Veður

Veður


Fréttamynd

Allir komnir heim

26 íbúar við Traðarland, Dísarland, á Geirsstöðum og Tröð fengu að fara heim til sín eftir að hættuástandi var aflétt í Bolungarvík í hádeginu í gær. Einar Pétursson bæjarstjóri segir enn vera viðbúnaðarstig og að grannt verði fylgst með veðurspám. 66 íbúar fengu að fara til síns heim í fyrradag.

Innlent
Fréttamynd

Sumir Bolvíkinga snúa heim

Almannavarnarnefnd Bolungarvíkur hefur aflétt rýmingu á íbúðarhúsum í Ljósalandi, Heiðarbrún og hluta Traðarlands og geta íbúar þessara húsa haldið til síns heima. Er þarna um að ræða 24 hús. Rýming sex húsa í Dísarlandi er áfram í gildi.

Innlent
Fréttamynd

Hluti Bolvíkinga snýr heim

66 íbúar sem þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu í Bolungarvík fengu að snúa aftur heim til sín í gær eftir að almannavarnanefnd aflétti hættuástandi á því svæði. 26 manns bíða því enn eftir að hættuástandið gangi yfir en þangað til búa flestir hjá annað hvort ættingjum eða vinum, en nokkrir gista í húsnæði sem bæjarfélagið útvegar.

Innlent
Fréttamynd

Helstu þjóðvegir færir

Samkvæmt Vegagerðinni er einhver éljagangur um norðanvert landið. Allir helstu þjóðvegir landsins eru færir en einhver hálka er í öllum landshlutum.

Innlent
Fréttamynd

Lífið komið í eðlilegt horf

Leiðin til Súðavíkur var opnuð í gær en hún hafði verið ófær frá því á sunnudag. Barði Ingibjartsson, prestur í Súðavík, segir bæjarlífið vera aftur komið í eðlilegt horf. Byggðin í bænum hafi aldrei verið í neinni hættu enda var hún flutt eftir snjóflóðin árið 1995.

Innlent
Fréttamynd

Veit ekki hvert framhaldið verður

Hjálmar Sigurðsson, ábúandi á Hrauni í Hnífsdal, segir snjóflóðið í fyrradag það stærsta sem hann viti til að hafi á þessum stað. Gamli bærinn er gjörónýtur en ekki er nema um eitt og hálft ár síðan sonur hans bjó í hluta bæjarins. Þá fór flóðið inn um eldhúsglugga á nýja bænum. Fjölskyldna hafði rýmt húsið kvöldinu áður en flóðið féll.

Innlent
Fréttamynd

Enn hættuástand í Bolungarvík

Almannavarnarnefnd Bolungarvíkur tók ákvörðun í samráði við Veðurstofu Íslands, seinni partinn í gær, um að afturkalla ekki hættustig þar í bæ. Á sama tíma var ákveðið að aflétta hættuástandi í Ísafjarðarbæ og fengu 46 manns á Ísafirði, Hnífsdal, Önundarfirði og Dýrafirði að fara til síns heima.

Innlent
Fréttamynd

Vinnan hófst á snjómokstri

Víðir Ólafsson, stöðvarstjóri sorpbrennslunnar Funa, byrjaði ásamt öðrum starfsmönnum að moka snjó til að koma starfssemi stöðvarinnar í gang. Starfsmennirnir þurftu að yfirgefa stöðina um klukkan fjögur á mánudag eftir að snjóflóð féll og lenti á snjóflóðavarnargarði fyrir ofan sorpstöðina.

Innlent
Fréttamynd

Snjóflóðahætta enn í Bolungarvík

Snjóflóðahættuástand er enn í Bolungarvík en á Ísafirði og í Hnífsdal er fólki heimilt að snúa til síns heima. Snjóflóð féll á bæinn Hraun í Hnífsdal í gær. Gamla íbúðarhúsið eyðilagðist en búið var að rýma nýja íbúðarhúsið sem flóðið féll líka á. Mikið tjón varð hjá ábúendunum. Þá féll flóð á rað- og fjölbýlishús í Hnífsdal.

Innlent
Fréttamynd

Splundra öllu sem á vegi verður

Snjóflóð hafa fallið víða um land undnangengna daga, flest blessunarlega utan byggðar en eitt olli þó skemmdum í Hnífsdal. Þá hefur þurft að rýma íbúðarhús víða á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu.

Innlent
Fréttamynd

Leiðindafærð um allt land

Leiðindafærð var víða á landinu í gær þó svo að flestar helstu leiðir væru færar. Mosfellsheiði var þó ófær og varaði Vegagerðin fólk við því að vera þar á ferli.

Innlent
Fréttamynd

Húsin keypt vegna snjóflóðahættu

Ofanflóðasjóður og Ísafjarðarbær voru búnir að ákveða að kaupa upp raðhúsin og blokkina sem snjóflóð féll á í Hnífsdal í gær vegna snjóflóðahættu. 

Innlent
Fréttamynd

Hálfan sólarhring til Akureyrar

Þetta var ekkert, ég hef komist upp í það að vera 55 tíma í bílnum á leiðinni norður," segir Arnar Andrésson flutningabílstjóri, en hann flytur Fréttablaðið og DV norður í land. Arnar lagði af stað frá Reykjavík norður á Akureyri þrátt fyrir ófærðina klukkan tvö í fyrri nótt og náði á leiðarenda hálfum sólarhring seinna.

Innlent
Fréttamynd

Mörg hús tóm í nótt

138 manns höfðu ekki fengið að fara til síns heim í gær vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum. 92 á Bolungarvík og en þar þurftu þeir fyrstu að yfirgefa hús sín á sunnudag. Í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði höfðu alls 46 þurft að rýma hús sín, flestir í Hnífsdal eða 35 manns.

