Handbolti

Arnór: Sumir of fljótir að afskrifa Seattle

Eírikur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
„Við horfðum margir á leikinn saman eftir að við komum upp á hótel í gær. Það var gaman,“ sagði Arnór Atlason í samtali við Vísi á Hilton-hótelinu hér í Doha í dag.

Nokkrir úr landsliðshópnum voru þá enn að nudda stírurnar úr augunum eftir að hafa vakið eftir leik Seattle Seahawks gegn Green Bay Packers í úrslitum NFC-deildarinnar í NFL-boltanum í nótt. Leiknum var lokið laust fyrir klukkan þrjú í nótt.

„Sumir fóru reyndar aðeins of snemma að sofa. Þeir voru of fljótir að afskrifa [Seattle],“ sagði hann en Seattle vann í framlengingu eftir að hafa verið undir langstærsta hluta leiksins.

„Þeir verða bara að eiga það við sjálfa sig. En það var gaman að krydda þetta aðeins hjá okkur og við fengum að sofa út í morgun sem var gott.“

Strákarnir voru vitaskuld glaðir eftir sigurinn á Alsíringum í gær. „Hann létti aðeins á okkur og það var léttara að vakna í morgun en eftir Svíaleikinn. En það er nóg eftir og mikið verk óunnið ef við ætlum okkur að ná markmiðum okkar.“

Næst á dagskrá er leikur gegn Frakklandi en hann fer fram á morgun. Arnór, sem leikur með St. Raphael þar í landi, segir það ávallt gaman að mæta þeim löndum þar sem hann býr.

„Það hefur bara gerst svo oft í gegnum tíðina og hefur því engin áhrif á mann lengur. En það verður gaman að mæta Frökkum. Þetta eru þeir bestu og við viljum mæla okkur við þessi lið. Það verður gaman að sjá hvernig við stöndum.“

Viðtalið við Arnór má heyra í heild sinni efst í fréttinni.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á TwitterFacebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Káta kylfinginn í landsliðið

Ísland er komið af stað á HM í handbolta þrátt fyrir pínlega byrjun gegn Alsír í gær. Strákarnir unnu sín fyrstu stig á mótinu en fyrirliðinn segir deginum ljósara hvað þurfi að gera til að ná árangri í Katar.

Arnór hefur ekki áhyggjur af lærinu

Arnór Þór Gunnarsson fékk þungt högg framan á hægra lærið í leiknum gegn Alsír í gær og var hann nokkra stund að hrista það af sér. Hann hefur þó ekki áhyggjur af því að það muni há honum í keppninni.

Snorri Steinn: Fór aðeins um mig

"Það er engin spurning að mér er létt. Dagurinn eftir Svíaleikinn var erfiður og það er gott að vera kominn á kortið þó svo byrjun þessa leiks hafi ekki alveg verið sú sem maður óskaði sér," sagði Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, eftir Alsír-leikinn.

Snorri Steinn með tvöfalt tímamótamark á móti Alsír

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sögulegt mark fyrir íslenska handboltalandsliðið í sigurleiknum á móti Alsír á HM í handbolta í gær. Fyrra mark Snorra í leiknum var nefnilega tvöfalt tímamótamark.

Einar Rifill og dætur sóttar heim | Myndband

Einar Guðlaugsson, eða Rifilinn eins og hann er oft kallaður, er einn helsti stuðningsmaður íslenska landsliðsins í handbolta en hann hefur fylgt því á mörg stórmót.

Aron með flestar stoðsendingar á HM til þessa

Aron Pálmarsson er efstur í stoðsendingum hjá mótshöldurum eftir tvær fyrstu umferðirnar á HM í handbolta í Katar og hann er jafnframt í 3. sæti yfir þá sem hafa átt þátt í flestum mörkum.

Gaupi í HM-kvöldi: Alexander var of spenntur

Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónasson voru gestir Harðar Magnússonar í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport 3 í kvöld þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Alsír á HM í Katar.

Aron: Hafði aldrei áhyggjur

Aron Pálmarsson var maður leiksins í sigri Íslands á Alsír í kvöld en eftir erfiða fæðingu er Íslands loksins komið á blað á HM í handbolta.

Einkunnir Gaupa: Aron Pálmarsson bestur

Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×