Erlent

Afbókaði bæði í flug MH17 og MH370

Randver Kári Randversson skrifar
Flug MH 17 fer frá Schiphol flugvelli í Amsterdam 17. júlí sl.
Flug MH 17 fer frá Schiphol flugvelli í Amsterdam 17. júlí sl. Vísir/AFP
Það hefur vakið athygli hve lánsamur hollenski hjólreiðakappinn Maarten de Jonge hefur verið á undanförnum mánuðum. Á vef Independent er sagt frá því að De Jonge hafi átt bókað flug bæði með flugi MH370 Malaysia Airlines, sem hvarf þann 7. mars á leið frá Malasíu til Kína , og flugi MH17 sem fórst yfir Úkraínu í síðustu viku, en afbókað í bæði skiptin.

De Jonge er atvinnumaður í hjólreiðum og ferðast mikið þar sem hann tekur þátt í hjólreiðakeppnum víða um heim. Í viðtali við hollenska sjónvarpsstöð segir hann frá því að hann hafi ætlað að fljúga með MH370,  til að taka þátt í hjólreiðakeppni í Taívan. Hann hafi hins vegar ákveðið að taka annað flug til þess að komast hjá því að millilenda í Peking. Þar sem hann hafi skipt um flug á síðustu stundu, þá hafi hann meira að segja talað við nokkra farþega sem voru að bíða eftir að fara um borð í MH370 á flugvellinum.

Jafnframt átti hann að fljúga með MH17 frá Amsterdam til Kuala Lumpur í síðustu viku en hætti snögglega við og ákvað að taka annað flug, sem fer frá Frankfurt í dag, vegna þess að það hafi verið ódýrara.  

 

Af virðingu við þá sem létust hyggst de Jonge ekki veita fleiri viðtöl og vill ekki vekja frekari athygli á sögu sinni. Í yfirlýsingu á heimasíðu sinni segir hann að sín reynsla sé ekkert í samanburði í við það sem svo margir aðrir gangi nú í gegnum. Hann vilji ekki að sín saga skyggi á nokkurn hátt á þann harmleik sem hafi dunið yfir í bæði skiptin sem hann hafi hætt við flug hjá Malaysia Airlines.


Tengdar fréttir

Farþegi tók mynd af vélinni fyrir flugtak

Hollenskur farþegi sem var um borð í Boeing-777 vél Malaysia Airlines, tók mynd af vélinni áður en hann fór um borð og skrifaði: "Ef hún týnist, lítur hún svona út.“

Aðstandendur látnu farþeganna fá 5000 dali

Fjölskyldur farþeganna sem létust í flugi MH17 síðastliðinn fimmtudag fá fimm þúsund Bandaríkjadali, eða rúmlega hálfa milljón íslenskra króna, frá flugfélaginu Malaysian airlines.

Þjóðerni hluta farþeganna staðfest

Staðfest hefur verið að um borð í Boeing 777 flugvél Malaysia Airlines sem fórst yfir austurhluta Úkraínu í dag voru 154 Hollendingar. Einnig er ljóst að um borð voru 27 Ástralir, 23 Malasar, 11 Indónesar, 6 Bretar, 4 Þjóðverjar, 4 Belgar, 3 Filippseyingar, 1 Kanadamaður.

Þjóðarsorg í Hollandi

Hollendingar eru í áfalli vegna dauða 173 Hollendinga sem fórust þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í gær.

Harmleikurinn í Úkraínu

Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×