Viðskipti innlent

Borgunarmálið: Um hvað snýst deilan?

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Bjarni, fjármála- og efnahagsráðherra, Steinþór, bankastjóri Landsbankans, Guðrún, fer fyrir stærsta einstaka eiganda eignarhaldsfélagsins sem keypti Borgun, og Einar, föðurbróðir Bjarna og einn af nýju eigendum Borgunar.
Bjarni, fjármála- og efnahagsráðherra, Steinþór, bankastjóri Landsbankans, Guðrún, fer fyrir stærsta einstaka eiganda eignarhaldsfélagsins sem keypti Borgun, og Einar, föðurbróðir Bjarna og einn af nýju eigendum Borgunar. Vísir / Auðunn / Valli / GVA
Landsbankinn seldi í síðasta mánuði stóran hlut í greiðslufyrirtækinu Borgun sem bankinn átti á móti Íslandsbanka. Salan hefur verið harðlega gagnrýnd þar sem ekki var farið í opin söluferli. Vísir tók saman feril málsins.

Magnús Magnússon, forsvarsmaður Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf, setti sig í samband við Landsbanka Íslands og sýndi áhuga á kaupum á hlut Landsbankans. Landsbankinn ákvað í kjölfarið að selja 31,2 prósenta hlut sinn í Borgun til félagsins fyrir tæpa 2,2 milljarða króna án þess að auglýsa hlutinn til sölu og gefa þannig öðrum færi á að gera tilboð.

Bankinn á einnig hlut í Valitor sem hann hyggst selja.Vísir / GVA
25. nóvember tilkynnti Landsbankinn um söluna á heimasíðu sinni. Þar sagði Steinþór Pálsson bankastjóri að Landsbankinn hafi undanfarið verið „áhrifalaus minnihlutaeigandi í Borgun en Íslandsbanki hefur átt meirihluta hlutafjár“. 

Kjarninn greinir frá því að stærsti einstaki aðilinn í hluthafahópnum eru Stálskip ehf. sem á rúm 23 prósent af heildarhlutafé félagsins, en hlutfjárflokkarnir eru þrír. Sjálfseignarfélagið Orbis Borgunar slf. er næststærsti einstaki hluthafinn með rúmlega 20 prósenta hlut. Það félag á bæði A og C hlutabréf en þeim fylgir mismunandi ábyrgð. Stálskip á B hlutabréf. 

Annar stór aðili sem stendur á bak við kaupin eru tengdur Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, fjölskylduböndum. Það eru feðgarnir Einar Sveinsson og Benedikt Einarsson sem eiga 15,6 prósent ef heildarhlutafé eignarhaldsfélagsins í gegnum félagið P126 ehf. sem er í eigu Charamino Holdings Limited, félag þeirra í Lúxemborg. Einar er föðurbróðir Bjarna.

Árni Páll hefur verið gagnrýninn á söluna.Vísir / Daníel
Bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar gagnrýndu sölu Landsbankans en bankinn er að nær fullu í eigu ríkisins og hlutur Borgunar því í raun í eigu ríkisins. Eðlilegt þykir að selja eignir ríkisins í opnu og gagnsæu söluferli. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði í fréttum Stöðvar 2 að málið lyktaði af klíkuskap

Bankinn svarar fyrir söluna með nýrri yfirlýsingu þar sem segir bankinn hafi ákveðið „að ekki væri rétt að selja hluta bankans í opnu söluferli“. Ástæðurnar sem taldar voru til voru einkum eftirfarandi:

  1. Landsbankinn hafði ekki aðstöðu til að afla upplýsinga um Borgun hf. sem áhrifalaus minnihlutaeigandi í fyrirtækinu.
  2. Landsbankinn hefur haft mjög takmarkaðan aðgang að Borgun eða upplýsingum um fyrirtækið vegna sáttar sem gerð var við Samkeppniseftirlitið árið 2008.
  3. Ríkar skyldur hvíla á bankanum við sölu eigna að veita sem bestar upplýsingar. Bankarnir voru harðlega gagnrýndir fyrir laka upplýsingagjöf við sölu á bréfum í Decode um síðustu aldamót.
  4. Bankinn fékk gott verð fyrir hlutinn í Borgun að mati Steinþórs.
Forsvarsmenn Landsbankans, Bankasýslu ríkisins, sem heldur utan um eignahlut ríkisins í Landsbankanum, og Fjármálaeftirlitsins voru kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar vegna sölunnar. Óljóst er hvað nákvæmlega fór fram á þeim fundi en tilgangurinn var að fræðast um söluferlið.


Tengdar fréttir

Fulltrúar Landsbankans kallaðir á fund Alþingis

Fulltrúar Landsbankans, Fjármálaeftirlitsins og Bankasýslu ríkisins hafa verið boðaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar til að ræða sölu á hlut bankans í Borgun.

Telur það ekki í verkahring Alþingis að skipta sér af Borgunarmálinu

Nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis segir það ekki í verkahring Alþingis að skipta sér af sölu Landsbankans af borgun. Horfið hafi verið frá pólitískum afskiptum af bönkum í ríkiseigu fyrir löngu síðan. Vísbendingar erum að að Borgun hf. hafi verið undirverðlagt þegar Landsbankinn seldi þriðjungshlut í fyrirtækinu án auglýsingar

Segir sölu á greiðslukortafyrirtækjum lykta af klíkuskap

Sala Landsbankans á greiðslukortafyrirtækjum lyktar af klíkuskap, segir formaður Samfylkingarinnar en að undirlagi hans hefur bankastjóri Landsbankans verið boðaður á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að fara yfir sölu bankans á hlutabréfum í Borgun hf.

Landsbankinn selur hlut sinn í Borgun

Landsbankinn undirritaði í dag samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf. Söluverðið er 2.184 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×