Enski boltinn

Sex frábærir fyrir Manchester United

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Louis Van Gaal er örugglega ánægður með þá leikmenn sem Fréttablaðið stingur upp á að hann skoði í janúar.
Louis Van Gaal er örugglega ánægður með þá leikmenn sem Fréttablaðið stingur upp á að hann skoði í janúar. Vísir/Getty
Louis van Gaal, stjóri Man. Utd, mætir líklega til leiks á leikmannamarkaðinn eftir áramót með troðfullt veskið. Á óskalistanum eru varnarmenn. Fréttablaðið skoðar hvaða leikmenn enska liðið mun líklegast bjóða ríflega í.

Varnarleikur Man. Utd hefur verið mikið í sviðsljósinu það sem af er leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Of margir varnarmanna liðsins þykja ekki nógu góðir og tíð meiðsli varnarmannanna hafa ekki létt liðinu lífið.

Kaup á varnarmönnum eru yfirvofandi á Old Trafford og hafa ýmsir varnarmenn verið nefndir til sögunnar. Það gæti reynst þrautin þyngri að ná í eitthvað af þessum mönnum en allt ku nú vera falt fyrir rétta upphæð.

mats hummels
Mats Hummels

Dortmund

Aldur 26 ára

Land Þýskaland

Hæð 191 sm.

Hummels hefur verið sem klettur í vörn Borussia Dortmund undanfarin ár og frammistaða hans hefur verið þess eðlis að hann hefur verið orðaður við mörg bestu lið Evrópu.

Hann er líklega sá varnarmaður sem hefur verið hvað sterkast orðaður við Man. Utd.

Verðmiðinn á honum lækkaði ekki á HM síðasta sumar þar sem hann fór mikinn og skoraði meðal annars sigurmark Þjóðverja gegn Frökkum í átta liða úrslitum keppninnar. Hann var svo valinn einn af tíu bestu mönnum mótsins.

ezequiel garay
Ezequiel Garay

Zenit

Aldur 28 ára

Land Argentína

Hæð 186 sm.

Garay var þráfaldlega orðaður við Man. Utd fyrr á árinu en að lokum fór svo að Benfica seldi hann til Zenit í Rússlandi á 12 milljónir punda. Margir segja það vera gjafverð fyrir þennan frábæra leikmann.

Er Garay var hjá Real Madrid átti hann ekki upp á pallborðið hjá Jose Mourinho og var því seldur árið 2011.

Eftir það hefur leiðin legið rakleitt upp á við og hann spilaði mjög vel fyrir Argentínu á HM. Það er kreppa hjá rússneskum liðum og hann gæti losnað í janúar.

raphael varane
Raphael Varane

Real Madrid

Aldur 21 árs

Land Frakkland

Hæð 191 sm.

Varane var kominn með annan fótinn til Man. Utd árið 2011 er Jose Mourinho „stal“ honum til Real Madrid. Þar fékk hann mikil tækifæri og sýndi ótrúlega þroskaða og yfirvegaða spilamennsku er hann var enn ekki orðinn tvítugur.

Þó svo hann sé nýbúinn að skrifa undir langtímasamning við Real fær hann ekki sömu tækifæri hjá Carlo Ancelotti og hann fékk undir stjórn Mourinhos.

Mourinho er sjálfur mjög spenntur fyrir því að kaupa varnarmanninn og Man. Utd gæti því lent í kaupstríði við Chelsea.

gerard pique
Gerard Pique

Barcelona

Aldur 27 ára

Land Spánn

Hæð 192 sm.

Uppalinn hjá Barcelona en var hjá Man. Utd frá 2004 til 2008. Þá fór hann aftur til Barcelona. Eftir farsæl síðustu ár hefur gefið á bátinn í vetur og hefur hann í kjölfarið verið orðaður á ný við sitt gamla félag á Englandi.

Pique er ekki sagður eiga skap saman við núverandi þjálfara Barcelona, Luis Enrique, og mátti sætta sig við bekkjarsetu framan af móti og var ekki ánægður með það.

Man. Utd myndi örugglega taka á móti honum með opinn faðminn en Chelsea er einnig sagt vera áhugasamt.

diego godin
Diego Godin

Atletico Madrid

Aldur 28 ára

Land Úrúgvæ

Hæð 186 sm.

Hefur verið sterklega orðaður við sölu til Man. Utd í janúar en þessi frábæri varnarmaður mun ekki fást á neinu tombóluverði.

Það kostar 28,5 milljónir punda að losa hann undan samningi og það er sú upphæð sem Atletico ætlar að fá fyrir hann. Leikmaðurinn er algjörlega ómissandi fyrir liðið sem hefur haldið hreinu í fimm leikjum í röð í Meistaradeildinni.

Atletico ætlar ekki að hlusta á nein tilboð undir þessari upphæð. Leikmaðurinn er það verðmætur.

miranda
Miranda

Atletico Madrid

Aldur 30 ára

Land Brasilía

Hæð 186 sm.

Man.Utd hefur áhuga á báðum miðvörðum Atletico og ætlar að landa Miranda eða Godin. Miranda er ódýrari enda eldri.

Þó svo hann hafi ekki komist í HM-hóp Brasilíu síðasta sumar þá hefur hann verið frábær hjá Atletico og löngu sannað sig í Evrópuboltanum.

Hann hefur verið meiddur upp á síðkastið og hefur liðið leyst fjarveru hans vel. Atletico gæti því hugsað sér framtíð án hans. Reynslumikill leikmaður sem gæti klárlega nýst liði Man. Utd vel.


Tengdar fréttir

Meiðslin eru Van Gaal að kenna

Leikmenn Man. Utd hafa meiðst 43 sinnum síðan Louis van Gaal tók við liðinu og ansi líklegt að ekki sé bara einskærri óheppni um að kenna.

Van Gaal: Pellé leikur eins og Van Persie

Ítalinn Graziano Pellé hefur farið mikinn í upphafi feril síns í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og skorað 6 mörk fyrir Southampton í deildinni og níu mörk alls en Southampton tekur á móti Manchester United annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×