Innlent
Fréttamynd

Mjólkurlaust í Bolungarvík

Rýma þurfti nítján hús í Bolungarvík í gær en fyrir var búið að rýma sjö hús í bænum og hafa alls 92 þurft að yfirgefa heimili sín. Flestir leituðu á náðir vina og ættingja.

Innlent
Fréttamynd

Átta hús skemmd eftir snjóflóð

Snjóflóð lenti á býli við Hnífsdal, blokk og raðhúsi vestan við aðalbyggð bæjarins. Húsin höfðu verið rýmd en eignatjón íbúanna er mikið. Óljóst er hvort þeir fái að búa áfram í húsunum. Um 140 manns hafa yfirgefið hús sín í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík.

Innlent
Fréttamynd

Mokstur hafinn víða

Mokstur hófst í gær á sunnanverðum Vestfjörðum að sögn Hjörleifs Ólafssonar hjá Vegagerðinni.

Innlent
Fréttamynd

Matur fluttur sjóleiðina

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson fór í gær með mjólk og brauð sjóleiðina til Súðavíkur. Sex strandaglópar sem höfðu verið veðurtepptir í Súðavík frá því á sunnudag fengu far með bátum til Ísafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Fáir út fyrir hússins dyr

Það lægði aðeins í gærkvöldi en svo kom aftur smá hvellur í morgun og það er rétt hægt að komast um göturnar, en ekki mikið meira en það," segir Guðmundur Ingþór Guðjónsson lögregluþjónn á Patreksfirði um veðurfarið. "Við höfum þó ekki þurft að aðstoða fólk við að komast á milli staða, það hefur allt sloppið," bætir hann við.

Innlent
Fréttamynd

Hríðarbylur og snjóflóð Vestra

Hús hafa verið rýmd í Bolungarvík, Hnífsdal, á Ísafirði, Tálknafirði og Patreksfirði vegna hættu á snjóflóðum. Sólarhringsvakt er á Veðurstofunni vegna hættunnar.

Innlent
Fréttamynd

Hús rýmd vegna snjóflóðahættu

Nokkur snjóflóð féllu á Vestfjörðum í gær en engan sakaði. Um 160 manns víðs vegar um Vestfirði hafa yfirgefið heimili sín. Björgunarsveitir aðstoðuðu fólk vegna ófærðar.

Innlent
Fréttamynd

Lúsasjampó sótt í ófærð

Í hríðarbyl og ófærð þurfti að útvega auknar birgðir af lúsasjampói í Hólmavík í gær, en óværan hefur stungið sér niður í bænum síðustu daga.

Innlent
Fréttamynd

Sérútbúnir bílar aðstoða rútur

Fimmtán björgunarsveitarmenn á sérútbúnum björgunarsveitarbílum frá þremur sveitum í Húnavatnssýslu aðstoðuðu rútur Norðurleiða og fólksbíla í gegnum Víðidal í Húnavatnssýslu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Neituðu að fara að heiman

Nokkrir íbúa þriggja húsa við Dísarland í Bolungarvík neituðu að yfirgefa heimili vegna snjóflóðahættu þegar lögreglu bar að garði síðasta sunnudagskvöld. Alls voru það sex sem ekki yfirgáfu heimili sín, þar á meðal eitt barn, þrettán ára gömul stúlka.

Innlent
Fréttamynd

Hús rýmd á Vestfjörðum

Vegna slæmrar veðurspár hefur Almannavarnarnefnd Ísafjarðarbæjar tekið ákvörðun um að rýma nokkur hús á norðanverðum Vestfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Helstu leiðir orðnar færar

Hálka er á vegum um allt land. Um norðausturströndina er skafrenningur og slæmt ferðaveður, en þó fært. Allar helstu leiðir eru nú orðnar færar: um Ísafjarðardjúp til Ísafjarðar, norður til Akureyrar, Ólafsfjarðar, Húsavíkur, um Möðrudalsöræfi og austur á land. Veðurstofan varar við stormi um landið norðvestanvert á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Búist við ofsaveðri

Gert er ráð fyrir suðvestan og vestan ofsaveðri, eða 23-28 metrum á sekúndu, á Suður- og Vesturlandi um tíma síðdegis að sögn Veðurstofunnar. Búist er við að veðrið bresti á á tímabilinu frá klukkan 16 til 18 og að það muni vara í eina til tvær klukkustundir með ofankomu og slæmu skyggni.

Innlent
Fréttamynd

Leiðindaveðri spáð í kvöld

Útlit er fyrir leiðindaveður sunnan- og vestanlands seinni partinn í dag. Þar er búist við stormi með snjókomu og éljagangi. Á Norðaustur- og Austurlandi gæti hins vegar orðið sæmilegt veður með hægari vindi og einhverjum éljum. Hitastigið verður líklega um frostmark og fer kólnandi með kvöldinu.

Innlent
Fréttamynd

Búist við snjóþyngslum

Færð á Norðausturlandi og á Austfjörðum er nokkuð góð eftir að óveðrinu slotaði og samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð Íslands eru allar helstu leiðir austan Akureyrar og á Austfjörðum færar. Holtavörðuheiðin var lokuð á mánudag sökum snóþyngsla en var opnuð aftur í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Vonskuveður á gamlársdag

"Það lítur út fyrir að síðdegis á gamlársdag verði vonskuveður. Það gæti þó alveg rofað til um eða uppúr miðnætti, þó kannski síst sunnan til," segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. Með kvöldinu snöggkólnar og um miðnætti býst Sigurður við frosti á bilinu eitt til fimm stig.

Innlent