Golf

Tiger Woods verður meðal kylfinga á Masters

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Patrick Reed klæðir Tiger Woods í græna jakkann árið 2019
Patrick Reed klæðir Tiger Woods í græna jakkann árið 2019 Augusta National via Getty Images

Tiger Woods hefur þegið boð um að keppa á Masters sem fer fram í byrjun næsta mánaðar. 

Masters fer fram á velli Augusta golfklúbbsins í Georgíufylki Bandaríkjanna, 11.–14. apríl næstkomandi. Græni jakkinn frægi bíður að sjálfsögðu sigurvegarans. 

Tiger vann mótið síðast árið 2019, í fimmta skipti á ferlinum. Aðeins Jack Nicklaus, með sex titla, hefur unnið mótið oftar. 

Það hefur auðvitað gengið á ýmsu hjá Tiger undanfarin ár. Eftir bílslys árið 2021 hefur hann tekið þátt í afar fáum mótum. Hann dróg sig úr keppni á leikmannamóti í TPC Sawgrass um síðustu helgi. 

Síðan 2021 hefur Tiger tvisvar tekið þátt í Masters, hann endaði í 47. sæti árið 2022 en dró sig úr keppni á sjöundu holu í fyrra vegna veikinda. 

Árangur Tiger á mótum að undanförnu skiptir meistaramótið engu máli, sem fyrrum sigurvegari er honum að eilífu boðið að taka þátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×