Viðskipti innlent

Wow sagt núna álitlegri kostur fyrir Icelandair

Kristján Már Unnarsson skrifar
Skúli Mogensen, forstjóri Wow, fagnaði komu Airbus A330, fyrstu breiðþotu félagsins, í febrúar 2016, með þáverandi ráðherra ferðamála, Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Hann neyddist í vetur til að láta breiðþoturnar frá sér.
Skúli Mogensen, forstjóri Wow, fagnaði komu Airbus A330, fyrstu breiðþotu félagsins, í febrúar 2016, með þáverandi ráðherra ferðamála, Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Hann neyddist í vetur til að láta breiðþoturnar frá sér. Stöð 2/Steingrímur Þórðarson.
Staða Skúla Mogensen í erfiðum samningaviðræðum um framtíð WOW-flugfélagsins hefur breyst á síðustu sólarhringum, vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX þota um allan heim, og skyndilega hækkað verðmæti leigusamninga WOW air á Airbus þotum. Þetta er mat Kristjáns Sigurjónssonar, ritstjóra ferðamálasíðunnar Túristi. 

„Kyrrsetning Boeing MAX þota um heim allan hefur veikt stöðu Icelandair og jafnvel hækkað virði WOW air þar sem félagið notast við Airbus flugvélar,“ segir Kristján í grein um málið. 

Þar eru raktar viðræður Skúla við bæði Icelandair og bandaríska auðkýfinginn William Franke, stjórnanda Indigo Partners. Því er lýst hvernig stefni í að hlutur Skúla í WOW verði lítill eða jafnvel enginn. Þessi slæma samningsstaða Skúla skýri afhverju hann hafi leitað aftur til Icelandair um síðustu mánaðamót. 

„Skúli virðist því vera í nærri vonlausri stöðu en gæti sloppið úr WOW ævintýrinu með einhverri reisn ef félagið fer ekki á hausinn,“ segir á turisti.is.

Skúli á Reykjavíkurflugvelli vorið 2015 þegar hann fagnaði komu fyrstu Airbus A321-þotunnar.Vísir/Vilhelm
Kristján segir að framtíðarsýn Franke fyrir WOW gæti verið önnur en núverandi rekstrarmódel flugfélagsins er.  „Últra-lággjaldaflug” geri vanalega ekki út frá löndum þar sem laun séu almennt há og réttur launafólks mikill. Það megi leiða að því líkum að Icelandair færi illa út úr samkeppni frá lággjaldaflugfélagi sem gerði út á erlendar áhafnir. 

„Franke hefur líka sýnt að hann er ekki aðeins harður í samningaviðræðum við menn eins og Skúla heldur líka almennt starfsfólk,“ segir Kristján og rifjar upp samskipti hans við flugliða bandaríska flugfélagsins Frontier, sem Indigo Partners eigi. 

„Stórskuldugt og nærri eignalaust flugfélag er því ekki fýsilegur fjárfestingakostur eins og endurspeglast í kröfu Indigo Partners um helmings afskriftir skuldabréfaeigenda og smánarlegan hlut fyrir Skúla. Það er því ekki að undra að forsvarsfólk Icelandair hafi tekið fálega tilboði forsvarsfólks WOW um nýjar samningaviðræður um síðustu mánaðamót. 

Síðan þá hefur staða Icelandair hins vegar veikst vegna kyrrsetningar á Boeing MAX þotum félagsins. Stjórnendur þess sjá nú fram á að þurfa að gera breytingar á leiðakerfi  sínu og  jafnvel skera niður sumaráætlunina. Forstjórinn segir það til skoðunar að leigja flugvélar til að stoppa upp í götin sem MAX þoturnar skilja eftir sig en leiðakerfi Icelandair, frá og með vorinu, byggir á flugflota sem samanstendur af níu MAX þotum,“ segir Kristján ennfremur. 

