Viðskipti innlent

Play seldi fjár­­festum hug­­mynd um lægri laun en hjá WOW

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
WAB hélt blaðamannafund þar sem tilkynnt að það myndi breyta nafni sínu í Play, sama mánuð og glærukynningin fyrir fjárfesta var haldin. Í nóvember 2019.
WAB hélt blaðamannafund þar sem tilkynnt að það myndi breyta nafni sínu í Play, sama mánuð og glærukynningin fyrir fjárfesta var haldin. Í nóvember 2019. Vísir/Vilhelm

Flug­fé­lagið Play undir­bjó á sínum tíma glæru­kynningu fyrir mögu­lega fjár­festa þar sem á­form voru kynnt um að lækka launa­­kostnað starfs­manna all­veru­lega frá því sem verið hafði hjá WOW air.

Á glærukynningu flug­fé­lagsins, sem gekk þá undir nafninu WAB (We Are Back) áður en það breytti nafni sínu í Play, má sjá hvernig lægri launa­kostnaður bæði flug­liða og flug­manna var einn helsti út­gangs­punktur kynningarinnar.

Vísir hefur glærukynninguna undir höndum, merkta frá nóvember 2019, en hún virðist í meginatriðum snúast um það hvernig WAB hyggst starfa með ódýrari rekstri en WOW air gerði en WOW varð gjaldþrota í mars 2019. Tveir af stofnendum WAB eða Play, þeir Arnar Már Magnússon og Sveinn Ingi Steinþórsson, voru stjórnarmenn í WOW.

Glærurnar eru merktar sem trúnaðarupplýsingar. Þar koma fram áform WAB um að hafa starfsmenn á allt frá 19% til 37% lægri launum en voru í boði hjá WOW.

Launasparnaður upp á 3,3 milljarða

Lágu launin eru kynnt sem ábatasöm ráðstöfun: „Heildarlaunasparnaður á tímabili viðskiptaáætlunarinnar: 9 milljónir Bandaríkjadala,“ segir á glæru um laun flugliða. Það jafngildir rúmlega 1,1 milljarði íslenskra króna.

Síða úr glærukynningu WAB frá nóvember 2019 um laun flugliða.

Á sambærilegri glæru um laun flugmanna (hér fyrir neðan) er áætlaður sparnaður á því tímabili sem áætlunin nær yfir 17 milljónir Bandaríkjadala, eða tæplega 2,1 milljarður íslenskra króna.

Síða í glærukynningu WAB um laun flugmanna.

Því er einnig lýst í kynningunni hvernig félagið hyggst halda launum starfsmanna niðri í nokkrum punktum eins og „Engin árleg hækkun á launum“ og punktum sem snúa að því hvernig fríðindum fyrir starfsmenn eins og fararkostnaði, hótelkostnaði og frídögum verði breytt frá því sem hafði verið hjá WOW eða þau algjörlega afnumin.

Play stundum WAB í kjarasamningnum

Í kynningunni er vísað til kjarasamninga sem WAB hafði gert við stéttarfélagið Íslenska flugmannafélagið (ÍFF) og áttu að gilda frá 1. september 2019 til 28. febrúar 2023. ÍFF er gamla stéttarfélag starfsmanna WOW.

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) benti á það í yfirlýsingu í gær að ÍFF bæri öll merki þess að vera svokallað „gult félag“, sem gangi erinda atvinnurekenda gegn hagsmunum og lágmarkslaunakjörum launafólks.

WAB kynnti það síðan á blaðamannafundi í nóvember 2019 að félagið hygðist breyta nafni sínu í Play. Síðan hefur það gert nýja kjarasamninga við ÍFF sem eiga að gilda lengur en hinir sem glærukynningin vísar til. Þeir sem nú eru í gildi renna ekki út fyrr en 1. febrúar 2025.

Hvort fleiri atriði í samningunum en gildistíma hans hafi verið breytt er óljóst en þegar kjarasamningur flugliða er skoðaður virðist sem hér sé á ferð sami eða alltént í meginatriðum sambærilegur samningur og WAB gerði við ÍFF þar sem nafninu WAB hefur verið skipt út fyrir nýja nafnið PLAY.

Sums staðar virðist nefnilega hafa farist fyrir að breyta nafni flugfélagsins og er ýmist vísað til vinnuveitanda flugliðanna sem WAB eða PLAY. Þetta sést til dæmis í lið 3 í samningnum sem er undir yfirskriftinni „Ráðningar – reynslutími – uppsagnarfrestur“. Skjáskot af þessari síðu samningsins er hér að neðan.

Skjáskot af síðu kjarasamningsins. Vísir hefur litað þessi tilvik gul.

