.3.2018 11:47
Íslendingar ólmir í falsaðar hönnunarvörur Fallegar hönnunarvörur geta svo sannarlega lífgað upp á heimilið og glatt augað en það virðist ekki skipta sumt fólk máli hvort hönnun er ekta eða eftirlíking. 16.3.2018 10:30
Engin áform um lokun Toys 'R' Us hér á landi Verslanir Toys 'R' Us á Íslandi eru reknar af dönsku fyrirtæki. 16.3.2018 07:00
Tveimur sagt upp hjá Fríhöfninni Tveimur var í vikunni sagt upp hjá Fríhöfninni ehf., einkahlutafélagi sem er alfarið í eigu Isavia ohf. 16.3.2018 06:00
Eitt skrautlegasta fyrirtæki landsins fær milljón á kíló Litskrúðugasta fyrirtæki landsins gæti verið á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli og það fær milljón fyrir hvert kíló af efni sem það vinnur úr þörungum. 15.3.2018 23:15
Verkís og Arkís arkitektar hönnuðu byggingu ársins í Noregi Verkfræðistofan Verkís og arkitektastofan Arkís arkitektar hönnuðu sundhöllina Holmen í Asker í Noregi sem í gær var valið hús ársins 2017 þar í landi. 15.3.2018 11:41
Forstjóri N1 hækkaði um milljón á mánuði Laun og hlunnindi fimm helstu stjórnenda N1 hf. námu rúmum 210 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um nærri 30 milljónir milli ára. Laun og hlunnindi forstjórans hækkuð um 20,7 prósent, eða sem nemur rúmri milljón á mánuði 15.3.2018 08:00
Valitor ekki greitt út í arð fyrir útboð Arion Stjórn bankans hefur lagt áform um að ráðstafa hlutabréfum í kortafyrirtækinu í arðgreiðslu til hliðar í bili. Slík ráðstöfun myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21 prósents hlut í Valitor. 15.3.2018 06:00