Viðskipti innlent

Fjármálaráðherra segir stöðu Borgunarmálsins mjög alvarlega

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bjarni Benediktsson segir í bréfi til Bankasýslu ríkisins að ætla megi að það verð sem Landsbankinn fékk fyrir eignarhlut sinn í Borgun hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist.
Bjarni Benediktsson segir í bréfi til Bankasýslu ríkisins að ætla megi að það verð sem Landsbankinn fékk fyrir eignarhlut sinn í Borgun hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist. Vísir/Ernir
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að sú staða sem upp sé komin í Borgunarmálinu sé alvarleg og ætla megi að það verð sem Landsbankinn fékk fyrir eignarhlut sinn í Borgun hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist.

Þetta kemur fram í bréfi sem fjármálaráðherra sendi í dag til stjórnar Bankasýslu ríkisins vegna umræðu um sölu Landsbankans á hlut hans í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun.

Sjá einnig: Landsbanki hafnar ásökunum um óheilindi við söluna á Borgun

Í bréfinu segir að samkvæmt upplýsingum og gögnum sem vísað hefur verið til í umræðu um Borgunarmálið megi ætla að það verð sem bankinn fékk fyrir eignarhlut sinn hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist. Í ljósi þeirrar gagnrýni sem sölumeðferð Landsbankans á Borgun hafi sætt sé ljóst að sú staða sem upp er komin sé alvarleg.

Landsbankinn seldi rúmlega þrjátíu prósenta hlut í Borgun fyrir 2,2 milljarða til stjórnenda og hóps fjárfesta árið 2014 en salan hefur sætt talsverðri gagnrýni að undanförnu. Hluturinn var ekki boðinn út og því ekki á allra færi að bjóða í hann.

Nauðsynlegt að tryggja traust til Landsbankans áður en lengra er haldið í söluferli bankans

Telur ráðherra að umræða undanfarinna vikna vegna sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða Landsbankann en stefnt er að því að selja allt að 28,2% hlut ríkisins í Landsbankanum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.

Telur hann því nauðsynlegt áður en lengra er haldið í því söluferli að hvaðeina er máli skiptir og varðar sölu Landsbankans á Borgun verði upplýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bankans og stjórnenda hans verði tryggt.

Sjá einnig: Borgun metin á allt að 26 milljarða

Stefnt að endurskoðun eigendastefnu

Vitnað er til þess að fjármálaráðherra sé ætlað að setja félögum í ríkiseigu eigendastefnu. Kjarni stefnunnar byggir á að umrædd fjármálafyrirtæki séu rekin með faglegum og gagnsæjum hætti þannig að almennt ríki traust á stjórn og starfsemi.

Í bréfinu segir að í eigendastefnunni er sérstaklega áskilið að fjármálafyrirtæki skuli koma sér upp innri verkferlum um lykilþætti í starfsemi sinni, þar með tölu sölu eigna og að mikilvægt sé að slíkir ferlar séu skilvirkir og gagnsæir.

Sjá einnig: Landsbankinn hafði allar upplýsingar um Borgun samkvæmt Borgun

Jafnframt er sagt að í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hafi farið fram endurskoðun á eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki og er þar m.a. gert ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjármálafyrirtækja sem stefnan nær til.

Bréf fjármálaráðherra til Bankasýslu ríkisins má lesa hér.


Tengdar fréttir

Landsbankinn hefur ekki fengið svör frá Borgun

Landsbankinn segist ekki hafa haft vitneskju um að Borgun ætti rétt til greiðslna vegna valréttar í tengslum við samruna Visa Inc. og Visa Europe, kæmi til þess að hann yrði virkjaður.

Borgun metin á allt að 26 milljarða króna

Kortafyrirtækið Borgun er metið á allt að 26 milljarða samkvæmt nýju virðismati sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur unnið fyrir stjórn Borgunar.

Bankastjóri segir gremju í þjóðfélaginu

Mikill hiti var í hópi mótmælenda sem komu saman fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti á hádegi í gær til að mótmæla sölu á 31,2 prósenta eignarhlut bankans í Borgun.

Samkeppniseftirlitið skoði óeðlilegan hagnað kortafyrirtækja

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að hagnaður greiðslukortafyrirtækja hér á landi sé óeðlilega mikill og vill að Samkeppniseftirlitið skoði málið. Fyrirtækin hafa á undanförnum árum hagnast um marga milljarða.

Bankasýslan óskar eftir upplýsingum frá Landsbankanum

Bankasýsla ríkisins hefur óskað eftir upplýsingum fra Landsbankanum um hvernig staðið var að sölunni á Borgun. Bref þessa efnis var sent Landsbankanum i gær. Þetta kom fram i máli Lárusar Blöndal stjórnarformanns Bankasýslunnar þegar hann mætti a fund fjárlaganefndar i morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×