Viðskipti innlent

Minecraft leikföng og raftæki vinsælust

Sæunn Gísladóttir skrifar
iPad var vinsæll á Black Friday hjá Argos.
iPad var vinsæll á Black Friday hjá Argos. Vísir/AFP
Á svörtum föstudegi (e. Black Friday) var nóg að gera í Bretlandi eins og í öðrum ríkjum sem hafa tekið upp afsláttardaginn að amerískum sið.

BBC greinir frá því að vinsælustu vörur smásölurisans Argos á þeim degi hafi meðal annars verið Mine­craft-leikföng, Frozen-Lego sett, raftæki, meðal annars heyrnartól, spjaldtölvur og hágæða sjónvörp.

Einnig voru ódýrar hárþurrkur vinsælar. Talið er að sölumet hafi verið slegið og að salan hafi farið yfir tvo milljarða breskra punda á föstudaginn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×