Viðskipti innlent

Borgun greiðir 800 milljónir í arð: Segir söluna á Borgun reginhneyksli

ingvar haraldsson skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir Landsbankann og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra harðlega fyrir söluna á Borgun.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir Landsbankann og Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra harðlega fyrir söluna á Borgun. vísir/ernir/vilhelm
Borgun hyggst greiða 800 milljónir króna í arð á þessu ári. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem fyrirtækið greiðir arð. Kjarninn greinir frá þessu. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar segir þessi tíðindi sýna „hvers konar reginhneyksli salan á Borgun var.“

Landsbanki Íslands seldi 31,2 prósenta hlut í Borgun fyrir 2,2 milljarða til Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf, sem m.a. er í eigu Einars Sveinssonar, frændi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Eignarhaldsfélagið Borgun slf. fær 250 milljónir króna í sinn hluti vegna arðgreiðslnanna. Landsbankinn, sem er í eigu ríkisins, var harðlega gagnrýndur fyrir að hafa ekki boðið hlutinn út í opnu söluferli. Þá voru einnig vísbendingar um að bankinn hefði verið undirverðlagður.

„Nú sitja þeir kaupendur á hlut ríkisbankans sem voru útvaldir í bakherbergjum og greiða sér kaupverðið hægt og rólega í arð. Sala á eignarhlutum ríkisins á aldrei að eiga sér stað í leyni og án samkeppni,“ segir Árni Páll í færslu sem hann ritar á Facebook.



Borgunarmálið: Um hvað snýst deilan?


Árni Páll gagnrýnir Bjarna einnig fyrir að ætla sér að leggja Bankasýslu ríkisins niður.

„Það er ótrúlegt að fjármálaráðherra skuli eftir Borgunarhneykslið hafa látið sér detta í hug að leggja fyrir Alþingi frumvarp um að leggja niður Bankasýsluna og fela sjálfum sér alvald um bankasölu. Það frumvarp má þingið ekki samþykkja,“ segir Árni Páll.


Tengdar fréttir

Eðlilegt að leita ekki eftir hæsta verði?

Bankastjóri Landsbankans heldur því fram fullum fetum að ekkert sé óeðlilegt við að bankinn skuli hafa selt hlut sinn í Borgun í beinni sölu til annarra eigenda félagsins án þess að leita eftir tilboðum til að hámarka söluverðið. Hann gengur lengra og telur bankann ekki hafa átt annan kost en að fara þessa leið.

Ráðherra vísar á Bankasýsluna

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ekki látið fara fram óháða athugun á því hvort þeir 2,2 milljarðar króna sem Eignarhaldsfélag Borgunar greiddi fyrir hlutinn séu hæsta verð sem hægt hefði verið að fá og vísar á Bankasýsluna.

Telur það ekki í verkahring Alþingis að skipta sér af Borgunarmálinu

Nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis segir það ekki í verkahring Alþingis að skipta sér af sölu Landsbankans af borgun. Horfið hafi verið frá pólitískum afskiptum af bönkum í ríkiseigu fyrir löngu síðan. Vísbendingar erum að að Borgun hf. hafi verið undirverðlagt þegar Landsbankinn seldi þriðjungshlut í fyrirtækinu án auglýsingar

Segir sölu á greiðslukortafyrirtækjum lykta af klíkuskap

Sala Landsbankans á greiðslukortafyrirtækjum lyktar af klíkuskap, segir formaður Samfylkingarinnar en að undirlagi hans hefur bankastjóri Landsbankans verið boðaður á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að fara yfir sölu bankans á hlutabréfum í Borgun hf.

Viðurkenna brot á samkeppnislögum og greiða 1.600 milljóna sekt

Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, segir í besta falli hlægilegt að forsvarsmenn, Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankans, Borgunar og Valitor segist ekki hafa vitað að fyrirtækin væru að brjóta samkeppnislög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×