Golf

Moore sigraði í par-3 keppninni

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Bandaríski kylfingurinn Ryan Moore stóð uppi sem sigurvegari í par-3 mótinu sem fram fór í dag á Augusta National. Hefð er fyrir því að leika í þessu skemmtilega móti degi áður en Masters mótið hefst og í ár var það Moore sem lék níu holurnar best, á 21 höggi eða sex höggum undir pari.

Það er stundum sagt að bölvun fylgi því að sigra í par-3 mótinu en aldrei í sögu Masters mótsins hefur sami kylfingur sigrað í bæði par-3 mótinu og svo sjálfu Masters mótinu í kjölfarið.

Kevin Stadler og Fuzzy Zoeller urðu jafnir í öðru sæti á 23 höggum. Moore var aðeins einu höggi frá því að jafna vallarmetið á par3 vellinum á Augusta National.

Þrír kylfingar gerðu sér lítið fyrir og fóru holu í höggi. Það gerðu þeir Mark O'Meara og Buddy Alexander á annari holu. Matt Jones fór einnig holu í höggi á þriðju holu.

Hinir þrír stóru, Jack Nicklaus, Gary Player og Arnold Palmer, léku saman níu holur í dag. Þeir sýndu allir flotta takta þrátt fyrir að vera komnir af léttasta skeiði. Saman hafa þeir þrettán sinnum klæðst græna jakkanum sem sigurvegarinn í Masters mótinu klæðist í mótslok.

Efstu menn í par-3 keppninni:

-6 Ryan Moore

-4 Kevin Stadler

-4 Fuzzy Zoeller

-3 Bernhard Langer

-3 Joost Luiten

-3 Victor Dubuisson


Tengdar fréttir

Scott bauð upp á steik og humar

Hefð er fyrir því að sigurvegari síðasta árs í Masters mótinu velji matseðilinn á kvöldverði meistaranna sem fram fór í gær í klúbbhúsinu á Augusta National.

McIlroy: Lærði mikið af klúðrinu 2011

Rory McIlroy fór illa að ráði sínu á lokadegi Masters-mótsins 2011 en hrunið þar gerði hann sterkari og skilaði honum tveimur risatitlum.

Aldrei fleiri nýliðar á Masters

Það verða alls 24 nýliðar sem leika á Masters mótinu í ár og hafa þeir aldrei verið fleiri. Liðin eru 35 ár frá því að nýliði stóð uppi sem sigurvegari í mótinu.

Masters-vikan byrjaði með þrumuveðri

Fyrsta æfingahring fyrir Masters mótið, sem hefst á fimmtudag, var aflýst í dag vegna þrumuveðurs. Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem aflýsa þarf æfingahring.

McIlroy og Spieth leika saman

Búið er að tilkynna rástíma fyrir fyrstu tvo keppnisdagana á Masters mótinu sem hefst á fimmtudag á Augusta National vellinum.

Adam Scott ætlar ekki úr græna jakkanum

Ástralinn vonast til að verða fjórði maðurinn í sögunni sem vinnur Masters-mótið tvö ár í röð en það hafa aðeins þrír af bestu kylfingum sögunnar afrekað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×