Play hótaði því í fyrradag að fara í mál við ASÍ eftir að forseti sambandsins, Drífa Snædal, hvatti landsmenn til að sniðganga flugfélagið. Í yfirlýsingu ASÍ sem send var út í fyrradag var bent á að lægstu grunnlaun hjá Play væru 266.500 krónur samkvæmt kjarasamningi þess við flugliða. Það er lægri upphæð en sem nemur grunnatvinnuleysisbótum, sem eru 307.430 krónur.

Play brást við þessari gagnrýni ASÍ með eigin tilkynningu þar sem því var haldið fram að sambandið væri að ljúga um ýmis atriði, til dæmis grunnlaunin. „Fastar mánaðarlegar tekjur flugliða hjá Play verði á bilinu 351.851 til 454.351 krónur, óháð vinnuframlagi,“ sagði í tilkynningu Play og voru meint lægstu grunnlaunin, 351.851 krónur, þar borin saman við lægstu grunnlaun Icelandair, sem eru 307.398.

Lægstu grunnlaun Icelandair áfram hærri

Vísir ræddi við Drífu Snædal um þetta atriði í gær og spurði hana hvort ASÍ væri þarna að fara rangt með grunnlaun Play?

„Nei, þeir kjarasamningar sem við höfum fengið staðfest að séu í gildi kveða á um 266.500 krónur í föst mánaðarlaun. Það sem Play gerir í þessari yfirlýsingu sinni er að taka þau grunnlaun og bæta við þau öllu álagi; sölulaunum, bifreiðastyrk og fleiru og bera það síðan saman við lægstu grunnlaunin hjá Icelandair, sem eru hærri ef öllu þessu álagi væri líka bætt við þau,“ sagði Drífa.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.Vísir/Vilhelm

Þannig virðast lægstu grunnlaun Play samkvæmt samningnum vera 266.500 sem er lægra en lægstu grunnlaun Icelandair, 307.398 krónur. 

Ef bif­reiða­styrk og sölu­launum er bætt ofan á grunn­launin á kjarasamningnum fæst mjög svipuð tala, 352.300 krónur, og fé­lagið segir vera sín lægstu föstu mánaðar­laun, 351.851 krónur. 

Ef bif­reiða­styrkur og sölu­laun hjá Icelandair eru reiknuð inn í þeirra lægstu föstu mánaðar­laun hækkar talan úr 307.398 í 396.138 krónur. Ný­liði hjá Icelandair er þá einnig með ýmis fríðindi þessu til við­bótar.

ASÍ sendi út mynd með samanburðinum á fjölmiðla í gær:

Launataflan í samningnum

Þetta stemmir við þá kjarasamninga sem Vísir hefur undir höndum milli Play og ÍFF og voru undirritaðir þann 6. maí síðastliðinn. Þar eru lægstu grunnlaunin 260 þúsund krónur hjá Play en samkvæmt samningnum hækkuðu þau um 2,5% í byrjun mars í ár. 

Drífa segir að ASÍ hafi reiknað þessa hækkun ofan á 260 þúsund krónurnar og grunnlaunin nú séu því 266.500 krónur.

Hér má sjá launatöfluna í kjarasamningi flugliða hjá Play:

Play segir ASÍ reka áróður gegn sér

Play opnaði heima­síðu sína og hóf sölu á flug­sætum á þriðju­daginn var. Til að byrja með verður að­eins hægt að bóka ferðir til sjö á­fanga­staða; Ali­cante, Barcelona, Ber­lín, Kaup­manna­hafnar, Parísar, London og Tenerife.

Fyrsta flug Play verður í lok júní þegar flogið verður til Stan­sted-flug­vallar í London.

For­stjóri flug­fé­lagsins, Birgir Jóns­son, sendi frá sér harð­orða til­kynningu í fyrradag þar sem hann sagði að ASÍ hefði með full­yrðingum sínum valdið Play miklum skaða með því að skora fólk til að snið­ganga það.

Birgir Jónsson, forstjóri Play.Vísir/Vilhelm

„Í takti við þann góða anda sem ríkir innan PLAY þá erum við til í að fyrir­gefa þetta skammar­lega upp­hlaup ef ASÍ dregur á­sakanir sínar til baka. Öðrum kosti mun fé­lagið leita réttar síns,“ skrifaði hann meðal annars.

Play sakaði ASÍ þá um að reka „sorg­legan og annar­legan á­róður“ gegn flug­fé­laginu sem er að sögn þess sjálfs „bein­línis stofnað til að færa Ís­lendingum kjara­bætur í formi lægri flug­gjalda“.

Drífa ræddi þessi mál einnig í Reykjavík Síðdegis í gær:


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×