Viðskipti innlent

Hefja sölu á í­búðum á Orkureitnum

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Mikill áhugi er á Orkureitnum en 25 íbúðir hafa þegar selst í forsölu.
Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Mikill áhugi er á Orkureitnum en 25 íbúðir hafa þegar selst í forsölu.

Sala hófst í dag á fyrsta áfanga af fjórum á Orkureitnum svokallaða. Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Stærð íbúða er á bilinu 38 - 166 fermetrar. 

25 íbúðir hafa þegar selst í forsölu að sögn Hilmars Ágústssonar, framkvæmdastjóra SAFÍR bygginga sem er eigandi og umsjónaraðili Orkureitsins. Íbúðirnar 68 verða allar afhentir samtímis næsta haust.

„Við höfum undanfarnar vikur fundið fyrir miklum áhuga á þessu nýja íbúðahverfi sem nú er að rísa á Orkureitnum. Það er gott að finna fyrir meðbyr með verkefninu. Viðskiptavinir okkar kunna vel að meta viðleitni okkar til að byggja vandaðar íbúðir á fallegum reit miðsvæðis þar sem stutt er að sækja annars vegar í verslun og þjónustu og hins vegar í Laugardalinn, sem hefur lengi verið eitt vinsælasta útivistarsvæði borgarbúa," er haft eftir Hilmari í fréttatilkynningu. 

Auk íbúðarhúsanna er gert ráð fyrir verslunar- og þjónusturýmum fyrir íbúa. Þá verður stórt bílastæðahús tengt byggingunum neðanjarðar.

Innanhússhönnuðurinn Rut Káradóttir stýrir vali á litum, efni, innréttingum og lýsingu, bæði innan íbúða og í sameiginlegum rýmum

„Rut Kára er ein af okkar fremstu innanhússhönnuðum og samstarfið við hana hefur verið afar gott. Hún hefur hannað 3 meginþema í innréttingum fyrir íbúðirnar sem hvert og eitt ber einstöku hönnunarauga hennar fagurt vitni. Þá verða stórir og fallegir inngarðar sem flæða yfir í sameiginlegt rými, Orkutorgið, sem verður vettvangur iðandi mannlífs", segir Hilmar.

Verslunar- og þjónusturými fyrir íbúa auk veitinga- og kaffihúsa

Á lóðinni verða byggð íbúðarhús í fjórum áföngum. Áfangi A er sá sem fór í sölu í dag. Áfangar B, C og D eru einnig í uppbyggingu og fara í sölu síðar, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Auk íbúðarhúsanna, sem telja í heildina 436 íbúðir er gert ráð fyrir 4000 fermetra atvinnuhúsnæði í Orkuhúsinu og á jarðhæð nýju húsanna, en þar er gert ráð fyrir verslunar- og þjónusturýmum fyrir íbúa og rekstur á borð við veitingahús og kaffihús. Þá verður stórt bílastæðahús tengt byggingunum neðanjarðar. Orkureiturinn er með hina alþjóðlegu BREEAM-umhverfisvottun og þá er markmiðið að allar íbúðir verði Svansvottaðar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×