Viðskipti erlent

Rússar flytja inn elds­neyti eftir drónaárásir

Samúel Karl Ólason skrifar
Útflutningsbann var sett á eldsneyti í Rússlandi í byrjun mánaðarins.
Útflutningsbann var sett á eldsneyti í Rússlandi í byrjun mánaðarins. EPA/MAXIM SHIPENKOV

Ráðamenn í Rússlandi eru sagðir hafa flutt inn eldsneyti frá Belarús í þessum mánuði, vegna samdráttar í framleiðslu. Úkraínumenn hafa gert drónaárásir á þó nokkrar olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum en útflutningur á eldsneyti var bannaður í upphafi mánaðarins.

Heimildarmenn Reuters í Rússlandi segja viðræður milli ríkisstjórna landanna og forsvarsmanna olíufyrirtækja þeirra um frekari innflutning á eldsneyti eiga sér stað.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rússar flytja inn eldsneyti frá Belarús. Það gerðu þeir einnig síðasta haust og þá var einnig sett á útflutningsbann í Rússlandi. Báðar olíuvinnslur Belarús nota að mestu olíu frá Rússlandi til að framleiða eldsneyti.

Fréttaveitan sagði einnig frá því í dag að rússnesk olíufyrirtæki standi frammi fyrir töfum á greiðslum fyrir olíusendingar frá bönkum í Kína, Tyrklandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Forsvarsmenn þessara banka hafi áhyggjur af refsiaðgerðum Bandaríkjamanna.

Komið hefur til þess að bankarnir hafa hafnað því að framkvæma greiðslur til Rússlands eða tafið þær og beðið viðskiptavini sína um að senda skriflega staðfestingu á því að enginn sem beittur hafi verið refsiaðgerðum muni fá umrædda peninga.

Von á töluverðri verðhækkun

Ráðamenn í Rússlandi ákváðu nýverið að draga úr olíuframleiðslu í sumar. Rússar sögðust hafa framleitt 9,5 milljónir tunna á dag í febrúar en í lok júní á fjöldinn að vera kominn niður í níu milljónir.

Greinendur J.P. Morgan telja, samkvæmt frétt Wall Street Journal, að þessi ákvörðun muni leiða til mikillar hækkunar á olíuverði, nema aðrir olíuframleiðendur grípi inn í og auki framleiðslu.

Tunna af Brent olíu selst nú á um 85 dali en áðurnefndir greinendur telja að verðið gæti farið í hundrað dali í september, nokkrum mánuðum fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gæti reynt að draga úr högginu með því að skrúfa frá krönunum á varbirgðum Bandaríkjanna. Talið er að þar sé um 60 milljóna tunna svigrúm, sem gæti fyllt upp í skarðið sem Rússar ætla að skilja eftir sig í fjóra mánuði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×