Viðskipti erlent

For­stjóri Boeing lætur af störfum fyrir árs­lok

Lovísa Arnardóttir skrifar
Calhoun ræddi við blaðamenn í bandaríska þinginu í janúar eftir að hann fundaði með þingmanni Demókrataflokksins um flug Alaska Airlines og hurðina sem fór af í fluginu.
Calhoun ræddi við blaðamenn í bandaríska þinginu í janúar eftir að hann fundaði með þingmanni Demókrataflokksins um flug Alaska Airlines og hurðina sem fór af í fluginu. Vísir/EPA

Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna.

Breytingar á stjórnendateymi félagsins má rekja til þeirrar krísu sem félagið hefur verið í frá því í janúar þegar hurð á Boeing 737 MAX flugvél fór af í flugtaki. Enginn lést í vélinni en margir farþegar slösuðust. Þá er félagið enn að glíma við eftirköst þess þegar tvær 737 MAX vélar hröpuðu í flugtaki árin 2018 og 2019 með þeim afleiðingum að rúmlega 300 manns létust.

Í frétt Reuters segir að Calhoun hafi verið undir miklum þrýstingi allt frá því í janúar en bandaríska alríkislögreglan er með málið til rannsóknar auk þess sem flugmálayfirvöld hafa stöðvað framleiðslu þar til félagið nær að tryggja öryggi og gæði véla sinna.

Calhoun á langa sögu innan fyrirtækisins en hann hefur setið í stjórn félagins um árabil og varð formaður félagsins árið 2019. Hann tók svo við sem forstjóri í janúar 2020.


Tengdar fréttir

Boeing-uppljóstrari fannst látinn í miðjum málaferlum

Fyrrverandi starfsmaður flugvélaframleiðandans Boeing, sem ljóstraði upp um galla í framleiðslu flugvéla Boeing, fannst látinn í Bandaríkjunum. Dagana fyrir andlátið hafði hann borið vitni fyrir dómi gegn framleiðandanum. 

Fimm­tíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi

Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum.

Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum

Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla.

Framhjól Boeing 757 féll af flugvélinni

Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×