Viðskipti innlent

Fyrirkomulag búvöruverðs muni á endanum tortíma sér

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fyrirkomulagið við ákvörðun búvöruverðs algjörlega út í bláinn og að kerfið muni á endanum tortíma sér. Fulltrúi í verðlagsnefnd segir alltaf erfitt að hækka verð en framkvæmdastjóri KÚ hefur kallað eftir aðgerðum frá landbúnaðarráðherra.

Ákvörðun verðlagsnefndar búvara um hækkun á mjólk og mjólkurafurðum frá og með 1. ágúst næstkomandi hefur verið harðlega gagnrýnd. Til að mynda hafa Samtök verslunar og þjónustu sagt að hækkunin komi á afar viðkvæmum tíma í kjölfar erfiðra kjarasamninga.

Forsvarsmenn Mjólkurbúsins KÚ óskuðu í dag eftir fundi með landbúnaðarráðherra um ákvörðun nefndarinnar og fara fram á að ráðherrann beiti sér fyrir því að hún verði endurskoðuð. Þá segir í tilkynningu frá KÚ:

„Leiðrétting á þessari síðustu verðlagningu er forsenda þess að KÚ geti haldið áfram rekstri.  Að öðrum kosti sjáum við okkur nauðbeygða að draga okkur út úr samkeppni á mjólkurvörumarkaði með tilheyrandi skaða fyrir neytendur.“

Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda og nefndarmaður í verðlagsnefnd búvara, segir skýringu þessarar ákvörðunar vera annars vegar hækkun á kostnaði í búrekstri bænda.

„Og svo hins vegar hækkanir sem eiga sér stað í mjólkuriðnaði og þá kannski fyrst og fremst launahækkanir, sem hafa verið að ganga yfir á síðustu misserum,” segir Sigurður. 

En að vera að hækka verð í kjölfar kjarasamninga þar sem allir aðilar hafa verið hvattir til að halda aftur af hækkunum. Er þetta ekki slæmur tímapunktur fyrir hækkanir sem þessar?

„Ætli það séu nú ekki allir tímapunktar erfiðir til að vera að hækka, er það ekki vilji okkar allra að vörur almennt hækki ekki eða hækki lítið,” segir Sigurður.

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fyrirkomulagið við ákvörðun búvöruverðs vera algjörlega út í bláinn.

Þarf þá ekki að breyta þessu kerfi að þínu mati?

„Jú auðvitað breytist þetta kerfi hægt og bítandi, þetta gengur sér til húðar. Þetta skapar ekki velmegun fyrir bændur, þetta skapar ekki velmegun fyrir neytendur, þetta skapar ekki velmegun fyrir nokkurn aðila. Þetta er í raun að tortíma sjálfu sér og það kemur bara hægt og bítandi í ljós. Það virðist enginn hafa kjark til að taka á þessu,” segir Vilhjálmur.


Tengdar fréttir

Hagfræðiprófessor segir reynt að bola burt KÚ

Hagfræðiprófessor segir að Verðlagsnefnd búvöru rukki samkeppnisaðila Mjólkursamsölunnar um of fyrir mjólk til að knésetja þá. Forstjóri MS segir að án aðkomu hins opinbera lognist landbúnaður hér á landi út af.

Stjórnvöld standi að verðhækkunum

Stjórnvöld standa að verðhækkunum á mjólkurvörum sem eru allt að þrefalt hærri en almennt verðlag, segir forstjóri Haga sem gagnrýnir stjórnvöld harðlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×