Viðskipti innlent

Skóflustunga tekin að kísilverksmiðju í Helguvík

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra voru meðal þeirra sem tóku fyrstu skóflustungurnar að kísilverksmiðjunni
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra voru meðal þeirra sem tóku fyrstu skóflustungurnar að kísilverksmiðjunni Mynd/Aðsend
Skóflustunga að nýrri kísilmálmverksmiðju United Silicon var tekin í dag í Helguvík á Suðurnesjum. Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, Doron Sanders, stjórnarformaður United Silicon, og Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra héldu stutt erindi en athöfnin fór fram á lóð félagsins að Stakksbraut 9 þar sem kísilverksmiðja United Silicon mun rísa.



Framkvæmdir við byggingu fyrsta áfanga verksmiðjunnar munu nú hefjast en jarðvegsframkvæmdir eru þegar hafnar á svæðinu. Verksmiðjuhúsið verður 41 metra hátt og um 5.000 fermetrar að stærð. Þar inni verður stór ljósbogaofn sem framleiðir kísilmálminn. Gert er ráð fyrir að starfsemi verksmiðjunnar hefjist á fyrri hluta ársins 2016.



,,Allir lykilsamningar verkefnisins eru í höfn. Verkefnið er afar umfangsmikið og mun á uppbyggingartíma skapa allt að 300 störf og um 60 störf eftir að verksmiðjan hefur starfsemi. United Silicon verður mikilvæg stoð í íslensku atvinnulífi sem skapar þjóðarbúinu auknar gjaldeyristekjur til framtíðar,“ segir Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon í tilkynningu frá félaginu.



Áætlað er að framleiðsla hefjist á vormánuðum árið 2016 og nemi 21.300 tonnum á ári. Stefnt er að því að reisa alls fjóra ofna í verksmiðjunni ef næg orka fæst til þess og þá verður verksmiðjan stærsta kísilverksmiðja í heimi.



,,Það er búið að tryggja raforku fyrir einn ofn en það eru 35 megavött. Miðað við fjóra ofna þarf kísilverksmiðjan 140 megavött  Við erum búnir að sækja um og fá starfsleyfi fyrir þrjá ofna í viðbót. Verksmiðjan er hönnuð með þessa stækkun í huga. Miðað við fjóra ofna verður framleiðslugetan 85.000 tonn á ári. Við stefnum að því að ná þessari framleiðslu á tíu árum,“ segir Magnús.



Heildarfjárfestingin, miðað við fjóra ofna í rekstri, er um 35 milljarðar króna.  Fjármögnun verkefnisins er samvinna danskra og hollenskra fjárfesta frá Fondel Group, en lánsfjármögnun verkefnisins og ráðgjöf er í höndum Arion banka.


Tengdar fréttir

Átta verkefni í Helguvík á borðinu

Reykjanesbær undirritaði nýverið viljayfirlýsingar við þrjú fyrirtæki sem hafa óskað eftir lóð í Helguvík. Tvö vilja framleiða vörur fyrir bílaiðnað og það þriðja vinna kísil.

Tvö kísilver að komast í höfn

Vonir standa til að smíði kísilvera í Helguvík og á Húsavík verði staðfest innan tveggja vikna með því að öllum fyrirvörum vegna samninga verði aflétt.

Koma kísilvera þrengir kosti Helguvíkurálvers

Nýgerðir samningar og viljayfirlýsingar um allt að fjögur kísilver auka þrýsting á fleiri nýjar virkjanir, sérstaklega ef jafnframt á að mæta óskum Norðuráls vegna álvers í Helguvík.

Misheppnuð ævintýri Silicor Materials

Stjórnvöld í Ohio og Mississippi hafa farið flatt á viðskiptum sínum við fyrirtækið sem hyggst reisa sólarkísilverksmiðju fyrir 77 milljarða króna á Grundartanga.

Tveir raforkusölusamningar í byrjun viku

Landsvirkjun hefur gert raforkusölusamninga við fyrirtæki sem hyggjast byggja hér kísilmálmverksmiðjur. Gerjun á heimsmarkaði skýrir hraða þróun. Skýrist fyrir lok maí hvort áform í Helguvík ganga eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×