Sport

Dómari rekinn eftir að hafa fallið á lyfjaprófi

Runge er hér að rífast við áhorfanda.
Runge er hér að rífast við áhorfanda.
Það eru ekki bara íþróttamenn sem falla á lyfjaprófum því nú hefur dómari í bandaríska hafnaboltanum verið rekinn vegna lyfamisnotkunar.

Dómarar þurfa að undirgangast lyfjapróf rétt eins og leikmenn og Brian Runge er fyrsti dómarinn sem fellur á lyfjaprófi

Forráðamenn deildarinnar hafa ekki viljað tjá sig um málið en AP-fréttastofan hefur áreiðanlegar heimildir fyrir þessu.

Þetta er aðeins í annað skipti sem gera þarf breytingu á dómarahópnum í deildinni. Síðast gerðist það árið 2000 en þá meiddist dómari.

Runge kemur af mikilli dómarafjölskyldu en bæði afi hans og faðir dæmdu í MLB-deildinni. Hann hefur verið að dæma í deildinni síðan árið 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×