Erlent

Höfuðborg Sierra Leóne eins og draugabær

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Stræti Freetown eru auð.
Stræti Freetown eru auð. VÍSIR/AFP
Þriggja daga útgöngubann hófst í Síerra Leóne í gær til þess að sporna við útbreiðslu Ebólu-vírussins sem hefur leikið vesturströnd Afríku grátt á undanförnum mánuðum. Forseti landsins, Ernest Bai Koroma, hvatti íbúa landsins til þess að hlíta aðgerðunum í sjónvarpsávarpi til þjóðar sinnar.

Stræti höfuðborgarinnar, Freetown, sem iðulega iða af lífi voru auð þegar fréttamenn bar að garði og brynvörðum bílum hafði verið lagt til þess að hindra mögulega umferð um götur borgarinnar. Viðvaranir eru spilaðar látlaust í útvarpi þar sem fólk er minnt á hættur ebólunnar og því skipað að halda sig innandyra.

„Í dag eru líf okkar allra að veði en við munum komast í gegnum þetta ef við einungis fylgjum fyrirmælunum,“ sagði Koroma í ávarpi sínu á fimmtudag. „Þetta eru óvenjulegir tímar og óvenjulegir tímar krefjast óvenjulegra úrlausna.“

Alls hafa rúmlega 5300 Afríkubúa smitast af veirunni í ár og þar af hafa 2630 fallið af hennar völdum. Það gerir núverandi faraldur að þeim skaðlegasta í sögunni.

Þar af hafa 562 látið lífið í Sierra Leóne og reyna nú um 30 þúsund heilbrigðisstarfsmenn að heimsækja öll heimil landsins til að fræða þjóðina um hættur veirunnar. 6 milljónir búa í Síerra Leóne og er markmiðið að klára verkið á einungis þremur dögum.

Margaret Chan, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sagði á fimmtudag að heimurinn yrði að taka við sér. Alþjóðastuðningur væri nauðsynlegur við þær 22 milljónir í Vestur-Afríku sem orðið hafa hvað verst úti í faraldrinum. Hann hafi gjörsamlega eyðilagt líf, samfélög og innviði fólks. 



Þá ályktaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að setja á ferðabann og loka landamærum Gíneu, Sierra Leone og Líberíu. Telur ráðið nauðsynlegt að grípa í taumana eins fljótt og auðið er.

Barack Obama lýsti faraldrinum jafnframt sem ógn við heimsöryggi og lýsti því yfir að Bandaríkjaher hygðist senda þrjú þúsund hermenn til heimshlutans til aðstoðar. Þar að auki muni Bandaríkin taka þátt í byggingu nýrra heilsugæslustöðva í hrjáðum löndu


Tengdar fréttir

Lést þrátt fyrir ebóla-lyf

Líberískur læknir, sem var á meðal þriggja Afríkubúa sem fengu tilraunalyf við ebóla-veirunni, er látinn.

Fjöldi ebólusmitaðra gæti margfaldast

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út að ríflega tuttugu þúsund manns til viðbótar eigi á hættu að smitast af ebólu.

Ebóla ógn við alþjóðlegt öryggi

Tala látinna fer sífellt hækkandi en frá því að veiran greindist fyrst í ársbyrjun hafa 2.630 orðið faraldrinum að bráð og 5.375 eru sýktir.

Baráttan gegn ebólu að tapast

Samtökin Læknar án landamæra segja að heimsbyggðin sé að tapa í baráttunni gegn ebóluveirunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×