Viðskipti innlent

Matarkarfan hækkar í verði

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Meirihlutinn úr matarkörfu Fréttablaðsins hefur hækkað hjá Bónus og Costco frá fyrri könnunum.
Meirihlutinn úr matarkörfu Fréttablaðsins hefur hækkað hjá Bónus og Costco frá fyrri könnunum.
Verð á völdum matvörum í verðkönnun Fréttablaðsins hjá Costco og Bónus þann 15. mars hefur hækkað frá síðustu könnun blaðsins.

Mesta hækkunin hjá Costco nemur tæpum 18 prósentum, á mjólkurlítranum, á meðan kíló af hveiti hefur hækkað um 20 prósent hjá Bónus. Í matarkörfu Fréttablaðsins, sem byggir á völdum vörum úr verð- lagsathugunum ASÍ, voru fjórtán vörur að þessu sinni.

Tólf þeirra voru til í Costco að þessu sinni en af þeim höfðu átta hækkað í verði frá síðustu könnun sem gerð var 2. nóvember síðastliðinn. Tvær vörur, Smjörvi og óhrært Skyr, voru merktar á sérstöku tilboðsverði, en sú síðarnefnda hafði þrátt fyrir það hækkað lítillega milli kannana.

Í einum fjölmennasta Facebook-hópi Íslands, Keypt í Costco, hafa notendur að undanförnu kvartað sáran yfir gríðarlegum verðhækkunum á einstaka vörum. Kannanir Fréttablaðsins sýna í það minnsta að meirihluti matvöru hefur hækkað í verði undanfarna mánuði. En ekki hækkar þó allt.

Kílóverð á bönunum hafði lækkað mest hjá Costco milli kannana, eða um 6,8 prósent. Kílóverð á ferskum, heilum kjúklingi og fersku nautahakki hafði síðan lækkað um 2,8 og 2,6 prósent.

Allar fjórtán vörurnar voru til í Bónus Kauptúni þar sem athugunin var gerð að þessu sinni, en af þeim höfðu níu hækkað í verði. Verð á þremur vörum reyndist óbreytt frá síðustu könnun sem gerð var 3. nóvember.

Hafa ber í huga að þó hækkunin á nautahakki virðist töluverð hjá Bónus helgast hún af því að þar var leitað að lægsta kílóverði í boði, og var ódýrari vara til í könnuninni 3. nóvember en þeirri sem gerð var 15. mars. Hjá Bónus reyndist mesta Matarkarfan hækkar í verði

Meirihluti matvörunnar í verðkönnun Fréttablaðsins hjá Costco og Bónus hefur hækkað milli kannana. Við- skiptavinir kvarta á Facebook yfir verðhækkunum hjá Costco. Kílóverð á hveiti hækkað mest hjá Bónus. lækkunin vera á kílói af sykri, 14,8 prósent, en kílóverð á eggaldini hafði lækkað um 14 prósent.

Sem fyrr var aðferðafræðin við verðathugun Fréttablaðsins sú sama og hjá Verðlagseftirliti ASÍ, þar sem skráð er niður uppgefið hilluverð vöru. Það byggir á því að það er verðið sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búð- inni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Könnunin var gerð sem fyrr segir þann 15. mars í verslunum Bónus og Costco í Kauptúni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×