TF-ICA, fyrsta Boeing 737 MAX 9 þota Icelandair, kom til landsins þann 23. febrúar síðastliðinn og átti að fara í notkun núna í síðari hluta marsmánaðar.Mynd/Icelandair.
„Stjórnendur fleiri flugfélaga standa frammi fyrir álíka vanda en framboð á leiguvélum, sem geta komið í stað Boeing MAX, er þó miklu minna en sem nemur öllum þeim þotum sem voru kyrrsettar. Verðmæti leigusamninga WOW air á Airbus þotum gæti þar með hafa hækkað umtalsvert síðustu sólarhringa og þá sérstaklega í augum forsvarsfólks Icelandair. Það flugfélag gerir vissulega út á Boeing þotur og blandaður flugfloti er ekki fyrsti kostur. Hann er þó kannski skárri valkostur en að þurfa að skera niður sumaráætlunina vegna flugvélaskorts. 

Flækjan sem blandaður flugfloti veldur er líka eitthvað sem stjórnendur Icelandair hafa vegið og metið, bæði þegar þeir keyptu WOW í nóvember og eins þegar þeir  gáfu út að framundan væru viðræður við bæði Boeing og Airbus um kaup á flugvélum. Í ljósi vandræðanna með MAX þoturnar þá gæti samstarf við franska flugvélaframleiðandann verið meira lokkandi í dag en það hefur hingað til verið. Og þá gæti verið akkur í því fyrir Icelandair að taka yfir samninga flugmanna WOW air sem þekkja frönsku flugvélarnar inn og út," segir ritstjóri Túrista.

Boeing 737 MAX 8 og MAX 9 í flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli við hlið Boeing 757 í síðasta mánuði. Gert er ráð fyrir níu þotum af MAX-gerð í sumaráætlun félagsins.Mynd/Icelandair.
„Í ljósi alls þessa má velta því fyrir sér hvort núna sé tímapunkturinn fyrir Icelandair að taka yfir WOW air. Skuldabréfaeigendur virðast tilbúnir í að taka á sig miklar afskriftir, samningsstaða Skúla hefur versnað enn frekar og mögulega er komin lausn á óhagstæðum leigusamningum WOW á Airbus breiðþotum sem ekki er lengur not fyrir. 

Skuldastaða WOW air er þó væntanlega ennþá verri en framhjá því verður ekki horft að einn stærsti kröfuhafinn, jafnvel sá stærsti, er íslenska ríkið í gegnum eign sína í Isavia. Ógreidd lendinga- og farþegagjöld WOW á Keflavíkurflugvelli gætu nefnilega numið umtalsverðum upphæðum eins og forstjóri Icelandair viðraði í ræðu sinni í síðustu viku.

Með eftirgjöf á þeirri skuld gæti ríkið komið í veg fyrir þann álitshnekki sem fall WOW myndi valda eða staðið vörð um að flugrekstur hér landi byggðist á íslenskum áhöfnum sem vinna samkvæmt íslenskri vinnulöggjöf. Enginn veit nefnilega á hvaða forsendum framtíðarsýn Indigo Partners fyrir WOW air byggir, eins og áður er rakið,“ segir í grein Kristjáns Sigurjónssonar á turisti.is.


Tengdar fréttir

Fyrsta MAX 9 þotan flaug yfir Reykjavík

TF-ICA, fyrsta 737 MAX 9 þota Icelandair, kom til Íslands í dag. Vélin flaug hring yfir Reykjavík áður en hún lenti á Keflavíkurflugvelli.

Gætu þurft að taka á sig tugprósenta afföll

Fulltrúar Indigo Partners krefjast þess að skuldabréfaeigendur WOW air taki á sig tugprósenta afskriftir og að endanlegur hlutur Skúla Mogensen verði minni en áður hefur verið rætt um. Skilyrðin ollu Skúla miklum vonbrigðum.

Icelandair kyrrsetur Boeing 737 MAX 8-vélarnar

Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flugvélar sínar úr rekstri um óákveðinn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×