Viðskipti innlent

Segir sölu Arion banka á hlutum í Símanum dæmi um „spilavítiskapítalisma“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson. vísir/vilhelm
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vandar Kviku og Arion banka ekki kveðjurnar í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni. Össur segir að bankarnir séu saman að innleiða hér það sem hann kallar „spilavítiskapítalisma“ og segir fyrsta dæmið útboð Arion banka á hlutabréfum í Símanum.

„Þar hyglaði Arion sérvöldum viðskiptavinum og útvöldum starfsmönnum með því að leyfa þeim að kaupa hluti í Símanum á lægri gengi en útboðsgengið var. Þannig fengu gæðingar á silfurfati 720 milljónir. Þetta eru fullkomlega óeðlilegir viðskiptahættir.“

Sjá einnig:Guðlaugur Þór: „Geta tæplega verið heilbrigðir og eðlilegir viðskiptahættir“

Að mati Össurar er þarna verið að innleiða svipaða viðskiptahætti „og áttu stóran þátt í hruni föllnu bankanna. Þegar hrunadansinn stóð sem hæst völdu bankarnir út fjárfestahópa sem fengu lán úr bönkunum gegn veði í hlutabréfum. Bankinn fjárfesti svo með þeim og þeir með bankanum. Lykilstarfsmenn fengu hlutdeild í öllum kaupum með afslætti. Áður en varði var komin fjórföld til áttföld gírun í pýramídana.“

Vill kljúfa bankana í viðskiptabanka og fjárfestingabanka

Þetta hugnast þingmanninum ekki en telur að Arion banki sé mögulega að bregðast við samkeppni frá bankanaum Kviku en hann varð til úr MP Straumi á dögunum. Össur gerir fréttatilkynningu bankans að umtalsefni.

„Kvika lýsti yfir að bankinn hyggðist innleiða nýja fjárfestingastefnu sem snýr að „samvinnu bankans og viðskiptavinarins” sbr. fréttatilkynningu frá Kviku. Á mæltu máli þýðir þetta að eigendum, starfsmönnum og viðskiptavinum er þvælt saman í eina bendu. Þeir verða allir áhættufjárfestar, án aðgreiningar eða armslengdar sjónarmiða. Bankinn fjárfestir með viðskiptavinum og útvaldir viðskiptavinir með bankanum. Sérvaldir starfsmenn fá að dansa með til að ýta undir frumkvæði og framtak – og það stigmagnar áhættuna. Þegar vel gengur græða allir en þegar blæs á móti tapa allir..“

Össur telur að aðrar fjármálastofnanir munu leiðast inn á sömu braut. Hann vill því kljúfa banka í almenna viðskiptabanka og svo fjárfestingabanka:

„Í því ljósi, og eitraðrar reynslu af samskonar gróðrabralli í aðdraganda hrunsins, ætti að vera skýlaus og ófrávíkjanleg krafa að kljúfa bankana í almenna viðskiptabanka og fjárfestingarbanka áður en gjaldeyrishöftum verður aflétt og bankarnir komast aftur á alþjóðlega fjárfestinga- og lánamarkaði. Almenningi verður ekki boðið á það ball. Hann mun hins vegar sitja uppi með afleiðingarnar - fyrr eða síðar.“

Arion og Kvika endurreisa spilavítiskapítalismannArion banki og nýi bankinn, Kvika, sem til varð úr MP banka og...

Posted by Össur Skarphéðinsson on Tuesday, 13 October 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×