Erlent

Ekki um brak úr vélinni að ræða

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Hishammuddin Hussein er settur samgönguráðherra Malasíu.
Hishammuddin Hussein er settur samgönguráðherra Malasíu. vísir/afp
Kínverskar gervihnattamyndir sem birtar voru í gær af því sem talið var vera brak úr malasísku flugvélinni sem hvarf á laugardag voru birtar fyrir mistök. Ekki er um brak úr vélinni að ræða að sögn Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra Malasíu.

Þetta kom fram á blaðamannafundi á alþjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpúr í dag og sagði ráðherrann það einnig rangt að vélinni hafi verið flogið í fjórar klukkustundir eftir að samband rofnaði við flugturninn, en frá því var greint í erlendum fjölmiðlum í morgun.

Hann segir leitina að vélinni í forgangi og leita nú 43 bátar og fjörutíu loftför vélarinnar í Suður-Kínahafi og Malaccasundi.

239 voru um borð í vélinni sem var á leið frá Kúala Lúmpúr til Peking.


Tengdar fréttir

Farþegaflugvélin breytti um stefnu

Týnda Boeing-farþegaflugvélin í Malasíu breytti um stefnu. Samkvæmt ratsjá var hún komin hundruð kílómetra frá því svæði sem síðast var vitað um ferðir hennar. Ekkert er vitað um ástæðuna fyrir þessari dularfullu stefnubreytingu vélarinnar.

Farsímar farþeganna hringja enn

Hvert sem afdrif flugvélarinnar kann að vera, á að teljast ómögulegt að símarnir skuli enn vera tengdir.

Ekkert bendir til hryðjuverka

Mennirnir tveir sem fóru með stolin vegabréf um borð í flugvél Malaysia Airlines, sem hefur verið saknað frá því á laugardag, eru taldir hafa ætlað að flytja til Evrópu.

Óttast að 239 séu látnir

Forsætisráðherra Malasíu segir of snemmt að kalla hvarf farþegaþotunnar í dag hryðjuverk.

Áhættuleikari í horfinni flugvél

Áhættuleikari sem hafði leikið í slagsmálamyndum á borð við The Grandmaster var á meðal farþega í flugvél Malaysia Airlines sem hvarf á laugardaginn.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×