Veröld Hugins

Vísir Innlent 21. desember 2007 18:31
Huginn Heiðar í einu hjálpartækinu sínu, göngugrind.
Huginn Heiðar í einu hjálpartækinu sínu, göngugrind. MYND/Jóhann Jóhannsson
Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar:

Huginn Heiðar Guðmundsson fæddist með alvarlegan lifrasjúkdóm árið 2004. Eftir að móðir hans gaf honum hluta af sinni lifur lagaðist sjúkdómurinn, en þá tók við alvarlegur lungnasjúkdómur. Huginn getur ekki verið án súrefnisgjafar og er því bundinn við súrefnisvélar-eða kúta. Þetta gerir það að verkum að hann kemst ekki út af heimili fjölskyldunnar nema með mjög mikilli fyrirhöfn.

Fjölskylda Hugins er sú síðasta sem Vísir kynnir til sögunnar þessi jól. Það er Iceland Express sem kemur til móts við framlag Vísis með 50 þúsund króna styrk til fjölskyldunnar. Almenningur getur einnig lagt henni lið með því að leggja inn á reikning fjölskyldunnar.

Huginn er það barn sem hefur verið lengst á sjúkrahúsi hér á landi síðustu árin, en hann hefur eytt 2/3 hluta ævinnar á spítala.



Líffæraflutningar í Bandaríkjunum
Þegar lifrarskiptin voru framkvæmd í Bandaríkjunum var Huginn á sjúkrahúsi í hálft ár. Fjóla Ævarsdóttir móðir hans gekk í gegnum áhættusama aðgerð til að gefa honum hluta af sinni lifur. Aðgerðirnar voru framkvæmdar á sitthvoru sjúkrahúsinu. Huginn beið lifrinnar á skurðarborði barnaspítala í Pittsburg í Pennsilvaníu á meðan Fjóla var skorin á sérhæfðum spítala í sömu borg.

Björg Hafsteinsdóttir sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Suðurnesja kemur heim til Hugins þrisvar í viku til að þjálfa hann. Hún segir æfingarnar skipta höfuðmáli fyrir drenginn og hefur séð þó nokkrar framfarir hjá honum. Huginn er eini skjólstæðingur Bjargar sem hún sækir heim. Hún segist ekki hafa geta neitað Fjólu um að þjónustan færi fram á heimilinu þegar hún óskaði eftir því. "Þessi heimur sem þau eru í er svo ótrúlega erfiður og þau þurfa eins mikla hjálp og þau geta fengið," segir hún.

Huginn fer öðru hvoru í Rjóðrið, vistunarheimili fyrir alvarlega veik börn, til að foreldrarnir fái örlitla hvíld, en Fjóla er algjörlega bundin við heimilið. Það sem flestir telja sjálfsagt, eins og að fara saman í veislur, er ekki möguleiki hjá hjónunum. Sérþjálfuð manneskja þarf að gæta Hugins svo Fjóla og Guðmundur komist saman út, hvort sem það er í matvöruverslun eða annað.

Veikindi Hugins hafa haft þær afleiðingar að áætlanir fjölskyldunnar hafa oft riðlast. Til dæmis hafa ferðalög jafnvel dottið uppfyrir eða orðið styttri en til stóð. En í haust fór Guðmundur þó með Guðjón, bróðir Hugins, í fótboltaferð sem hann fékk í fermingargjöf síðastliðið vor. "Þá þurfti ég að kaupa inn fyrir heimilið því Fjóla gat ekki farið út alla helgina af því ég var í útlöndum," segir Guðmundur.

Engin kósíkvöld hjá hjónunum

Vegna súrefnisvéla á heimilinu eykst súrefnismagn í loftinu. Við það skapast eldhætta sem gerir það að verkum að ekki er hægt að kveikja á kertum, nema þegar Huginn fer í Rjóðrið. Foreldrarnir reyna því að nýta tímann fyrir sig þá, en þó hefur gerst að þau hafi ætlað í kósíferð í sumarbústað yfir helgi þegar Huginn veiktist og ekkert varð að því að þau fengju stund saman í rólegheitum, heldur tók við vakt á spítalanum.

Hjónin hafa þjálfað upp manneskju sem getur komið og gætt hans ef þau þurfa að fara frá. Hún hefur þurft að læra á fjölda tækja, en fyrir utan súrefnistækin og fæðudælu þarf að fylgjast með mónitor sem mælir púls og súrefnismettun á kvöldin.

Guðmundur Guðbergsson faðir Hugins var frá vinnu í eitt og hálft ár vegna veikindanna. Þegar Huginn var á sjúkrahúsinu í Pittsburg var söfnun í gangi á heimasíðu Hugins á Barnalandi sem gerði fjölskyldunni kleift að halda raðhúsi sem þau höfðu nýfest kaup á.

Guðmundur telur að foreldrar svo mikið veikra barna eigi ekki að þurfa að hafa áhyggjur af fjárhag fjölskyldunnar ofan á það álag sem fylgir slíkum aðstæðum.

Húsið þarfnast mikilla lagfæringa sem fjölskyldan hefur ekki getað farið í vegna tekjutapsins en Guðmundur byrjaði að vinna aftur hjá Fríhöfninni sem hefur reynst honum afar vel í gegnum veikindin .

Huginn Heiðar á fjögur systkini. Þau gera sér öll grein fyrir að veikinidin eru ekki honum að kenna og hann er einn af fjölskyldunni. Guðmundur segir að það megi orða það þannig að hann haldi þeim í gíslingu vegna veikindanna. Öllum þyki þó óskaplega vænt um Huginn og Ásdís Rán systir hans segist óska þess heitast að lækning finnist á sjúkdómnum svo Huginn verði heilbrigður drengur.

Þeir sem vilja styrkja fjölskylduna geta lagt inn á reikning 1109-05-449090 kt. 181104-3090. Heimasíðu Hugins Heiðars á Barnalandi má sjá hér.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 26. maí. 2012 06:45

Verðbólga lækkaði merkjanlega

Tólf mánaða verðbólga lækkaði úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímælingu Hagstofunnar. Va...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:00

Risaratsjár Monge forða geimárekstrum

Franska skipið Monge liggur við Reykjavíkurhöfn. Það er einstaklega vel tækjum búið og fyl...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 04:00

Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku

Formlegar viðræður um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu viku. Að sögn Ingvar...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:54

Framhaldið af Hungurleikunum komið út á íslensku

Slökkviliðsbíll var til taks þegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:45

Matarolía af ökrum íslenskra bænda

Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þett...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:02

Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin

„Ég held að þetta fari þannig að Svíþjóð vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 20:02

Jónsa og Grétu Salóme spáð 2. sæti

OGAE, eða Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alþjóðlegum samtök...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:13

Hvað gerum við ef við vinnum Eurovision?

"Það er ekki til nein viðbragðsáætlun í þessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:45

Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:20

Raunhæft að ljúka viðræðunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja að öll spilin í aðildarviðræð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:30

Lögreglumenn fóru að selja trúnaðarupplýsingar haustið 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært til ríkissaksóknara vegna brot...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harður árekstur í Hafnarfirði

Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR

Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu

"Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“

"Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði

Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farþega

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosið um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferðin kom til af nauðsyn

Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kær...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glæpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagræðingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Veröld Hugins