Innlent

Nýstárlegar aðferðir felldu Kragh

Þorsteinn Kragh ráðfærir sig við lögfræðingin sinn, Helga Jóhannsson.
Þorsteinn Kragh ráðfærir sig við lögfræðingin sinn, Helga Jóhannsson.

„Við bíðum rólegir eftir niðurstöðu Hæstaréttar Íslands," sagði Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar spurður um viðbrögð vegna þungs dóms sem Þorsteinn Kragh og Jacob Van Hinte fengu í dag.

Þeir voru dæmdir samanlagt í sextán og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla tæpum 200 kílóum af kannabis og rúmu kílói af kókaíni til landsins með Norrænu síðasta sumar.

Það er mesta magn fíkniefna sem reynt hefur verið að smygla til landsins í heilu lagi. Ein af meginástæðum þess að Þorsteinn - sem neitaði sök allan tímann - var sakfelldur, voru nýstárlegar rannsóknaraðferðir lögreglunnar.

Karl Steinar vildi ekki fagna góðum árangri strax en hnykkti þó á því að málið væri athyglisvert fyrir margar sakir. Það reyndi á nýjar aðferðir við rannsóknina en til að mynda voru sérfræðingar í upplýsinga- og áætlanadeild lögreglunnar fengnir til þess að greina notkun farsíma Þorsteins og Jacobs.

Rannsókn lögreglu beindist að miklu leyti að símanúmerum sem tengdu mennina saman. Í síma Jacobs fannst númer undir nafninu Kimmi sem er frelsisnúmer og var frekar lítið notað. Lögregla lét hinsvegar gera veigamikla rannsókn þar sem sími Þorsteins og umrædds númers voru rakin saman. Í stuttu máli var niðurstaða rannsóknarinnar að nær útilokað er talið að sitthvor aðilinn hafi átt umrædd símanúmer. Á einu ári sem rannsóknin náði yfir voru símarnir nær alltaf á sömu sendum. Þegar Jacob var handtekinn var hætt að nota umrætt númer. Sá sími hefur þó aldrei fundist.

Skýringarnar sem Þorsteinn gaf fyrir rétti voru meðal annars þær að hann væri gjarn á að taka puttalinga upp í bifreið sína en ákæruvaldinu fannst ótrúverðugt að þeir puttalingar myndu allir nota sama símanúmer. Einnig var engin notkun á símanum þegar Þorsteinn fór erlendis.

Í síma Þorsteins og umræddum síma voru einnig svipaðar talhólfskveðjur með álíkum röddum. Einnig var sama PIN númer á símunum, 6969. Þá var fylgst með Þorsteini eftir að Jacob var handtekinn. Hann fór meðal annars til Amsterdam og benti sækjandi á að Þorsteinn hefði notað símaklefa þar, þrátt fyrir að vera með a.m.k þrjá farsíma í notkun.

Símagögnin virðast styðja fyrri frásögn Jacobs þegar þau eru borin saman við þau tímabil sem þeir hittust á fundum í Amsetrdam og annað. Á árinu 2008 var leynisímanúmerið mikið notað.

Karl Steinar telur það ánægjuefni að héraðsdómur hafi tekið undir rannsóknaraðferðirnar og segir það jákvætt skref. Nú sé þó að bíða þess að Hæstiréttur Íslands taki málið fyrir. Sterklega má búast við því að dómnum verði áfrýjað sé tekið mið af yfirlýsingum Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, sem tjáði sig við fjölmiðla í morgun, eftir að Þorsteinn var dæmdur.

Í dómsorði kom fram að Þorsteinn ættti engar málsbætur.


Tengdar fréttir

Þorsteinn Kragh í níu ára fangelsi

Þorsteinn Kragh var í dag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að smygla til landsins tæpum 200 kílóum af hassi og hálfu öðru kílói af kókaíni. Jacob van Hinte, hollenskur samstarfsmaður Þorsteins var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi en dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan ellefu í morgun. Þorsteinn mætti ekki við dómsuppsögu málsins.

Rannsókn á tveimur stórum fíkniefnamálum að ljúka

Rannsókn á tveimur stórum fíkniefnamálum sem upp hafa komið á þessu ári er á lokastigi en bæði tengjast þau smygli með bílum í Norrænu. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er þó ekki hægt að tilgreina nákvæmlega hvenær rannsókn lýkur en í framhaldinu verða málin send saksóknara.

Frávísunarkröfu Þorsteins Kragh hafnað

Kröfu Þorsteins Kragh um frávísun í máli hans var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Þorsteinn er grunaður um aðild að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum en Hollendingurinn Jacob Van Hinte var handtekinn um borð í Norrænu með um 190 kíló af hassi, eitt og hálft kíló af maríjúana og eitt kíló af kókaíni í bíl sínum. Þorsteinn var handtekinn um mánuði síðar og hefur setið í gæsluvarðhaldi í um hálft ár.

Aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh í dag

Aðalmeðferð er í dag í máli Þorsteins Kragh og Jakobs Van Hinte í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru sakaðir um að standa að einu stærsta smygli á eiturlyfjum til landsins í sögunni en Van Hinte var stöðvaður í ferjunni Norrænu í júní 2008 með um 190 kíló af hassi, eitt kíló af kókaíni og eitt og hálft kíló af maríjúana, vandlega falið í bíl sínum.

Rannsókn lokið í húsbílahassmálinu

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem kom upp á Seyðisfirði í júní er lokið og hefur það verið sent embætti ríkissaksóknara til meðferðar.

Fréttaskýring: Hver lætur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum?

Ákæruvaldið fer fram á 10 ára fangelsisdóm hið minnsta yfir Þorsteini Kragh og Jacobi Van Hinte fyrir að skipuleggja og flytja inn tæplega 200 kíló af kannabisefnum og tæpt 1 ½ kíló af kókaíni. Verjandi Þorsteins fer fram á að hann verði sýknaður en verjandi hollendingsins telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár hið mesta. Hann segir ennfremur að 10 ára fangelsisdómur yfir rúmlega sjötugum manni sé í raun lífstíðardómur. Vísir fylgdist með aðalmeðferð í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Útskýrir milljónir með skattsvikum og fölsuðum miðum

Í morgun fór fram aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh og hollendingsins Jacob Van Hinte sem ákærðir eru fyrir fíkniefnainnflutning með Norrænu. Í húsbíl sem Jacob kom á hingað til lands fundust um 200 kg af kannabisefnum auk 1 ½ kg af kókaíni. Hollendingurinn bendlaði Þorstein við málið í upphafi en eftir að þeir hittust á Litla-Hrauni dró hann framburð sinn til baka og segir Þorstein ekkert hafa komið nálægt málinu. Fram kom að tæpar 80 milljónir voru inni á bankareikningum Þorsteins sem hann sagði tilkomnar vegna skota undan skatti og í tengslum við miða sem hann hafi falsað á tónleika sem hann hafi haldið í gegnum tíðina.

Húsleitir gerðar hjá vinum Þorsteins

Húsleitir voru gerðar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í þarsíðustu viku í tengslum við rannsókn á stórfelldum fíkniefnainnflutningi í húsbíl sem kom til landsins með Norrænu í júní.

Kragh krefst frávísunar

Athafnamaðurinn Þorsteinn Kragh, sem er ákærður fyrir stærsta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar, hefur krafist frávísunar á dómsmálinu og sakar lögregluna um að hafa þverbrotið á réttindum sínum.

Átti að fá 40 þúsund evrur fyrir smyglið

Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hafa átt að fá 40.000 evrur fyrir að koma húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hingað til lands. Hann er ákærður, ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að hafa ætlað að smygla nær 200 kílóum af kannabisefnum og einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins í húsbílnum.

Hollenskur öldungur áfram í haldi vegna hassmáls

Hollenski öldungurinn, sem gripinn var með um 190 kíló af hassi, kókaín og marijúana í húsbíl sínum við komuna til landsins með Norrænu í júní, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. desember.

Dómarar gagnrýna lögreglu vegna Kragh málsins

Dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdu í máli Þorsteins Kragh og Jacobs Hinte, gagnrýna vinnubrögð lögreglunnar við rannsókn málsins þar sem Þorsteini Kragh var ítrekað meinað að komast í mikinn fjölda skjala sem vörðuðu rannsókn málsins.

Kragh fái tíu ára dóm hið minnsta

Ríkissaksóknari fer fram á að Þorsteinn Kragh og Jakob Van Hinte verði dæmdir í tíu ára fangelsi að lágmarki fyrir aðild sína að stórfelldum fíkniefnainnflutningi með Norrænu í sumar. Aðalmeðferð í málinu var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sækjandi byggir kröfu sína um svo þunga dóma á því mikla magni sem mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa reynt að smygla til landsins en alls var um að ræða tæp 200 kíló af fíkniefnum. Í máli sækjanda í morgun kom meðal annars fram að smyglið hafi verið gríðarlega vel skipulagt en til dæmis voru efnin vel falin í sérútbúnum húsbíl.

Skatturinn yfirheyrði Þorstein Kragh á Litla Hrauni

Skattrannsóknarstjóri yfirheyrði Þorstein Kragh vegna vitnisburðar hans í aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi, þar sem Þorsteinn var ákærður fyrir innflutning á tæpum 200 kílóum af kannabisefnum og 1 ½ kílói af kókaíni.

Þorsteinn Kragh áfram í gæsluvarðhald

Þorsteinn Kragh sem setið hefur í varðhaldi vegna fíkniefnamáls sem kom upp á Seyðisfirði í byrjun júní, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×