Erlent

Fjórtán ákærðir í Danmörku fyrir að deila morðmyndbandinu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Louisa Vesterager Jespersen, 24 ára, og Maren Ueland, 28 ára, fundust myrtar í Marokkó þann 17. desember síðastliðinn.
Louisa Vesterager Jespersen, 24 ára, og Maren Ueland, 28 ára, fundust myrtar í Marokkó þann 17. desember síðastliðinn. Myndir/Facebook
Lögregla í Danmörku hefur ákveðið að ákæra fjórtán manneskjur fyrir að deila myndbandi, sem sýnir morðið á annarri konunni sem myrt var í Marokkó í desember.

Maren Ueland og Louisa Vesterager Jespersen, norrænar konur á þrítugsaldri, voru á bakpokaferðalagi í Marokkó þegar þær voru myrtar á hrottalegan hátt. Margir karlmenn hafa verið handteknir og ákærðir í Marokkó vegna málsins.

Myndband sem sýnir morðið á annarri konunni fór í dreifingu á samfélagsmiðlum skömmu eftir að fréttir voru fluttar af málinu. Áður hafa menn verið ákærðir í Marokkó fyrir að hafa deilt myndbandinu.

Tveir yngri en fimmtán ára

Í frétt danska ríkisútvarpsins DR kemur fram að tólf hafi verið ákærðir fyrir ólöglega dreifingu á myndbandinu í gegnum Facebook-samskiptaforritið Messenger, eða á öðrum samfélagsmiðlum.

Þá hafa tveir verið ákærðir fyrir að hafa, opinberlega og ótvírætt, lýst yfir samþykki á voðaverkinu sem framið er í myndbandinu og jafnframt lýst yfir velþóknun á efni myndbandsins, annað hvort með því að senda myndbandið áfram eða í athugasemd við deilingu á því.

Af hinum fjórtán ákærðu eru sex yngri en átján ára, þar af tveir yngri en fimmtán ára. Mál hinna tveggja síðastnefndu fer líklega aðeins fyrir nýja ungmennaglæpanefnd í Danmörku. Aðrir eru á milli 22 og 69 ára.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×