Innlent

Óvíst hvort að sambýliskona ofbeldismannsins nái sér að fullu

Helga Arnardóttir skrifar
Kona mannsins sem fékk átta ára fangelsisdóm fyrir gróft líkamlegt ofbeldi hlaut mikið andlegt tjón eftir þær barsmíðar og misnotkun sem hún varð fyrir. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Settur saksóknari í málinu segir óvíst að hún nái sér að fullu.

Dómur í málinu féll í gær og var fyrrverandi sambýlismaður konunnar dæmdur til að greiða henni tæpar fjórar milljónir króna í miskabætur. Maðurinn hyggst áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Á tveggja ára tímabili beitti hann hana grófu líkamlegu ofbeldi og neyddi hana auk þess til að hafa kynmök við ókunnuga karlmenn þar sem hann var sjálfur þátttakandi auk þess sem hann tók af því myndir.

Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari í málinu segir dóminn meta það svo að konan hafi hlotið mikið andlegt tjón eftir sambandið.

„Það kemur fram í niðurstöðum dómsins að það sé ekki víst hvort hún muni ná sér að fullu. Það voru ýmsir sérfræðingar leiddir fyrir dóm og þeim bar saman í hverskonar slæmu ásigkomulagi hún er í dag," segir Hulda Elsa.

Hulda Elsa segir að konan hafi greinst með áfallaröskun. „Ennfremur kemur líka í ljós að eftir að hún kynntist ákærða fór hún að eiga við áfengisvandamál að stríða sem hún hafði ekki átt við áður."

Í nýlegri íslenskri könnun sem kynnt var í vikunni hefur fjórða hver kona orðið fyrir kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu sambýlismanns. Í rannsókninni kemur einnig fram að þær konur sem orðið hafa fyrir slíku ofbeldi eru líklegri til að reykja og misnota áfengi og vímuefni.


Tengdar fréttir

Réttargæslumaður konunnar sammála lögreglu

Þórdís Bjarnadóttir, lögmaður, er sammála yfirmanni kynferðisbrotadeildar höfuðborgarlögreglunnar sem sagði í viðtali við Fréttablaðið að nálgunarbann eigi að vera undir lögreglu komið. Hæstiréttur hafnaði á dögunum kröfu lögreglu um að framlengja nálgunarbann gagnvart manni sem grunaður er um að hafa ítrekað beitt konu sína grófu ofbeldi og misnotað hana kynferðislega. Þórdís er réttargæslumaður konunnar.

Fær ekki að vitna í grófu ofbeldismáli

Hæstiréttur meinaði fyrr í mánuðinum barnsmóður og fyrrum sambýliskonu meints ofbeldismanns að vitna í máli gegn honum. Maðurinn er talinn hafa beitt aðra konu sem hann bjó með grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á fjögurra ára tímabili.

Telur að ofbeldismaðurinn haldi áfram að beita ógnunum

,,Maðurinn braut nálgunarbannið þó hann hafi ekki ráðist á konuna. Hann hafði samband við hana sem honum var ekki heimilt. Ég sé engin rök fyrir því maðurinn muni ekki halda áfram að beita konuna ofbeldi."

Ofbeldisfulli sambýlismaðurinn áfrýjar til Hæstaréttar

Karlmaðurinn sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni mun að öllum líkindum áfrýja dóminum til Hæstaréttar, að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns mannsins. Hann reiknar með að aðalkrafan verði að upphaflegu ákærunni verði vísað frá vegna vanhæfis ríkissaksóknara og sett saksóknara sem gaf út ákæruna í málinu.

Rannsókn á grófum ofbeldisbrotum nær út fyrir landsteinana

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á grófum brotum manns gegn sambýliskonu sinni teygir anga sína út fyrir landsteinana. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maðurinn, sem talinn er hafa beitt sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á rúmlega þriggja ára tímabil, skuli ekki sæta áfram nálgunarbanni.

Bíða með að færa úrskurðarvald um nálgunarbann frá dómstólum til lögreglu

Meirihluti allsherjarnefndar vill ekki að svo búnu færa vald til að úrskurða mann í nálgunarbann frá dómstólum til lögreglu, fyrst þurfi að skoða kosti og galla slíkrar breytingar ítarlega. Þetta kemur fram í nefndaráliti meirihlutans vegna frumvarps dómsmálaráðherra um nálgunarbann. Hins vegar leggur meirihlutinn áherslu á að úrræðið nálgunarbann verði virkara.

Rík ástæða til að fara fram á nálgunarbann

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir að embættið hafi talið ríka ástæðu til að fara fram á áframhaldandi nálgunarbann manns sem ákærður hefur verið fyrir að beita sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi.

Lögmaður: Rauf ekki nálgunarbannið

Maður sem grunaður er um að hafa beitt sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi braut ekki sex mánaða nálgunarbann sitt gagnvart konunni, að sögn Hilmars Ingimundarson verjanda mannsins.

Lifir í ótta eftir að nálgunarbanni var hafnað

Kona sem var beitt afar grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af sambýlimanni sínum í rúmlega þrjú ár er mjög ósátt við niðurstöðu Hæstaréttar frá því fyrir helgi, að sögn Gunnhildar Pétursdóttur, lögfræðings hennar.

Austurríska leiðin í höndum allsherjarnefndar

Björn Bjarnason segir ákvörðun um það hvort að austurríska leiðin, þar sem lögreglan fengi vald til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum, verði tekin upp hér á landi vera í höndum allsherjarnefndar.

Neyddi sambýliskonu sína til kynmaka með öðrum mönnum

Karlmaður var í dag dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Meðal annars neyddi maðurinn konuna til samræðis og annarra kynferðismaka við 11 aðra karlmenn. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að hafa ráðist á föður sinn og hótað honum lífláti. Manninum er gert að greiða konunni 3,8 milljónir króna í miskabætur.

Segir Björn standa í vegi fyrir austurrísku leiðinni

Dómsmálaráðherra hefur komið í veg fyrir að austurríska leiðin verði tekinn upp hér landi, að mati Kolbrúnar Halldórsdóttur. Úrræðið felur í sér að fbeldismaður er fjarlægður af heimili sínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×