Erlent

Gögnum var eytt úr flughermi flugstjórans

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Frá alþjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpúr í dag.
Frá alþjóðaflugvellinum í Kúala Lúmpúr í dag. vísir/afp
Rannsókn á flughermi flugstjóra malasísku farþegavélarinnar sem saknað hefur verið síðan 8. mars hefur leitt í ljós að gögnum var eytt. Þetta hefur fréttastofa CNN eftir settum samgönguráðherra Malasíu, Hishammuddin Hussein.

Samgönguráðherrann tók ekki fram hvers konar gögnum hefði verið eytt en flughermar vista vanalega gögn svo hægt sé að spila þau síðar. Hann tók heldur ekki fram hver kynni að hafa eytt gögnunum.

Í frétt CNN kemur þó fram að gagnaeyðing bendi ekki endilega til þess að flugstjórinn hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Milljónir manna um allan heim eyði tölvugögnum á degi hverjum.

En sérfræðingar segja það óvenjulegt að eyða gögnum úr flughermi. Slíkar skrár taki mjög lítið pláss og notendur flugherma haldi oft upp á þær til að fylgjast með færni sinni.

Leitin að vélinni heldur áfram en 239 manns voru um borð þegar hún hvarf af ratsjá fyrir tólf dögum. Hún var á leiðinni frá Kúala Lúmpúr til Peking.


Tengdar fréttir

Hóta hungurverkfalli vegna flugvélahvarfsins

Aðstandendur kínverskra farþega malasísku farþegaþotunnar sem saknað hefur verið frá því 8. mars krefjast nánari upplýsinga frá yfirvöldum í Malasíu.

Ekkert bendir til hryðjuverka

Mennirnir tveir sem fóru með stolin vegabréf um borð í flugvél Malaysia Airlines, sem hefur verið saknað frá því á laugardag, eru taldir hafa ætlað að flytja til Evrópu.

Óttast að 239 séu látnir

Forsætisráðherra Malasíu segir of snemmt að kalla hvarf farþegaþotunnar í dag hryðjuverk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×