Erlendar

Fréttamynd

Knapi í lífshættu

Alvarlegt slys varð á veðreiðum um daginn þegar knapinn Brian Toomey féll af baki með skelfilegum afleiðingum.

Sport
Fréttamynd

Hollenska blakkonan fannst látin

Spænska lögreglan fann í dag tvö lík. Samkvæmt þarlendum fjölmiðlum eru líkin af hollensku blakkonunni Ingrid Visser og unnusta hennar en þeirra hefur verið saknað í um tvær vikur.

Sport
Fréttamynd

Nadal flengdi Federer í Róm

Spánverjinn Rafael Nadal fór illa með Svisslendinginn Roger Federer í úrslitaleik Opna ítalska meistaramótsins í tennis sem lauk í gær. Nadal hreinlega flengdi Federer í úrslitaleiknum og vann leikinn í tveimur settum, 6-1 og 6-3. Aðeins tók 68 mínútur að ljúka leiknum sem þykir stuttur leiktími í tennisheiminum.

Sport
Fréttamynd

Pistorius gæti keppt á HM í Moskvu

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius fékk í dag leyfi til þess að taka þátt á frjálsíþróttamótum út um allan heim þó svo hann hafi verið kærður fyrir morð í heimalandinu. Réttarhöldin eru ekki hafin.

Sport
Fréttamynd

Pistorius frjálst að keppa út um allan heim

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius hefur verið ákærður fyrir morð á unnustu sinni. Honum er engu að síður frjálst að ferðast út um allan heim og keppa í spretthlaupum.

Sport
Fréttamynd

Sögulegt hjá Patrick

Kappaksturskonan Danica Patrick náði sögulegum áfanga í Daytona 500-kappakstrinum um helgina. Hún byrjaði fremst en endaði í áttunda sæti.

Sport
Fréttamynd

Patrick á ráspól fyrir Daytona 500

Einn vinsælasti íþróttamaður Bandaríkjanna, kappaksturskonan Danica Patrick, gerði sér lítið fyrir um helgina og nældi í ráspól fyrir Daytona 500-kappaksturinn.

Sport
Fréttamynd

Fullt hús í tæp tíu ár

Eitt frægasta íþróttafélag Bandaríkjanna er hafnaboltafélagið Boston Red Sox. Þar hefur verið uppselt á völlinn í tæp tíu ár. Frá því 15. maí árið 2003 hefur verið uppselt á alla leiki liðsins á hinum fornfræga velli, Fenway Park. Liðið er búið að spila 793 leiki í röð fyrir fullu húsi.

Sport
Fréttamynd

Ellefu íþróttamenn sem hættu á toppnum

NFL-leikmaðurinn Ray Lewis fékk fullkominn enda á frábæran feril er hann vann Super Bowl með Baltimore Ravens um helgina. Sautján ára ferill endaði eins og í góðu ævintýri.

Sport
Fréttamynd

Svikarinn segir Dr. Phil að hann elski Te'o

Heitasta fréttamálið í Bandaríkjunum snýr að ruðningsleikmanninum hjá Notre Dame, Manti Te'o. Hann var plataður skelfilega af vini sínum á netinu og taldi sig eiga í sambandi við stúlku í gegnum internetið.

Sport
Fréttamynd

Armstrong: Ferillinn minn var ein stór lygi

Það var mikið áhorf á þátt Oprah Winfrey í nótt er hjólreiðakappinn Lance Armstrong var í viðtali hjá henni og játaði ólöglega lyfjanotkun í fyrsta skipti. Armstrong sagði að ferill sinn væri ein stór lygi. Hann hefði verið á ólöglegum lyfjum í öll skiptin er hann vann Tour de France.

Sport
Fréttamynd

Armstrong segist hafa opnað sig

Heimurinn bíður spenntur eftir viðtali Opruh Winfrey við hjólreiðakappann Lance Armstrong. Viðtalið var tekið á mánudag en verður sýnt á morgun.

Sport
Fréttamynd

Hjólreiðar gætu horfið af Ólympíuleikunum

Allt lyfjahneykslið í kringum Lance Armstrong gæti leitt til þess að hjólreiðar verði ekki lengur Ólympíþrótt. Á föstudag birtir Oprah Winfrey viðtal sitt við Armstrong þar sem hann viðurkennir loks lyfjanotkun.

Sport
Fréttamynd

Helga María í sjötta sæti

Helga María Vilhjálmsdóttir hafnaði í sjötta sæti í svigi á FIS-móti í Oppdal í Noregi í morgun. Einar Kristinn Kristgeirsson hafnaði í 14. sæti í karlaflokki. Þetta kemur fram á heimasíðu Skíðasambands Íslands.

Sport
Fréttamynd

Sjö þjálfarar tóku pokann sinn í NFL

Sjö þjálfarar og fimm framkvæmdastjórar í NFL-deildinni fengu að taka pokann sinn á síðasta degi ársins 2012. Meðal þjálfaranna var Andy Reid sem stýrt hefur liði Philadelphia Eagles undanfarin fjórtán ár.

Sport
Fréttamynd

Peter Gade kvaddi Dani í tárum

Badmintonkempan Peter Gade lagði í gærkvöldi spaðann formlega á hilluna eftir kveðjuleik gegn Kínverjanum Lin Dan í Kaupmannahöfn.

Sport
Fréttamynd

Sunday Times fer í mál við Lance Armstrong

Breska blaðið Sunday Times hefur ákveðið að fara í mál gegn fyrrum hjólreiðakappanum Lance Armstrong sem fékk lífstíðarbann á árinu og missti alla Tour de France titlana sína.

Sport
Fréttamynd

Phelps valinn sá besti í ár

AP-fréttastofan hefur valið sundkappann Michael Phelps íþróttamann ársins. Þetta er í annað sinn sem Phelps fær þessi eftirsóttu verðlaun. LeBron James varð annar. Phelps reynir fyrir sér í golfi þessa dagana.

Sport