Golf

Boðaðir á fund með Sá­dunum á bak­við LIV-móta­röðina

Smári Jökull Jónsson skrifar
Jordan Spieth og Tiger Woods verða kallaðir til fundar á næstunni.
Jordan Spieth og Tiger Woods verða kallaðir til fundar á næstunni. Vísir/Getty

Samruni PGA og LIV-mótaraðanna í golfi hefur tekið lengri tíma en áætlað var. Nú þurfa kylfingarnir sjálfir að setjast niður við fundarborðið.

Greint var frá fyrirhuguðum samruna mótaraðanna síðasta sumar en mikill ágreiningur hafði þá ríkt á milli kylfinga sem leikið höfðu á LIV-mótaröðinni og þeirra sem völdu að halda sig á hinni klassísku PGA-mótaröð. LIV-mótaröðin er styrkt af sádiarabískum yfirvöldum og margir kylfingar vildu ekki taka þátt í íþróttahvítþvottinum sem þeir vildu meina á mótaröðin væri.

Það kom því nokkuð á óvart þegar tilkynnt var um samruna mótaraðanna í júní. Síðan þá hefur lítið gerst og á blaðamannafundi á þriðjudag sagði Jay Monahan, æðsti maður PGA-mótaraðarinnar, að lítið væri að frétta.

„Viðræður standa yfir, meira en svo get ég ekki sagt. Ég skil að þið hafið vonast eftir frekari upplýsingum en ég get ekki farið í smáatriði akkúrat núna,“ sagði Monahan en þetta var í fyrsta skipti í sjö mánuði sem hann ræddi við fjölmiðla.

Kylfingarnir til viðræðna

Golfheimurinn er í raun klofinn þar sem stigin sem kylfingar á LIV-mótaröðinni vinna sér inn telja ekki á heimslistanum. Markmiðið er að finna lausn sem hentar  báðum mótaröðum en enn er enginn samningur í höfn.

Hingað til hafa kylfingarnir sjálfir ekki verið hluti af samningaviðræðum en það mun líklega breytast á næstunni.

„Við höfum verið hvattir til að mögulega hitta þá,“ sagði Jordan Spieth sem er í stjórn nýrrar deildar PGA-mótaraðarinnar sem kallast PGA Tour Enterprises. Ásamt Spieth eru þeir Tiger Woods, Patrick Cantlay, Peter Malnati, Adam Scott og Webb Simpson í forsvari og búist er við að þeir verði kallaðir til fundar.

„Ég veit ekki hvort ég get sagt mikið meira. Við teljum að við sem sitjum í stjórn ættum að vera upplýstir um gang mála,“ bætti Spieth við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×