Sport

Nadal flengdi Federer í Róm

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Rafael Nadal við keppni í gær. Mynd/GettyImages
Rafael Nadal við keppni í gær. Mynd/GettyImages

Spánverjinn Rafael Nadal fór illa með Svisslendinginn Roger Federer í úrslitaleik Opna ítalska meistaramótsins í tennis sem lauk í gær. Nadal hreinlega flengdi Federer í úrslitaleiknum og vann leikinn í tveimur settum, 6-1 og 6-3. Aðeins tók 68 mínútur að ljúka leiknum sem þykir stuttur leiktími í tennisheiminum.

Nadal hefur verið í frábæru formi síðan hann snéri tilbaka úr meiðslum í febrúar. Hann var frá keppni í sjö mánuði vegna meiðsla en hefur nú unnið sex af síðustu átta mótum sínum og er þetta í sjöunda sinn sem þessi 26 ára tennisleikari sigrar á Opna ítalska.

„Það er algjör draumur fyrir mig að hafa unnið sex mót af síðustu átta. Ég hefði aldrei trúað að ég gæti náð þessum árangri þegar ég snéri tilbaka í febrúar,“ segir Nadal. Opna franska meistaramótið, sem er eitt af risamótunum fjórum í tennisheiminum, er framundan og þykir Nadal nú sigurstranglegastur. Með sigrinum í gær fór Nadal upp í fjórða sæti heimslistans og kemur það í veg fyrir að hann geti mætt besta tennisleikara heims um þessar mundir, Serbanum Novak Djokovic, fyrr en í undanúrslitum á Opna franska mótinu.

Nadal í sérflokki á leirvöllum

Leikið var á leirvelli á Opna ítalska mótinu um helgina en það er einnig gert á Opna franska. Það eru fáir tennisleikarar sem leika betur á leir en Nadal og réð Federer ekkert við Spánverjarnn.

„Hann lék mjög sókndjarft frá upphafi. Nadal gerði ekki mörg mistök og átti mjög góðan leik. Rafa hafði mun meiri toppspuna en allir aðrir í mótinu og ég réð illa við það. Ég reyndi að sækja en því miður þá átti ég ekki minn besta dag,“ sagði Federer.

Nadal hefur unnið 11 stórmót á ferli sínum og hafa sjö sigrar hans komið á Opna franska. Hann þykir því mjög sigurstranglegur og yfirburðir hans á leirvelli þóttu augljósir á Opna ítalska um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×