Viðskipti innlent

Tveimur sagt upp hjá Fríhöfninni

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Verslun Fríhafnarinnar.
Verslun Fríhafnarinnar. Vísir
Tveimur var í vikunni sagt upp hjá Fríhöfninni ehf., einkahlutafélagi sem er alfarið í eigu Isavia ohf.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var annar starfsmannanna með þriggja áratuga starfsreynslu hjá fyrirtækinu.

Að sögn Þorgerðar Þráinsdóttur framkvæmdastjóra var mönnunum sagt upp vegna skipulagsbreytinga. Fækka þurfti um tvo starfsmenn í sextán manna deild og var það gert með þessum hætti eftir frammistöðumat.

Ekki væri þó um að ræða uppsagnir í stórum stíl eða meiriháttar breytingar á rekstri Fríhafnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×