Viðskipti erlent

Funda um viðskiptastríð Kína og Bandaríkjanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hluti sendinefndar Bandaríkjanna sést hér yfirgefa hótel í Peking og halda til móts við kínversku sendinefndina.
Hluti sendinefndar Bandaríkjanna sést hér yfirgefa hótel í Peking og halda til móts við kínversku sendinefndina. Getty/Giulia Marchi
Sendinefndir Bandaríkjanna og Kína sitja nú á rökstólum í Peking með það fyrir augum að binda enda á viðskiptastríð ríkjanna tveggja. Til stendur að viðræðurnar muni standa yfir í tvo daga en þetta eru fyrstu formlegu fundahöld ríkjanna frá því að þau ákváðu að bera klæði á viðskiptavopnin í 90 daga undir lok síðasta árs.

Hvorugt ríkið hefur viljað tjá sig formlega um gang viðræðna. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins lét hins vegar hafa eftir sér að sendinefnd síns ríkis hefði trú á því að hægt verði að finna lausn í málinu, sem byggi á gagnkvæmri virðingu og jafnrétti.

Breska ríkisútvarpið hefur þó eftir hagfræðingi að ekki séu miklar vonir bundnar við það að stór tíðindi muni berast að viðræðunum loknum. Það sé einfaldlega talið að of mikið skilji ríkin að til að hægt sé að ná lendingu á aðeins tveimur dögum.

Gert er ráð fyrir að helstu þrætueplin verði hugverkaréttindi, sem Bandaríkjamenn segja að Kínverjar neiti að framfylgja, og iðnaðarmál. Ljóst er að mikið er undir, enda um að ræða tvö stærstu iðnveldi heims. Náist ekki farsæl niðurstaða gætu ríkin haldið áfram að leggja tolla á vörur hvers annars, sem þegar hefur kostað ríkin hundruð milljarða dala.


Tengdar fréttir

Markaðir taka ekki vel í tíst Trump um að hann sé „tollamaður“

Svo virðist sem að viðskiptasamningur Kína og Bandaríkjanna sem hyllti undir um helgina séu í hættu eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi út röð tísta um að hann væri "tollamaður“. Markaðir í Bandaríkjunum hafa hvorki tekið vel í tíst Trump né vangaveltur um að ekkert verði af samningum á milli ríkjanna tveggja.

Trump segir Kínverja falla frá bílatollum

Stjórnvöld í Peking munu „lækka og afnema“ tolla sem þau hafa til þessa lagt á innfluttar, bandarískar bifreiðar að sögn Bandaríkjaforseta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×